Vísir - 16.05.1975, Side 1
65. árg. — Föstudagur 16. mai 1975—109. tbl.
Börnin ó sundskýlum
„Hér er sannkallað Mallorka-
veður Idag og enn betra var veðr-
ið I gær, blankandi logn, glamp-
andi sól og hiti. Hitastigiö! Það
veit ég ekki um. Lit aldrei á
mæli”, sagði séra Páll Þórðarson
I Neskaupstað I viðtali við blaðið I
morgun.
Gróðurinn hefur heldur betur
tekið kipp, þótt sumariö sé mun
seinna á ferö en I fyrra. Menn
ganga um á skyrtunum og börn
leika sér i sundskýlum. Páll
sagði, að það væri dásamlegt fyr-
ir sig, sem væri fyrrverandi
borgarbarn, að þurfa ekki alltaf
að vera með úlpuna við hendina.
Hann sagði, aö algeng sjón væri
að sjá mótorbáta keyra þvers og
kruss um sjóinn og sumir væru á
sjóskiðum. Kaffibrúnir ungir
menn dytta að bátum sinum og
mikill hugur I mönnum við smá-
bátaútgerð.
Menn eru i óðaönn að hreinsa
flóðasvæðin og keyra I nýja garð-
inn við höfnina og leggur dökkan
athafnamökk inn af hafnarsvæð-
inu.” Fólkið er að gera staðinn
aftur að sinum stað”, sagði Páll.
— E VI
Loks kemur
Lénharður
Ekki var hún sýnd um jólin
og ekki um páskana. En nú
er þriðja stórhátiðin fram-
undan og þá fáum við loks að
sjá hina umtöluðu kvikmynd
sjónvarpsins, Lénharð
fógeta. Myndin verður á
dagskrá sjónvarpsins annan
i hvitasunnu. Gunnar
Eyjólfsson og Sunna Borg
fara með aðalhlutverkin. Sjá
meira um sjónvarpið á
hvitasunnunni á bls. 20 og 21.
700 milljóna JfC 9 J H ■ Q
„Gerðardomur ylli
flótta fró skipunum"
Sædýrasafninu hefur bætzt góður Iiðsauki. Það er lltill kópur, minni en venjulegir selkópar, og halda
menn að þarna sé kominn hringanóri.
Það voru menn á báti frá Súgandafirði, sem fundu kópinn um 20 milur frá landi. Honum viröist hafa
litizt ágætlega á bátinn og áhöfn hans, þvi að hann kom syndandi að bátnum.
Áhöfnin var ekki lengi aö bjóða hann velkominn og gaf hann svo til Sædýrasafnsins, þar sem Bragi tók
þessa mynd af honum i morgun. _ ea
— segir formaður
vélstjórafélagsins
,,Ég tel það fráleitt og
óliklegast af öllu, að
gerðardómur verði sett-
ur i togaradeilunni,”
sagði Ingólfur Ingólfs-
son, formaður vélstjóra-
félagsins, i viðtali við
Visi. Hann sagðist
leggja litið upp úr orð-
rómi, sem uppi er um,
að stjórnvöld gripi til
slikra aðgerða.
„Menn hafa hent þetta á lofti
sem hugsanlega leið vegna for-
dæma,” sagði Ingólfur. „Það er
fráleitt, að til þess komi. Þessi
deila er að vlsu erfið, en ekki
verri en margar aðrar.”
„Ég vona, að þetta breytist allt
til hins betra,” sagði hann.
„Gerðardómur mundi valda
flótta frá skipunum, ef ekki ein-
hverju verra.”
Ingólfur sagði, aö lauslegar
spár um afkomu skipanna bentu
til 700 milljón króna halla á 22
stærri togurunum á árinu. Þjóö-
hagsstofnun hefði áætlað, að tap á
útgerð 15 togara, sem athugaðir
heföu verið, benti til 490 milljón
króna hallarekstrar á þeim.
Ingólfur andmælti hugmyndum
um fækkun I áhöfn, sem útvegs-
menn og undirmenn hafa til at-
hugunar. Kynni svo að fara, aö
skipin skiluöu varla nema hálfum
afköstum, ef gripið væri til sliks.
— HH
Hver er hinn
„gullni meðal-
vegur" *
íbúðaverðinu?
Sjá leiðara á bls. 6
Bíóin lokuð í dag,
morgun og hinn
— en hvað fáum
við svo að sjá?
— bls. 10 og
BAKSÍÐA
Poppuð Flug-
leiðaauglýsing
— sjá Tónhornið
á bls. 8
„Erfiðisvinna að leita
sér að atvinnu í dag"
Þá vantar vinnu. Gunnar og Snorri leita fyrirgreiðslu Ráöningar-
istofu Reykjavikurborgar. — Ljósm: Bragi.
„Það er ekkert að ske. Engar
stórframkvæmdir að ráði og þar
af leiöandi Htil vinna,” sagði
hann mæðulega, hann Gunnar
Sighvatsson, einn þeirra mörgu,
sem áttu erindi á Ráðningar-
stofu borgarinnar I gær, en þar
hefur veriö gestkvæmt undan-
farið, og þá ekki sizt vegna þess,
að skólunum er rétt um það bil
að ljúka.
„Gunnar sagðist hafa unniö
slðast hjá Sindra-stál. „Nei, ég
er ekki iðnlærður til eins eða
neins. Maður verður bara aö
taka það sem býðst,” sagði
hann. Og hann bætti þvl við, að
það væri mikil erfiðisvinna að
veröa sér úti um vinnu um þess-
ar mundir.
Næst tókum við tali 18 ára
pilt, sem var að bíöa eftir af-
greiðslu. Hann kvaðst heita
Snorri Aöalsteinsson og vera 18
ára gamall. „Ég losnaði úr
skólanum I siðustu viku og hef
siðan verið á harðaspretti á
milli atvinnuveitenda I leit að
vinnu. Ennþá hefur mér ekkert
gengið,” sagði hann. „Kannski
ég hafi farið of seint af stað.”
Snorri kvaðst helzt vilja geta
komizt I vinnu við Sigölduvirkj-
un. „Það ætti aö vera hægt aö
hafa góðan pening þar,” sagöi
hann. „1 fyrrasumar vann ég
viö útkeyrslu. Það var ágætt
starf, en alltof litil auka-.
vinna...”
1 gær voru samtals 518 á at-
vinnuleysisskrá. Kvenfólk var
þar I meirihluta, eða 349 alls.
Þar af voru 150 skólastúlkur.
Karlmenn á atvinnuleysisskrá
voru hins vegar 169 talsins og
þar meö taldir skólapiltar, sem
að sjálfsögöu njóta ekki at-
vinnuleysisbóta.
„Skólafólk hefur ekki leitað til
Ráðningarstofunnar á þessu
vori meira en áður,” sagði
skrifstofustúlkan, sem þarna
vinnur. „Þvier þó ekki að neita,
aö það er minna um vinnu nú en
undanfarin sumur og erfiðara
að hjálpa þessu unga fólki. Það
sem setur stærsta strikið I
reikninginn er togaraverkfallið.
Viö höfum jafnan getað sent
mikinn fjölda skólafólks I fisk-
vinnu, sem nú er ekki fyrir
hendi.”
— ÞJM
1