Vísir - 16.05.1975, Qupperneq 20
2Ö
Visir. Föstudagur 16. mai 1975.
ÚTVARP OG SJÓNVARP UM HELGINA
„Heimsókn" á hvítasunnudag klukkan 20.15:
ÚTVARP •
Jóhann vitavörður heimsóttur
ómar Ragnarsson hefur þróaö með sér sérstaka tækni sem gerir
honum kleift aö fljúga flugvél og taka myndir i sömu andránni.
Hann tekur um stýriö meö tánum og smellir svo af meö fingrunum
segir i þjóösögunni. Þessa mynd tók hann er hann flaug ásamt sjón-
varpsmönnum yfir Hornbjarg.
Séð yfir vitann á Hornbjargi.
Sjónvarpsmenn i Hornbjargi ásamt Jóhanni Péturssyni vitaverði,
sem er lengst tii hægri á myndinni. Sjónvarpsmennirnir eru frá
vinstri Oddur Gústafsson hljóömaður, Þrándur Thoroddsen stjórn-
andi og örn Harðarson, sem stendur þarna viö Eclair myndavélina
sina.
örn Ifaröarson mundar Beaulieu kvikmyndatökuvélina er Arvakur
siglir fyrir Horniö. Ljósmyndir ómar Ragnarsson.
Sjónvarpsmenn sigldu noröur
á Hornbjarg siöustu vikuna I
april til aö heimsækja Jóhann
Pétursson, sem veriö hefur
vitavörður þar siðastliðin 15 ár.
Sjónvarpsmennirnir, sem voru
þarna á ferö, heita Ómar Ragn-
arsson, sem hafði umsjón meö
öllu og tók auk þess myndirnar,
sem viö birtum hér á siöunni,
Þrándur Thoroddsen, sem
stjórnaöi kvikmyndatöku, örn
Harðarson, sem tók myndina,
og Oddur Gústafsson, sem sá
um aö hafa hljóö meö myndinni.
Eitt og annaö gerðist i þessari
ferö, sem ekki kom kvikmynda-
tökunni viö, til dæmis tóku sjón-
varpsmenn meö góöri aðstoð
áhafnarinnar á varöskipinu Ar-
vakri brezkan togara i landhelgi
þegar siglt var heim á leiö á ný.
Myndin sem sýnd veröur á
sunnudagskvöldiö er bæöi tekin
á landi og eins úr flugvélinni
hans Ómars sem flaug yfir
Hornbjarg áður en haldið var .til
Reykjavikur á ný. —JB
SJÚNVARP •
Sunnudagur
18. mai
Hvitasunnudagur
17.00 Hátiöarmessa Sr. Óskar
J. Þorláksson, dómprófast-
ur, predikar og þjónar fyrir
altari.
18.00 Stundin okkar 1 þessum
barnatíma, sem er sá sið-
asti að sinni, lenda bræð-
urnir Glámur og Skrámur i
nýju ævintýri. Sýnd verður
mynd um Robba eyra og
Tobba tönn og brúðuleikur
um meistara Jakob, sem að
þessu sinni reynir hæfni
sina sem barnfóstra. Loks
verða svo sýndir þættir úr
sýningu Þjóðleikhússins á
Kardimommubænum eftir
Torbjörn Egner og rætt við
nokkur börn sem taka þátt i
sýningunni.Umsjónarmenn
Sigriður Margrét Guð-
mundsdóttir og Hermann
Ragnar Stefánsson. Fram-
vegis i sumar verður annað
bamaefni flutt á þessum
tima á sunnudögum.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.15 Heimsókn. „Maður er
aldrei einn...” Sjónvarps-
menn heimsóttu Horn-
bjargsvita um sumarmál,
einu mannabyggðina á
nyrsta hluta Vestfjarða-
kjálkans, og kynntust lltil-
lega kjörum og viðhorfum
Jóhanns Péturssonar, sem
verið hefur vitavörður þar
siðastliðin 15 ár. Umsjón
Ómar Ragnarsson. Stjórn
kvikmyndunar Þrándur
Thoroddsen.
21.00 Albert Schweitzer þýsk
heimildamynd um franska
visindamanninn, trúboðann
og listamanninn Albert
Schweitzer og æviferil hans
allt frá fæðingu hans árið
1875 og fram til ársins 1955.
Schweitzer er sjálfur þulur
og textahöfundar myndar-
innar og segir þar frá upp-
vaxtarárum sinum, náms-
ferli og starfi sinu sem
læknir og trúboði i Afriku.
Þýðandi Auður Gestsdóttir.
22.10 Birtingur (Candide)
Breskt sjónvarpsleikrit,
byggt á samnefndri skáld-
sögu Voltaires, sem út hefur
komið í islenskri þýðingu
Halldórs Laxness. Leik-
stjóri James MacTaggart.
Aðalhlutverk Frank Finlay
(Voltaire), Ian Ogilvy
)Birtingur), Emrys James
(Altunga), Angela Richards
(Kúnigúnd). Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir. Sagan um
Birting er nöpur ádeila á
heimspólitikina og raunar á
flest, sem miður fer I sam-
skiptum þjóða og einstak-
linga. Hún kom fyrst út árið
1759, en á þó vafalaust enn
fullt erindi til fólks. Aðal-
persónan er ungur efnispilt-
ur, sem á vingott við greifa-
dótturina Kúnigúnd. Fyrir
vikiðeru þau bæði útlæg ger
úr rikinu, og þar með byrjar
ævintýralegt ferðalag með
hrakningum til og frá um
heimsbyggðin.a.
23.40 Dagskrárlok.
Mánudagur 19. mai
Annar i hvitasunnu
18.00 Endurtekiö efni Tólf
reiðir menn. Bandarisk bió-
mynd frá árinu 1957, byggð
á leikriti eftir Reginald
Rose. Aðalhlutverk Henry
Fonda, Lee J. Cobb og Ed
Begley. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. Myndin lýsir
réttarhöldum yfir pilti, sem
sakaður er um, að hafa
drepið föður sinn, og eru
málsatvik honum flest i ó-
hag.Einn kviðdómenda talar
þó hans máli. Áður á dag-
skrá 12. ágúst 1974.
19.30 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Lénharðus fógeti. Kvik-
mynd byggð á leikriti eftir
Einar H. Kvaran. Texti Æv-
ar R. Kvaran. Kvikmynda-
handrit Baldvin Halldórs-
son, Haraldur Friðriksson,
Snorri Sveinn Friðriksson
og Tage Ammendrup. Tón-
list Jón Nordal. Leikstjóri
Baldvin Halldórsson. Per-
sónur og leikendur í aðal-
hlutverkum: Lénharður
fógeti.. Gunnar Eyjólfsson,
Guöný á Selfossi... Sunna
Borg, Eysteinn úr Mörk...
Sigurður Karlsson, Torfi i
Klofa... Ævar R. Kvaran,
Ingólfur bóndi á Selfossi...
Rúrik Haraldsson, Magnús
...Gfsli Alfreðsson, Hólm...
Sigurður Hallmarsson,
Fyrsti Lénharðsmaður...
Flosi ólafsson, Helga i
Klofa... Þóra Friðriksdóttir,
Bjarni frá Hellum... Valur
Gislason, Freysteinn.. Jón
Júliusson, Kona Frey-
steins.... Ingunn Jensdóttir,
Hljóðupptaka og hljóðsetn-
ing Marinó Ólafsson. Klipp-
ing Erlendur Sveinsson.
Leikmynd og búningar
Snorri Sveirin Friðriksson.
Kvikmyndataka Haraldur
Friðriksson. Stjórn upptöku
Tage Ammendrup.
Sagan gerist i byrjun 16.
aldar, en þá voru miklar ýf-
ingar milli kirkju og verald-
legra höflngja á Islandi.
Fyrirmaður höfðingja á
Suðurlandi var Torfi sýslu-
maður Jónsson i Klofa á
Landi. Fulltrúi kirkjunnar
, var Stefán biskup Jónsson I
Skálholti. A Bessastöðum
sat umboðsmaður hirð-
stjóra Danakonungs. 1 upp-
hafi sögunnar situr Ingólfur
stórbóndi á Selfossi að búi
sínu. Tveir ungir menn lita
Guðnýju, dóttur hans, hýru
auga, Magnús fóstursonur
biskupsins i Skálholti, og
Eysteinn úr Mörk, sem er
efnalitill og af lágum ætt-
um. Þær fréttir berast, að
Lénharður fógeti fari um
sveitir með óaldarflokk
sinn, taki hús á bændum,
ræni búpeningi þeirra,
brenni bæi og svivirði kon-
ur. Skjótt dregur til tiðinda,
og hefur Torfi sýslumaður
forystu fyrir bændum.
21.50 Göreme Bresk fræðslu-
mynd um sérkennilegan, af-
skekktan dal I Tyrklandi.
Þýðandi Þórhallur Gutt-
ormsson. Þulur Ólafur Guð-
mundsson.
22.50 Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. mai
Hvitasunnudagur
9.00 Morguntónleikar.
11.00 Messa I Akureyrarkirkju
Séra Birgir Snæbjörnsson
predikar. Séra Pétur Sigur-
geirsson vigslubiskup þjón-
ar fyrir altari. Organleik-
ari: Jakob Tryggvason.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tónleikar.
13.00 Leitin að nýju tslandi
Fyrri hluti dagskrár um að-
draganda og upphaf vestur-
ferða af Islandi á 19. öld.
Bergsteinn Jónsson lektor
tekur saman. Flytjandi
ásamt honum: Sveinn
Skorri Höskuldsson
prófessor.
13.40 Dagskrárstjóri I eina
klukkustund Brian Holt.
ræðismaður ræður dag-
skránni.
14.40 Óperukynning: „Man-
on” eftir Jules Massenet
Einsöngvarar, kór og
hljómsveit Opera comique i
Paris flytja Pierre Mon-
treaux stjórnar. — Guð-
mundur Jónsson kynnir.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Ailtaf á sunnudögum
Svavar Gests kynnir lög af
hljómplötum.
17.15 Barnatimi: Geirlaug
Þorvaldsdóttir leikkona
stjórnarGeirlaug og nokkur
börn á barnadeild Land-
spitalans segja söguna um
„Manninn með húfuna”,
sem börnin hafa samið
sjálf. Ennfremur lesa þau
úr dæmisögum Esóps.
18.00 Stundarkorn meö Rögn-
valdi Sigurjónssyni.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.20 Um austrænan
hugsunarhátt og vestrænan
Sigvaldi Hjálmarsson flytur
erindi.
19.45 Frá tónleikum Kammer-
sveitar Reykjavikur i
hátiðarsal Menntaskólans
við Hamrahlið 20. f.m. a.
Konsert i D-dúr fyrir clarino
og hljómsveit eftir Leopold
Mozart. b. „Forleikur um
Gyðingastef” fyrir klari-
nettu, strengjakvartett og
pianó eftir Prokofjeff. c.
Brandenborgarkonsert nr. 5
i D-dúr eftir Bach.
20.25 Frá árdegi til ævikvölds
Nokkur brot um konuna i is-
lenzkum bókmenntum.
Fyrsti þáttur: „Við eigum
stúlku með augun blá”.
Gunnar Valdimarsson tekur
saman þáttinn. Flytjendur
auk hans: Helga Hjörvar,
Grimur M. Helgason og Úlf-
ur Hjörvar.
21.10 Frá samsöng Skagfirzku
söngsveitarinnar i Háteigs-
kirkju I marz. Einsöngvari:
Guðrún Tómasdóttir.
Undirleikari: Ólafur Vignir
Albertsson. Söngstjóri:
Snæbjörg Snæbjarnardóttir.
Söngsveitin syngur lög eftir
Pál Isólfsson, Mascagni,
Bruckner og Bach.
21.30 írskir og enskir helgi-
menn Séra Sigurjón Guð-
jónsson fyrrum prófastur
flytur erindi.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöldtón-
leikara. Ensk svita nr. 51 D-
dúr eftir Bach. Dse og
Nicolas Alfonso leika á
gitara. b. Fiðlukonsert nr. 2
f b-moll eftir Paganini.
Shmuel Ashkenasi og
Sinfóniuhljómsveitin i
Vinarborg leika, Heribert
Esser stjórnar. c. „Litið
næturljóð” eftir Mozart.
Filharmoniusveit Berlinar
leikur, Herbert von Karajan
stjómar. d. Flautukonsert i
D-dúr eftir Haydn. Valerie
Novak og hljómsveitin Con-
sertium Musicum leika,
Fritz Lehan stjórnar.
23.45 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.