Vísir - 16.05.1975, Blaðsíða 9
Vlsir. Föstudagur 16. mai 1975.
9
URSLITAKEPPNI
ÍSLANDSMÓTSINS
í SVEITAKEPPNI
LÝKUR UM HELGINA
(Jrslitakeppni islandsmótsins
I sveitakeppni hófst I gærkvöldi i
Domus Medica og taka eftir-
taldar sveitir þátt I henni:
1. Sv. Braga Jónssonar TBK
2. Sv. Þóris Sigurðssonar BR
3. Sv. Jóns Hjaltasonar BR
4. Sv. Hjalta Eliassonar BR
5. Sv. Þórarins Sigþórss. BR
6. Sv. Þórðar Eliass. Akran.
7. Sv. Boga Sigurbjörnss. Sigluf.
8. Sv. Helga Sigurðssonar BR
*
Þóris og Jóns
Helga og Þórðar
A sunnudag verða einnig tvær
umferðir og spila saman i þeirri
fyrri sveitir
Hjalta og Þóris
Þórarins og Braga
Þórðar og Boga
Jóns og Helga
og I þeirri seinni sveitir
Braga og Þórðar
Þóris og Þórarins
Jóns og Hjalta
Helga og Boga.
t slðustu umferðinni siðdegis
á mánudag spila saman sveitir
Þórarins og Jóns
Þórðar og Þóris
Boga og Braga
Hjalta og Helga.
Núverandi íslandsmeistarar i
sveitakeppni eru sveit Þóris
Sigurðssonar frá Bridgefélagi
Reykjavikur.
Spilað verður alla hvitasunnu-
helgina i Domus Medica og á
laugardag verður sýningartafl-
an tekin i notkun.
í kvöld spila saman sveitir
Helga og Þórarins
Þórðar og Hjalta
Boga og Jóns
Braga og Þóris
A laugardag verða tvær um-
ferðir og þá spila saman I fyrri
sveitir
Jóns og Braga
Hjalta og Boga
Þórarins og Þóröar
Þóris og Helga
og I þeirri seinni sveitir
Boga og Þórarins
Braga og Hjalta
Frá Barómeterkeppni BR I tilefni af heimsókn Svisslendinga. Bigat
snýr baki við myndavélinni, en t.v. við hann er Ragnar Halldórsson
forstjóri. Bernasconi situr andspænis Bigat og Kristinn Bergþórsson
t.h. er að enda við að sleppa sagnmiðanum á borðið. Tryggvi Gislason
hefur staldrað við borð Svisslendinganna til að fylgjast með.
FALLEGT
VARNARSPIL
I seinni landsleik Sviss og is-
lands nú á dögunum kom fyrir
athyglisvert spil, sérstaklega
hvað snertir varnarspila-
mennskuna.
Staðan var allir utan hættu og
vestur gaf
9 8 4
7 2
A 8 2
D 10 7 6 2
* D 10 5 3
V 9 4
4 G 5 4
4 KG54
4 AK6
V K 8 6
♦ 10 9 6 3
* A 8 3
t lokaða salnum gengu sagnir
á þessa leið:
4
¥
♦
*
4
¥
♦
4
G 7 2
A D G 10 5 3
K D 7
9
Vestur
Slmon
1 ¥
2 ¥
3¥
Norður
Besse
P
P
P
Austur
Stefán
1 4
P
P
Suður
Trad
P
2G
P
Norður spilaði út laufasexi,
gosi og ásinn áttu slaginn. Hann
spilaði tigli og kóngur sagnhafa
átti slaginn. Þá kom tigul-
drottning, einnig gefin og siðan
þriðji tigull, sem norður varð að
drepa með ás. Hann spilaði sið-
an spaöa og Trad tók tvo hæstu
og spilaði fjórða tiglinum.
Nú var sama hvað sagnhafi
gerði, norður kastar þriðja
spaðanum sinum og engin leið
er að vinna spilið.
Þetta var falleg vörn hjá
Svisslendingunum, en sagnhafi
gat unnið spilið, þótt þvi fylgdi
meiri áhætta. Spili Simon
spaða i þriðja slag, þá drepur
Trad, spilar tigli og Besse
verður að gefa og enn kemur
spaði og nú læsist Besse inni á
tigulás.
Hann verður nú annaðhvort
að spila blindum inn á lauf eða
spaða og nú er hægt að svina
trompkóngnum af suðri.
A hinu borðinu spiluðu Sviss-
lendingarnir tvö hjörtu og unnu
þrjú og græddi Sviss þvi fimm
stig á spilinu.
Þjóðarskútu er skellt í naust
Það er fátt betra en það að gera ekki neitt
i tvo til þrjá daga og hvila sig svo vel og
lengi á eftir, segja Spánverjar. Það er
nokkuð til i þessu hjá þeim og ekki laust
við að manni finnist sumir hér uppi á Is-
landi fara eftir þessu. Slikt er ekkert
undarlegt, þar sem Spánn virðist vera
orðinn annaö föðurland margra hér. En
nú er sólin farin að skina á okkur og mér
er ekki grunlaust um að þetta sé sama
sólin og hellir geislum sinum yfir Spán-
verja.
Gæfuhjól mitt greitt nú snýst
á götu er ég ekki þekki.
En ef það springur er vafalaust vist
aö varadekk fáist ekki.
Þeir ætla meira að segja að vera búnir að
stjórna landinu fyrir hvitasunnu. Finnst
mér það vel að verki verið og enn eitt
dæmi um það hvilik ofurmenni þeir eru.
Þjóðarskútu er skellt i naust,
skrambi er litill hlutur minn.
Allt fram streymir endalaust,
ef undanskilinn er þingtiminn.
Svo er okkur sagt að taka vetrar-
hjólbarðana undan bilnum og setja
sumardekkin undir. Ef þetta er ekki gert
fyrir ákveðinn tima er billinn tekinn og
hann settur inn, þótt þetta sé auðvitað
alls ekki honum að kenna. En það er æði
oft þannig aö þeir saklausu verða að liða
fyrir brot annarra.
Að ganga sjálfsagt ágætt er
og ýmislegt með þvi fengið.
Ef gengiö er fram af sjálfum sér,
mér sýnist full langt gengið.
Eitt af þvi sem hægt er að gera sér til
dundurs á sumrin er aö stunda iþróttir.
íslendingar hafa alltaf staðið sig vel i
þeim. Þó eru tvær greinar iþrótta, sem
þeim hefur gengið áberandi best i og eru
þær skák og bridge. Er þvi ekki að furða
þótt þessar greinar séu ekki viöurkenndar
af l.S.I. Nú um daginn komu hingað
svissneskir bridgespilarar og er skemmst
frá þvi að segja að islendingar sigruðu þá
glæsilega.
Það er sem sagt öruggt mál að sumarið
er komið. Þetta sést raunar á fleira en
sólskininu. Þaö sést m.a. á þvi að nú
standa fyrir dyrum sumarfri þingmanna.
tslendinga elti lán,
— þaö æöi sjaldan henda kann —
Þeir settu hina hundrað dán
er höfðu þeir talaö við ráðherrann.
Að sigra oss er engin von
A tslandi I lengd og bráð.
Það er ef Einar Agústsson
þeim útlendu gefur stjórnarráð.
önnur grein iþrótta sem við höfum náð
umtalsverðum árangri i, fyrir utan
auðvitað islenzku glimuna er lyftingar.
Þessu til sönnunar eru frásagnir i blöðun-
um um alla þá verðlaunapeninga, sem
okkar menn hefðu fengið ef þeir hefðu
verið sendir til keppni á mót i Sviþjóð,
sem haldiö var fyrir skömmu.
Ef við sendum islending
til útlanda að keppa,
engan gefur gullpening
gæfan oss að hreppa.
En ef við sendum engan mann,
eins og núna í vetur,
gæfan ætið eltir hann
og enginn sigraö getur.
Enn eitt dæmið um að vorið er komið er
það, að skólúm lýkur. Kennarahá-
skólanum lýkur meira að segja og ætti
kannski að vera lokiðfyrir löngu, þvi að ef
nemendur hans geta lært nóg á rúmlega
hálfu skólaári, hvers vegna þá að vera að
pina þá i skóla hinn helminginn.
Ef langar einhvern æðri mennt
ósköp við að glima,
I upphafi skal allvel kennt
aldrei að mæta i tima.
Ég var að horfa á sjónvarp um daginn.
Fyriraugum minum varð þátturinn Kast-
ljós. Kom þar fram að samkvæmt þvi
kaupi, sem visitölufjölskylda þarf, ætti ég
a.m.k. að vera dauður, gott ef ekki kona
min lika, eða svona hér um bil. Nú er ég
auðvitað alls ekki viss um, hvort ég er lif-
andi eða dauður. Um það veröa aðrir að
dæma.Hitt er vistað, ef ég er dauður, þá
hef ég lent á vonda staðnum.
Mikið hef ég reynt af raunum.
i reynd þó hef ég fundið:
Að andast af sinum eigin launum
er erfiðleikum bundið.
Þar sem allt logar i verkföllum um
þessar mundir er ég i dálitlum vafa um,
hvort ég á að halda áfram með þáttinn
eða fara I það, sem kallað er samúðar-
verkfall meö einhverjum. Og þegar ég fer
að hugsa málið finnst mér ekkert sjálf-
sagðara en að fara i samúðarverkfall með
flugfreyjum t.d. á Malljorku eða Austur-
riki.
Ég þrái eins og fleiri sólgyllta sanda
og suöandi fjallalæk.
Hugur minn flýgur til fjarlægra landa,
þótt freyjurnar séu i stræk.
Þá er þættinum lokið. Ég vil þó taka það
fram til að forðast að saklaust fólk veröi
fyrir aðkasti, að allt efni þessa þáttar er
eftir undirritaðan.
Engar persónur tilgreindar i þættinum
eiga sér stoð i raunveruleikanum.
Ef einhver telur samt sem áöur hann
sjá sjálfan sig i einhverju sem ég hef sett
fram á þessari siðu, og óvægilega að sér
vegið er honum vinsamlegast bent á að
fara i mál við Indriða G. Þorsteinsson.
Ben. Ax.