Vísir - 16.05.1975, Side 3
Vísir. F8«t«dagur 16. mai !»75.
3
iMinníspen-
ingur um Rally
Sérstakur bronspeningur verö-
ur gefinn út í tilefni fyrstu
Rally-keppninnar á íslandi. Þetta
er penfngur, sem teiknaöur er af
Báröi Jóhannessyni og steyptur í
silfursmiöju hans. Gefin veröa út
150 tölusett eintök, sem seld veröa
hvert á 4000 krónur. _jB
Varnarliðs-
menn í veltu
Þrlr ungir varnarliösmenn
voru I bilaleigujeppa, er valt á
þjóöveginum viö Læk I Leirár-
sveit I gærdag. Jeppinn stór-
skemmdist viö óhappið, en
varnarliðsmennirnir sluppu viö
meiri háttar meiösli fyrir utan
einn, er hlaut höfuöhögg og skarst
á hendi. Eftir rannsókn á sjúkra-
húsinu á Akranesi fékk hann þó
aö fara heim ásamt félögum sin-
um. —JB
Einn á stofuna,
þrír á stöðina
Einn varö fluttur á slysavarö-
stofuna og þrir á lögreglustööina
eftir að fundum nokkurra pilta
haföi borið saman á stigagangin-
um I Þórscafé rétt fyrir klukkan
12 i gærkvöldi.
Lögreglan var kvödd á staðinn
'vegna átakanna og voru þrlr
fluttir til yfirheyrslu vegna
áverka, er sá fjórði hafði hlotið.
Einn piltanna fékk að dúsa i
fangageymslu lögreglunnar i nótt
vegna meintrar llkamsárásar.
-JB.
Nóg heitt vatn, en
SUMIR
NOTA ÞÓ
OLÍUNA í
REYKJAVÍK
Ekki er hægt aö segja aö marg-
ir Reykvíkingar kyndi hús sin
með oliu. Á borgarskrifstofunum
fengum viö þær upplýsingar, aö
það væru i kringum 1700 manns,
sem njóta oliustyrks. Ef gert væri
ráð fyrir 4ra manna fjölskyldu i
hverri ihúö yrðu þetta 425 ibúðir,
sem nota oliuna.
Flest þeirra húsa, sem kynt
eru með oliu, eru gömul og á rifa
vegna skipulags borgarinnar.
Þykirþvi ekki taka þvi að leggja I
kostnað vegna breytinga, sem
lagning hitaveitu i húsin hefði i
för með sér. Þess verður þvi
væntanlega ekki langt að biða, að
hægt verði að segja með sanni, að
Reykjavik sé borgin reyklausa.
— EVI —
Vegaþjónusta F.í.B.
Félag Islenzkra bifreiðaeigenda
mun eins og áður halda úti vega-
þjónustu fyrir bifreiðaeigendur
um hvitasunnuhelgina. Bifreið-
arnar verða á leiðunum austur
fyrir fjall og Þingvellir — Laug-
arvatn, kallmerkin eru FIB 11,
sem er kranabifreið, og FÍB 4.
Bifreiðarnar taka við skilaboðum
I talstöð, einnig er hægt að koma
skilaboðum um Gufunes-radió,
simi 22384, ennfremur hlusta þeir
á rás 19 á 27 MHz. tfðnissviðinu.
Þjónustutíminn verður sem hér
segir: 17. mai frá klukkan 14-20.
18. mai frá kl. 14-20.19. mai frá 14-
22.
FÁAÐVílÐA RÆKJUNAEN
HVAR Á AÐ VINNA HANA?
„Það er töluvert fariö að hitna
I kolunum, sérstaklega út af þvi
að Eyfirðingarnir skuli vera
búnir aö veiða svo mikiö sem
raun ber vitni og fá aö halda
áf'ram, meðan viö sem erum að
búa okkur af staö, Húsvikingar
og Köpskeringar, fáum hvergi
aö koma okkar afla i land,
vegna þess aö hinir eru búnir aö
fylla stöðvarnar.”
Þetta sagði fréttaritari Visis á
Kópaskeri ' en svo virðist
sem rækjan sé mesta striðs-
skepna, þvi viðast risa dfajr, þar
sem hún er með i spilinaT,
„Okkur finnst, að Axarfjörður
sé það svæði, sem við ættum að
hafa forgang að, samanber ísa-
fjarðardjúp og Húnaflóa, þar fá
engir aðrir inn að koma en þeir
bátar, sem eru þar i kring. Hins
vegar hefur Húnaflóabátum
verið veitt leyfi við Grimsey,
þegar þeir voru búnir með sinn
tima I Húnaflóanum. Það höfum
við ekki fengið, enda litið gagn I
þvi, þegar við höfum leyfi i
Axarfirði, en getum ekki notað
það, vegna þess að aflinn yrði
ónýtur, ef við veiddum hann.”
Eins og Visir hefur sagt frá
áður, var 10 rækjuveiðibátum
veitt leyfi til rækjuveiða i Axar-
firði frá 6. mai til mánaðamóta,
sex frá Eyjafjarðarhöfnum,
tveimur frá Húsavik og einum
frá Kópaskeri. Aðeins ein stöð
er á svæði þessara báta, sem
hefur aðstöðu til móttöku og
leyfi til rækjuvinnslu.
Kópaskersmenn höfðu fengið
loforð fyrir þvi, að sú stöð
myndi taka við frá þeim, en að-
eins Eyjafjarðarbátar voru
reiðubúnir að hefja veiðar, þeg-
ar leyfið gekk I gildi, og hafa nú
Sveinn opnar sýningu
Sveinn Björnsson rann-
sóknarlögreglumaöur i Hafnar-
firöi hefur aö undanförnu veriö
önnum kafinn viö þaö I fritima
sinum aö ganga frá sýningu,
sem opnuð veröur á Kjarvals-
stöðum á morgun klukkan fjög-
ur.
Nú er Sveinn kominn i sumar-
fri, svo aö hann ætti nú aö geta
einbeitt sér aö málaralistinni
um sinn. Á myndinni er Sveinn
Björnsson og kona hans viö eitt
hinna fjölmörgu verka á sýning-
unni.
— JB
DRENGURINN VAR NÚ
RAUNAR STÚLKA ...
— og það meira að
segja kannske
upprennandi
stjarna
Eins og kom fram i Visi i gær
var létt yfir mönnum eftir frum-
sýninguna á Lénharði fógeta. A
forsiðu sáum við mynd af Gunn-
ari Eyjólfssyni, meö Magnúsi
Bjarnfreðssyni og eiginkonu
hans.
Það var líka sagt frá þvi að það
væri sonur þeirra sem með var á
myndinni. Það var nú reyndar
heldur betur misskilningur, þvi
að myndin var af dóttur Gunnars,
Þorgerði Katrinu. Raunar er hún
þegar farin að feta i fótspor föður
sins, þótt aðeins 9 ára sé, og við
heyrðum hana nýverið fara með
eitt aðalhlutverkið i barnaleikriti
útvarpsins Sadoko. Ekki er
ósennilegt að við eigum eftir að
heyra meira og sjá til hennar.
Þetta er svo sem ekki I fyrsta
sinn á þessum timum jafnréttis-
ins, að það sem við teljum að sé
piltur, reynist vera stúlka, enda
allir klæddir á sama hátt.
— EVI -
fyllt stöðina, enda fengið upp i
12 tonn i ferð.
„Hitamál verður þetta alla
vega, ef Eyfirðingar fá áfram
leyfi til að fylla stöðina með
rækju, sem þeir veiða uppi i kál-
görðum hjá okkur, af þvi að þeir
voru tilbúnir að hefja veiðar
þegar leyfið kom, en við fengum
ekki að víta þetta fyrr en búið
var að veita leyfið og við þurf-
um tima til að búa okkur. Með
alminnsta kostnaði kostar um
700 þúsund að búa sig.
Annar bátanna hér er tilbúinn
á veiðar, en fær hvergi uppsetn-
ingu. Við viljum láta stoppa þá
báta nú, sem búnir eru að vera
að, og gefa hinum kost á að
veiða til jafns við þá.
Sótt hefur verið um þó nokkur
rækjuvinnsluleyfi á Norður- og
Norðausturlandinu, en vinnslu-
leyfi hafa ekki verið gefin út,
þótt tiu bátar hafi fengið veiði-
leyfi. Nú er aðeins ein rækju-
vinnsla I gangi austan Skaga-
strandar. Heyrzt hafa sögu-
sagnir um, að Kópasker og
Hauganes fái vinnsluleyfi,. en
undirbúningur að þvi að koma
vinnslunni upp tekur nokkra
mánuði, og er nokkuð dýrt. Dal-
vik hefur svo gott sem komið sér
upp vinnslu, en hefur ekki
fengið vinnsluleyfi, svo vitað sé.
Þá má lika geta þess, að
Berghildur og Jökultindur frá
Siglufirði fóru um daginn leyfis-
laust inn i Axarfjörð og toguðu
þar. Þessir bátar eru með leyfi
á Grimseyjarmiðum, en frömdu
þarnagróft landhelgisbrot. Mér
er kunnugt um, að sjávarút-
vegsráðuneytið hefur nú sent
þeim skeyti um afturköllun á
leyfi vegna brota á reglum.”
—SHH
Bíóin lokuð í kvöld:
SÝNINGARMENN
TAKA SKÍRDAGS-
FRÍIÐ NÚNA
Kvikmyndahúsin veröa ekki er fridagur sýningarmanna, og
til þess aö stytta fólki kemur i stað skirdags.
stundirnar núna um hvíta- Hér áður fyrr var skirdagur
sunnuna. Strax idag falla meira fridagur þeirra, en á siðasta ári
að segja niður sýningar, og var þessu breytt og þessi dagur
engin sýning veröur fyrr en á tekinn upp i staðinn. Þeir halda
annan I hvitasunnu, eða á m.a. sinn aðalfund þennan dag.
mánudaginn. Eftir sem áður er þó opið i
Sjálfsagt fellur ekki öllum leikhúsunum og á skemmti-
eins vel að engar sýningar skuli stöðunum. Það má geta þess að
verða i dag eða i kvöld. Þjóðleikhúsið frumsýnir einmitt
Skýringin á þessu er sú, að þetta Þjóðniðing i kvöld. -EA.
Meðlagið dugir
ekki fyrir
barnaheimilinu
— einstœðir foreldrar fara fram
ó hœkkun á barnalífeyri
„Viö væntum þess auövitaö að
þingið taki til greina 45.9% hækk-
un barnalifeyris/meðlags,” sagöi
Jóhanna Kristjónsdóttir blaða-
maður, formaður Félags
einstæðra foreldra, en félagið hélt
nýlega fjölmennan fund, þar sem
skorað var á Alþingi og rikis-
stjórn aö bæta kjör barna
einstæðra foreldra.
Jóhanna sagði, að þessi 45.9%
væri sama prósenttala og rætt
væri um á þingi vegna tekju-
tryggingar aldraðra i frumvarpi
um launajöfnunarbætur, al-
mannatryggingar og verðlags-
mál. Væri hækkun framfærslu-
eyris barnanna sett fram sem
viðbótartillaga við frumvarpið.
Nánast væri þessi prósenttala
viðurkenning i verki á hækkun
framfærslukostnaðar.
Jóhanna sagði, að hún hefði ný-
lega gert könnun á þeim konum,
sem fá barnalifeyri/meðlag (sem
eru tvö nöfn á sama framfærslu
eyri). Var þar hlutfall ekkna
lægst eða 18.5%, ógiftar væru
34.7% og fráskildar 46.8%.
Þær, sem fengju þá barnalif-
eyri, væru þvi samkvæmt könn-
uninni 18.5%, en hinar 81.5%, sem
fengju meðlagið. Hækkun þessi
kæmi þvi hlutfallslega minnst við
rikið, þvi að aðallega væri þetta
peningatilfærsla milli einstakl-
inga. Eins og stendur nægir
barnalífeyririnn/meðlagið ekki
einu sinni fyrir kostnaði við dag-
vistun barna á barnaheimilum,
hvað þá meira.
Gerir Félag einstæðra foreldra
sér vonir um, að þingmenn geri
sér grein fyrir, hversu brýnt það
er að rétta börnum einstæðra for-
eldra þá hjálparhönd, sem þau
eiga kröfu til, eins og aðrir
þegnar þjóðfélagsins.
— EVI —