Vísir - 16.05.1975, Side 4
4
Vlsir. Föstudagur 16. mal 1975.
Notaðir varahlutir
í flestar gerðir eldri bíla
CITROEN I.D. 19 og bragga
VW VARIANT '66 station
VOLVO AMASON
TAUNUS 17 '66
SKODA 1000 '69
Drif og stýrismaskinur i
FÍAT 125
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9 — 7 alla virka daga og 9—5
laugardaga
VANTAR
YÐUR
STARFSFÓLK
7
Atvinnumiðlun menntaskólanna
Sími 82698
Auglýsing um lögtök
vegna fasteigna-
og brunabótagjalda
í Reykjavík
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjald-
heimtunnar i Reykjavik og samkvæmt
fógetaúrskurði, uppkveðnum 16. þ.m.
verða lögtök látin fram fara til tryggingar
ógreiddum fasteignasköttum og bruna-
bótagjöldum, samkvæmt 2. kafla laga nr.
8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga, en
gjalddagi þeirra var 15. jan. og 15. mai s.l.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum,
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða
látin fram fara að 8 dögum liðnum frá
birtingu þessarar auglýsingar, verði þau
eigi að fullu greidd innan þess tima.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
16. mai 1975.
Flugleiðir eignast
aðild að Kynnisferðum.
A framhaldsaðalfundi Kynnis-
ferða nýlega var forml. gengið
frá eignaraðild Flugleiða h.f. að
Kynnisferðum s.f., en aðrir eig-
endur sameignarfélagsins eru,
Ferðaskrifstofa rikisins, Ferða-
skrifstofan Sunna, Ferðaskrif-
stofa Zöega, Ferðaskrifstofan Ot-
sýn og Ferðaskrifstofan tlrval.
Stjórn fyrirtækisins skipa aðilar
frá öllum þessum fyrirtækjum.
Stjórnarformaður er Birgir
Þorgilsson, varaformaður
Kjartan Lárusson og ritari Orn
Steinsen. Framkvæmdastjóri
Kynnisferða s.f. er Kristján Jóns-
son. Afgreiðsla fyrirtækisins er i
Hótel Loftleiðum.
Hvað hefur sumarið
upp á að bjóða:
Bæklingurinn „Sumarstarf
fyrir börn og unglinga 1975” kem-
ur nú út i þriðja sinn. 1 honum er
að finna upplýsingar um framboð
borgarstofnana fyrir þennan ald-
ur, en æskulýðsráð, fræðsluskrif-
stofa, skólagarðar, vinnuskóli og
iþróttaráð standa að útgáfunni.
Eins og áður er bæklingnum
dreift i skólum borgarinnar til 10
aldurshópa (6-16 ára) og fer sú
dreifing fram þessa dagana.
Ástæða er til að hvetja foreldra og
forráðamenn til þess að kynna sér
vel hvaða starfsþætti börn þeirra
geta valið um og hvað þátttaka
kostar, en starfið er að verulegu
leyti greitt af borgarsjóði.
Allar nánari upplýsingar veita
skrifstofur þeirra stofnana, er
viðkomandi starf annast.
Hótel Húsavík þarf
ekkert að kvarta.
Oft hafa hótelin haft af slæmri
nýtingu að segja yfir vetrarmán-
uðina, ekki sizt hótel úti á landi.
Þeir hjá Hótel Húsavfk hafa ekki
þá sögu að segja. Fyrstu 4 mán-
uði ársins jókst nýtingin um 51%
miðað við i fyrra. Og útlitið fyrir
sumarið er gott, segir i frétt i
Islendingi — Isafold á Akureyri.
Pantanir hafa verið fjörugar,
m.a. er von á 6-700 Þjóðverjum.
Hótélstjórinn kveðst hafa fulla
ástæðu til að vera bjartsýnn á
framtiðina.
Stuttu skeytin
verða dýrari, —
langlokurnar ódýrari.
Island er i Evrópusambandi
Pósts og sima (CEPT). Nú
hefur náðst samkomulag milli
landanna um breytingu á gjöld-
um fyrir simskeyti. Fast gjald
fyrir skeyti hækkar nú verulega i
390 kr. fastagjald, orðið verður 12
kr. til Færeyja, 17 til Englands og
21 til annarra CEPT — landa.
Gjald fyrir 20 orða skeyti verður
það sama, samkvæmt nýju og
gömlu reglunum, styttra en 20 orð
þýðir að hvert orð verður dýrara,
en lengri skeyti gerast ódýrari.
Reglurnar gengu i gildi i gær.
Skólafólk rekur
sjálft vinnumiðlun
Dökkt útlit er hjá þeim mörgu,
sem nú koma úr skólum og sækja
á vinnumarkaðinn, talið er að 45
% menntaskólanema hafi ekki
enn tryggt sér sumarstarf. Hefur
Landssamband menntaskóla-
nema þvi ákveðið að setja á stofn
atvinnumiðlun. Aðsetur skrifstof-
unnar er i Menntaskólanum i
Hamrahlið. Siminn er 82698 og
þangað ættu atvinnuveitendur og
nemendur að leita.
Munið bólusetninguna
gegn mænusóttinni.
Það er ódýr trygging gegn
erfiðum sjúkdómum að gangast
undir bólusetningu. Núna býður
Heilsuverndarstöð Reykjavikur
borgarbúum mænusóttarbólu-
setningu. Einkum er lögð áherzla
á að ná til Jjeirra, sem fæddir eru
1955, og eru þeir beðnir að koma
núna i þessum mánuði. Er það i
beinu sambandi við ónæmisað-
gerðir sem sá árgangur fékk i
skóla. Þá er heppilegt að árgang-
ar, sem standa á heilum og hálf-
um tug, mæti, einnig þeir sem
fengu ónæmisaðgerð 1970, þvi
bólusetninguna ber að gera á 5
ára fresti, þannig að fólk geti ver-
ið öruggt.
Dauðadans i
siðasta sinn
Eitthvert magnaðasta verk
Strindberg, Dauðadans, hefur
hlotiö mjög góðar viðtökur i Iðnó i
vetur sem kunnugt er, en þau
GIsli Halldórsson og HelgaBach-
mann, sem hér sjást i hlutverkum
sinum, leika ásamt Þorsteini
Gunnarssyni höfuðpersónur
verksins. Nú eru einungis eftir
tvær sýningar á leiknum, næst-
komandi föstudagskvöld og svo
laugardaginn 24. mai, en þá verð-
ur 30. og jafnframt siðasta sýn-
ingin.
Forskóii fyrir
prentnóm
Verklegt forskólanám i prentiðn hefst i
Iðnskólanum i Reykjavik að öllu forfalla-
lausu 2. júni nk. og lýkur 20. júni.
Forskóli þessi er ætlaður nemendum er
hafa hugsað sér að hefja prentnám á næst-
unni og þeim sem eru komnir að i prent-
smiðjum, en ekki hafið skólanám.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu skól-
ans i siðasta lagi miðvikudaginn 28. mai.
Umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar
verða látnar i té á sama stað.
Iðnskólinn i Reykjavik.