Vísir - 16.05.1975, Side 6
6
Vísir. Föstudagur 16. mal 1975.
vísrn
írtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
/ Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
AfgreiOsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Síöumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 700 kr. á mánuöi innanlands.
1 lausasölu 40 kr.eintakið. Blaöaprent hf.
Vegur úr vanda
Það þarf enga smáræðis spákaupmannsgáfu til
að vera húsbyggjandi og selja á föstu verði.
Ibúðir eru venjulega 1-2 ár i smiðum, og visitala
byggingarkostnaðar hefur hækkað um hvorki
meira né minna en 56,8 af hundraði siðustu tólf
mánuði, reiknað fram til 1. marz Slik spá-
kaupmennska hlýtur að vera mjög óæskileg i
þjóðfélaginu. Iðulega sitja verktakar með sárt
ennið, þegar þeir sjá ekki, fremur en aðrir, fyrir
linnuiausa verðbólgu og tiðar gengisfellingar,
sem á þeim dynja. íbúðakaupendur njóta góðs af
þvi. í öðrum tilvikum reyna húsbyggjendur að
tryggja sig gegn verðbólgunni með okurverði.
Húsbyggjendur hafa i mörgum tilvikum reynt
að verja sig með þvi að fá inn i kaupsamning
ákvæði um að kaupverðið skuli hækka við gengis-
fellingar og visitöluhækkanir. Samþykki Seðla-
bankans þarf til þess, að slik ákvæði séu gild lög-
um samkvæmt, þótt iðulega sé farið i kringum
þessi lög. Alræmd málferli hafa risið út af sliku.
Hinn gullni meðalvegur er vandrataður i þess-
um efnum sem öðrum. Með sanngirni er hvorki
unnt að hrekja húsbyggjendur út i spákaup-
mennskuna með þvi að heimta, að jafnan sé selt
á föstu verði né varpa ibúðakaupendum á bál
verðbólgunnar með þvi að heimila
visitölutryggingu á öllum kaupsamningum. Kjör-
um almennings i landinu er ekki þannig farið um
þessar mundir, að fólk upp til hópa geti undir þvi
risið, verði verðbólgan slik, sem hún hefur verið
undanfarin2-3 ár. í þeim tilvikum mundu margir
ibúðakaupendur fara á höfuðið, þegar að skulda-
dögum kæmi og stór vandræði skapast.
Inn i dæmið kemur nauðsyn þess að verðlauna
þá húsbyggjendur, sem fram úr skara og skila
fullsmiðuðum ibúðum ef til vill á nokkrum
mánuðum, meðan aðrir eru slóðar og draga sem
lengst að ljúka verkinu. Slóðarnir verða að fá þá
refsingu, sem þeir hafa kallað yfir sig. En það
væri mjög ósanngjarnt, að verðtryggingin kæmi
þannig niður á hinum framsæknu, að þeir, sem
lengur sitja á verkinu, nytu góðs af verðbólgunni.
Það kerfi, ef svo mætti segja, sem nú gengur i
þessum efnum, er óalandi og óferjandi.
Liklegasta lausnin væri liklega sú, að visi-
tölutryggja kaupverðið að einhverjum hluta og
koma jafnframt inn i slik ákvæði verðlaunum
fyrir byggingarhraða. Stjórnvöld töldu nauðsyn á
þess háttar ákvæðum, þegar þau bundu lán hús-
næðismálastjórnar byggingarvisitölu að nokkru
leyti.
Með þessu móti fengist bót á málunum. íbúða-
kaupendur vissu betur, að hverju þeir gengju, en
gerist þeim tilvikum, sem húsbyggjendum tekst
að knýja fram visitöluákvæði, og byggjendur
fengju að minnsta kosti talsverða tryggingu fyrir '
skakkaföllum, sem harkalegar gengisfellingar og
lamandi verðbólga valda þeim.
Á þessum efnum þarf að finna lausn. Þetta hef-
ur alltof lengi verið látið slarka.
-HH.
Kúga fé út úr félags-
mönnum og atvinnu-
rekendum jafnt
ólympíuleikarnir hafa
sett mikið ofan á undan-
förnum árum, þar sem
menn hafa hiklaust notað
þennan vettvang til póli-
tisks þrefs og jafnvel
hryðjuverka. Til viðbótar
því öllu hafa þeir nú dreg-
izt inn í vinnudeilur í
Kanada, gestgjafa ólym-
píuleikanna 1976.
Verkamenn lögöu niöur vinnu i
ólympiubænum og á öörum bygg-
ingarsvæöum i Quebec núna i
vikunni I mötmælaskyni viö til-
lögur sérstaklega skipaörar
nefndar um hreinsanir innan
byggingariönaöarins.
Þeir, sem standa aö ólympiu-
leikunum og skipuleggja þá,
segja að ástandiö sé orðiö mjög
alvarlegt og horfur tvisýnar um,
hvort nokkuð veröi af leikunum.
Simon St. Pierre, varaforseti
framkvæmdanefndar ólympiu-
leikanna, sagöi á dögunum: „Ef
yfirstandandi deilur leysast ekki
senn, verðum viö mjög illa stadd-
ir.”
Nefnd, sem sett var á laggirnar
til að rannsaka hag byggingar-
iönaöarins I Quebec, hefur gagn-
rýnt stjórnvöld mjög harðlega
fyrir dugleysi og linkind gagnvart
ofbeldisaðgerðum verkalýösfé-
laganna. — Formaður nefndar
þessarar er Robert Cliche dóm-
ari.
t skýrslu nefndarinnar eru at-
vinnurekendur einnig gagnrýndir
fyrir að hafa reynt að múta leiö-
togum verkalýðsfélaganna. Ekki
aðeins til þess aö losa fyrirtæki
sin út úr fjárþvingunum þessara
samtaka — sem þykja á stundum
starfa ámóta og þau samtök, sem
ánetjuðust glæpahringum i
Bandarikjunum, þegar verst lét
þar —heldur lika til að fá verka-
lýðsleiötogana til aö snúa aftur til
vinnu verkamönnum, sem eiga
raunverulega um sárt aö binda,
annaöhvort i kjörum eöa aðstööu
á vinnustaö.
Haröoröastir voru þó nefndar-
menn i garð leiðtoga þessara fé-
laga, sem hafa meö blygöunar-
lausum fjárþvingunum neytt
stórfé út úr byggingafyrirtækjum
og verktökum með verkfallshót-
unum. Það er ekki aðeins, aö
þessir forráðamenn félaganna
hafi þvingaö fé út úr atvinnurek-
endum, heldur einnig út úr fé-
lagsmönnum með hótunum um
vinnumissi eða jafnvel likams-
meiöingar.
Nefndin gerir ýmsar tillögur,
sem miöa i hjartastaö þessarar
spillingar. M.a. annars gerir hún
tillögur um nýjar aöferöir viö
mannaráðningar, sem mundu
draga mjög úr áhrifum og aö-
stöðu samtakanna. Þau hafa haft
aðstöðu til þess aö láta eigin fé-
lagsmenn sitja i fyrirrúmi um
vinnu og notaö hana til þess aö
þvinga nýráöna til þess aö greiöa
inntökugjöld I samtökin meö litl-
úm réttindum, eöa jafnvel notaö
aöstööuna til að útiloka frá ráön-
ingu þá, sem eru samtökunum
eöa forystu þeirra ekki nógu
þægir.
Verkalýössambandið i Quebec
lét sina félagsmenn leggja niður
vinnu þegar i stað, er skýrsla
nefndarinnar sá dagsins ljós. Lét
sambandið i þaö skina, að rikis-
stjórnin ætti ekki að skipta sér af
þessum málum.
En nokkrum dögum siöar lagöi
stjórn Quebec fram frumvarp á
Quebec-þingi, sem fól i sér tillögu
um að svipta fjögur verkalýðs-
samtök Quebec fjárforræöi og
setja yfir þau fjárhaldsmann. —
Þetta var að tilhlutan nefndarinn-
ar. — Auk þess fól frumvarpið i
sér, að settar yrðu strangar regl-
ur, sem miðuðu að þvi að fyrir-
byggja, að innan félaganna kæm-
— Nota sér nú ólympíuleikana
til að verja spillinguna
Séöyfir byggingarsvæöin, þar sem ólympiubærinn ó aö risa.
Illlllllllll
JMFMI
Umsjón: G.P.
ust til áhrifa óæskilegar
persónur.
Eins og sakir standa núna, hafa
verkalýðsfélögin einu trompinu
fleira en hiö opinbera: Verkfallið
á byggingasvæðum I austurhluta
Montreal, þar sem ólympiuleik-
arnir eru fyrirhugaðir, er þeim
sterkt vopn. Stjórnvöld verða aö
vega og meta hættuna á þvi, að
þau standi uppi með hálfbyggðan
ólympiubæinn, þegar leikarnir
eiga aö hefjast. Annars vegar
togast á hjá þeim skuldbindingar
viö alþjóölegu ólympiunefndina
nefnt þann möguleika enn sem
komiö er.
Menn velta þvl fyrir sér, hvort
stjórn Roberts Bourassa i Quebec
standi nógu styrkum fótum til
þess að geta gripið til nauðsyn-
legra aögerða. Þrir þingmenn
frjálslyndra náðu kjöri i Quebec
með aöstoð verkalýðssamtak-
anna i kosningunum 1973. Sumir
Quebecráöherrarnir hafa sýnt sig
i þvi að vera hikandi við að beita
verkalýössamtökin hörðu.
Eftir stendur þó yfirlýsing Bou-
rassa forsætisráðherra Quebec
um að hann muni ekki hika við að
fórna ólympiuleikunum I þessari
baráttu.
Cliche-nefndin skýrði frá þvi,
að rannsóknir hennar heföu leitt i
ljós, að innan verkalýðssamtak-
anna úði og grúði af svindlurum,
afbrotamönnum og öðru hyski. —
Hún komst að raun um, að sumir
leiðtogarnir komu slnum vilja
fram við atvinnurekendur og fé-
lagsmenn sina jafnt með flokkum
Þetta er likan af olympiubænum, eins og hann á aö llta út fullgeröur I
Montreal. Þessir fjórir 18 hæöa hálfpýramidar eiga aö hýsa um 10.000
iþróttamenn og fararstjóra.
og hins vegar sú vissa, að verði.
ekki spyrnt við fótum núna, þá
fæst aldrei friður á vinnumark-
aðnum fyrir spillingaröflum.
Fram til þessa hafa stjórnvöld
ekki látið neinn bilbug á sér finna.
Forsætisráðherra Quebec lýsti
þviyfir, að félagsmálin yrðu látin
sitja i fyrirrúmi fyrir ólympiu-
leikunum, nauðsyn fram yfir leik.
— Hann var studdur af forsætis-
ráðherra Kanada, sem tók i sama
streng.
Samt er engin vissa fyrir þvi,
að stjórnvöld vilji taka skrefið til
fulls. Einn nefndarmanna Cliche-
nefndarinnar hglt þvi fram, að
sennilega yrði áð setja á laggirn-
ar byggingarfyrirtæki rikisins til
þess að hreinsa til i þessari at
vinnugrein. Stjórnvöld hafa ekki
ofbeldismanna sem beittu likams-
meiðingum hiklaust. Sumir á-
hrifamanna félaga, sem virtust
berjast i bökkum fjárhagslega,
áttu i sinum einkabankabókum
innistæður, sem námu tugum
milljóna króna. Aðrir virtust ekki
sjá ástæðu til aö aðgreina sinar
persónulegu fjárreiður eða sjóði
happdrætta félaga sinna, lifeyris-
sjóði og aðra lánasjóði.
1 einu tilviki hafði „trúnaðar-
maður” á vinnustað aga á félags-
mönnum með aðstoð skamm-
byssu, sem hann bar á sér.
Svo skiljanlega þykir mönnum
ástandið orðið alvarlegt og ekki
við stjórnvöld að sakast, þótt
þeim finnist ólympiuleikarnir
verða að sitja á hakanum, ef svo
ber undir.