Vísir - 16.05.1975, Side 17
Vísir. Föstudagur 16. maí 1975.
17
Leikgrind eða ekki.
Sjálfsagt eru skiptar
i SÍÐAN J
Umsjón:
Edda
Andrésdóttir
Börnum er
hœttara í
umferðinni
vegna þess...
— að umhverfi það, sem barnið
lifir f, er skipulagt með þarfir og
getu fullorðinna i huga.
— að til þess aö geta bjargað sér
á eigin spýtur I umferðinni þarf
einstaklingurinn á öllum sfnum
skilningarvitum að halda, en
börn hafa ekki þroskað hæfileik-
ann til að nota sin skilningarvit
fyrr en 10-12 ára gömul.
— að börn eru sjálfhverf, mynda
sér sinar eigin skoðanir og
hegðunarform og eiga mjög
erfitt með að setja sig f spor
annarra.
— að lltil börn taka flesta hluti
mjög bókstaflega og eru ekki
fær um að skilja að atburöir geti
breytzt.
Gleymid okkur
einu sinni -
og þiÖ gleymib
því alarei i
Leikgrind
eða
ekki?
skoðanir um það hvort
koma á barninu fyrir i
grind eða ekki. Margir
segja sem svo, að ef
barnið er sett i slika
nokkra tima á dag gef-
ist timi til þess að gera
ýmislegt á heimilinu
sem annars væri ekki
hægt. Aðrir hugsa hins
vegar sem svo að
grindin sé barninu eins
og fangelsi. Sumir
halda meira að segja
að barnið verði sérlega
„handótt” eins og sagt
er, loks þegar það
i sleppur úr grindinni.
Hægt er að fá ýmsar gerðir af
þessum svokölluðu grindum:
Gömlu ' trégrindurnar eða þá
nýrri gerð úr plasti með nælon-
neti. Þar verður að gæta þess að
netiö sé hvorki of þétt eða gisið.
Ef það er of þétt eyðileggur það
útsýni barnsins og gerir grind-
ina likasta búri.
Oft eru gólfin á plastgrindun-
um skreytt með litrikum mynd-
um. Það gerir barninu erfitt að
skera úr um hvað er leikfang og
hvað er mynd. En hvað sem um
grindumar er sagt, er sænski
bamasálfræðingurinn Kerstin
Sjöblom þeirrar skoðunar að
heppilegra sé að fá sér bama-
píu.
,,Ég hef alltaf verið mjög
mikið á móti grindunum og
aldrei skiiið hvar og hvernig á
að nota þær,” segir hún.
,,En þegar ég eignaðist mitt
þriðja bam og hin tvö voru á
þeim aldri að þau hjóluðu I.
gegnum allt húsið á þrihjólum
og öll gdlf voru þakin leikföng-
um þeirra, fengum við okkur
leikgrind handa yngstu stúik-
unni, svo hún gæti hvílt sig og
verið I friði.
En grindina notuðum við
mjög stuttan tima á daginn i
þrjár til fjórar vikur. Um leið og
hún byrjaði að skriða og hreyfa
sig varð grindin of þröng. Ég á
bágt með að imynda mér að
bam sem byrjað er að ganga
gæti verið I grind.”
Fyrir barni, sem er að byrja
aö skriða og reisa sig upp, opn-
ast nýir og spennandi heimar.
Það er skemmtilegt og lær-
dómsrikt að kynnast hlutum,
lyfta, henda fram fyrir sig,
bragða á hlutum og þreifa á
þeim. Að byrja að átta sig á
hlutum og finna samhengið með
ólikum herbergjum, að skriða
yfir þröskuldi og finna uppá-
haldsstaðinn sinn á mjúkri
mottu eða undir borði.
Aö sjá umhverfið frá ýmsum
hliðum og umfram allt að fá at-
hygli þeirra fullorðnu með þvi
að skríða á eftir þeim og risa
upp á móti þeim.
Barn þarf á allri þessari
reynslu að halda og það er hætta
á að löngun þess til að uppgötva
eitthvað nýtt dofni smám sam-
an ef það er sett i þrönga grind,
þar sem það sér umheiminn að
einsá milli grinda eða í gegnum
net og hefur aðeins nokkur út-
valin leikföng hjá sér.
I dag eru til ýmsir hlutir sem
gera það auðveldara að leyfa
baminu að vera frjálst. Ef stigi
er I húsinu eru til grindur sem
setja má fyrir stigann. Við-
kvæma hluti má einfaldlega
setja til hliðar svo barnið geti
verið frjálst.
Áður en maður fær sér grind
ætti maður að spyrja sjálfan sig
að þvi til hvers ætti að nota
hana. Sem barnapössun eða
sem ágæta hjálp örstuttan tima
I senn?
I BREIÐHOLTI
nýtt útibú að Völvufelli 21. íbúar
í Breiðholti III þurfa því ekki
lengur að sækja bankaviðskipti
sín í bæinn. Þeir geta sparað
sér tíma og fyrirhöfn með því
að beina viðskiptum sínum til
okkar.
Opiö 9.30-12,13-16 og 17-18.30.
LEITIÐ EKKI LANGT YFIR SKAMMT.
Iðnaóarbankínn
Völvufelli 21 Breiðholti III Sími 74633.