Vísir - 25.08.1975, Blaðsíða 7
Visir. Mánudagur 25. ágúst 1975.
7
Gene Wilder gerir árangurslausar tilraunir til aö vekja þursann
til lifsins.
Mánaðar megrunarkúr í hverjum kassa.
Ayds fœst í flest öllum
lyfjabúðum um land allt.
FRANKENSTEIN HIN UNGI
OG BRÓÐIR SJÉRLÁKS HÓLMS
Kvikmyndir
tfrcsWuT'ca<J
Marty Feldman i myndinni
„Young Frankenstein”.
„Ævintýri hins gáfaöa bróöur
Sherlock Holmes” heitir kvik-
mynd, sem Gene Wilder hefur
samiö handritiö aö og er aö leik-
stýra og leika aöalhlutverkiö I
þessa dagana I Engiandi.
Gene Wilder vakti fyrst á sér
athygli sem leikari, þegar hann
lék útfararstjórann f myndinni
um Bonnie og Clyde. Skömmu
siöar lék hann i kvikmynd á
móti bandarisku leikkonunni
Ann Bancroft, þekktari sem Frú
Robinson i „The Graduate”. A
þeim tima var Ann Bancroft aö
slá sér upp með handrita-
höfundinum Mel Brooks og
þannig tókust kynni með Brooks
og Wilder. Þess má geta að Mel
Brooks er nú kvæntur Ann
Bancroft.
Brooks og Wilder tóku að
starfa saman. Brooks hélt
áfram að skrifa en hóf nú lika
að leikstýra en Gene Wilder
lagði fram leik sinn.
Eftir eina mynd slitu
félagarnir samvinnunni. Gene
Wilder fór aö leika i myndinni
Gene Wilder og Madeiine Kahn I
myndinni „Young Franken-
stein”. Gene Wilder leikur sjálf-
an Frankenstein yngri en Made-
iine Kahn ástkonu hans.
„Litli Prinsinn”, sem byggð er
á þeirri sígildu sögu og Mel
Brooks var að undirbúa kvik-
myndun á handriti sinu'
„Blazing Saddles”.
Handritið var á ýmsan hátt
furðulegt og þvi féll fyrsti aðal-
leikarinn, sem Brooks fékk til
starfa á kné og bað hann um að
losa sig úr þessari prisund.
Leikari númer tvö var fluttur I
burt i sjúkrabil á fyrsta degi
kvikmyndatökunnar. Mel
Brooks átti þvi engin önnur ráð
en aö hringja til Evrópu og biðja
Gene Wilder, sem hann vissi að
hafði svipaðan húmor og hann
sjálfur um að taka hlutverkið
að sér.
Gene W'ilder fékk kvikmynda-
töku „Litla Prinsins” hraðað og
flaug næsta dag til Banda-
rikjanna. Er myndin „Blazing
Saddles” leit svo dagsins ljós á
siöasta ári hlaut hún gifurlega
aðsókn áhorfenda og góða
dóma gagnrýnenda, en myndin
gerir mikið gys að kúreka-
myndunum gömlu.
Eftir þetta lék Gene Wilder
dýralækni, sem veröur ást-
fanginn af rollu I mynd Woddy
Allen „Evenj’thing You Always
Wanted To Know About Sex”,
sem sýnd var hér I Tónabiói
fyrir örstuttu.
En aftur slógu þeir Gene
Wilder og Mel Brooks saman
kröftum sinum I myndinni
„Young Frankenstein”, sem
þeir sömdu handritið að i sam-
einingu. Myndin var frumsýnd I
Evrópu fyrir stuttu og lýsir hún
þvi, er sonarsonur Frankenstein
gamla, sem stundar kennslu I
bandariskum háskóla fær
erfðaskrá afa slns upp i
hendurnar.
Hann heldur af stað til
Austurrikis, þar sem kastala
Frankensteins er að finna og
grefur upp leyndarmálið um,
hvernig vekja megi nýtt lif.
Tilraunirnar mistakast aftur á
móti og Frankenstein ungi situr
uppi með skrimsli, sem hlýðir
engum skipunum.
Brezki gamanleikarinn Marty
Feldman fer með hlutverk þjóns
Frankensteins og Gene Hack-
man leikur gamlan blindingja,
sem verður fyrir barðinu á
vanvita þursanum, sem
Frankenstein unga tekst að
skapa.
Myndin er raunar ekkert
nema sköpstæling á hrollvekj-
um liðinna ára, meira að segja
tekin I svarthvitu til að færa
okkur enn nær draumamyndun-
um gömlu.
1 myndinni, sem Gene Wilder
vinnur nú að, fjallar hann um
Sigerson hinn sjúklega af-
brýöissama bróður þess fræga
Sherlock Holmes.
— Sigerson hefur orðið að
dvelja I frægðarskugga eldri
bróöur slns I 35 ár. Mér fannst
timi til að kynna þennan mann
fyrir almenningi, segir Gene
Wilder um þessa uppfinningu
sina.
— Sigerson telur að öll gæfa
Sherlock sé byggð á heppninni
einni en kýs sjálfur aö vinna
mjög yfirvegað og atvinnu-
mannslega, segir Gene Wilder.
Mynd þessi er sú fyrsta af
fjórum,sem Gene Wilder leik-
stýrir og skrifar fyrir 20
Century Fox. Auk Gene Wilder
taka að sjálfsögðu þátt I
gamninu Marty Feldman, sem
leikur Orville eins konar Dr.
Watson yngri bróöurins og
Madeline Kahn, sem bæði hefur
leikið með Gene Wilder I
„Blazing Saddles” og „Young
Frankenstein”,leikur kráar-
söngkonuna ' Jeannie. -JB.
Umsjón: Jón
Björgvinsson
„Maður getur ekki verið feitur og verið dansari
samtimis, það er alveg áreiðanlegt. Og þar sem
éger að læra að semja dansa, þá er dansinn stór
hluti dagsverks mins. Mótdansarar minir, sem
þurftu að lyfta mér,næstum 75 kg á þyngd, voru
að gefast upp á áreynslunni.
Maður hefði nú getað haldið, að allar þessar æf-
ingar myndu halda þyngdinni i skefjum, er það
ekki? En öll sú orka, sem maður notar, krefst
mikils matar og ég borðaði einmitt alla röngu
fæðuna. Brauð, súkkulaði, sætindi — ég þarfnast
þessa, var ég vön að telja mér sjálfri trú um. En
linurnar þörfnuðust þessa ekki og ég var að
verða eins og klpmpur I laginu.
Ég fór i heimskulega megrunarkúra, en mér
fannst ég verða máttvana af þeim, og ég gat ekki
dansað almennilega. Þá varð ég að taka aftur
upp gömlu, slæmu matarvenjurnar minar og
viðbótarkílóin voru fljót að koma. Þetta var
vitahringur, sem ég gat ekki komizt út úr. Fyrr
en ég uppgötvaði Ayds.
Það sem mig furðaði — og mér er sama, þó að ég
viðurkenni, að ég hafi verið hissa — var það, að
ég gat farið i megrunarkúr og verið samt sem
áður full lifsorku. Ég býst við þvi, að það sé
vegna vitaminanna og steinefnanna i Ayds. Alla
vega þá hjálpaði Ayds mér við að halda mig að
hitaeiningasnauðu fæði (mér!), þyngdin minnk-
aði og mér leið stórkostlega.
Ég hefði aldrei trúað, að ég gæti stundað
strangar likamsæfingar, verið i megrunarkúr,
létzt og liðið dásamlega samtimis. Var ég ekki
heppin að uppgötva Ayds”.
Eftir Anabel Helmore, eins og hún sagði Anne
Isaacs það.
Hvernig Ayds hefur áhrif. Visindamenn halda
þvi fram, að það sé hluti heilans, sem hjálpi þér
til að hafa hemil á matarlystinni. Það á rætur
sinar að rekja til magns glukosasykurs I blóðinu,
sem likaminn notar sem orkugjafa. Þannig, að
þegar magn glugkosans minnkar, byrjar þú að
finna til svengdar og þetta á sér venjulega stað
stuttu fyrir næstu máltið. En ef þú tekur 1 Ayd
(eða tvær) með heitum drykk (sem hjálpar lik-
amanum að vinna fljótar úr þeim) um það bil
tuttugu minútum fyrir máltið, eykst glukosinn i
blóöinu og þú finnur ekki til löngunar til að borða
mikið. Með Ayds borðar þú minna, af þvf að þig
langar i minna. Einn kassi Ayds inniheldur eins
mánaðar skammt.
Hvers vegna þú þarfnast Ayds- óháð þvi hver
þyngd þín er. Ayds innihalda engin lyf, né eru
þær til uppfyllingar. Þær innihalda vitamin og
steinefni — mjög mikilvæg til þess að vernda þá,
sem eru að megra sig og eru ekki vissir um að
þeir fái næg vitamin, þegar þeir borða mjög
hitaeiningarsnauða fæðu. Einnig finnst mörgu
fólki erfitt að halda sig að skynsamlegu fæöi.
Ayds hjálpar þeim einmitt við það. Þær hjálpa
þér við að endurhæfa matarlystina og halda
þyngd þinni eftir það I skefjum — vandamál,
sem er það sama, hvort sem þig langar til að
missa 2 kg eða 20 kg. Þú missir llklega nokkur
kiló tiltölulega fljótlega, en endurhæfing matar-
lystarinnar tekur alltaf nokkurn tima.
Byrjið Ayds kúrinn á morgun og
eftir mánuð gœtir þú
orðið nokkrum kílóum léttari.
„Æfingar gátu
ekki haldið þyngd
minni í skefjum fyrr
en ég uppgvðtaði
Ayds"
Anabel fyrir Ayds: 74 kg, 90 68 95, stærö 14.
Anabel eftir Ayds: 64 kg 85 6185, stærð 10
NB: Ef þúert alltof þung(ur), skaltu ráöfæra
þig við lækni þinn, áður en þú byrjar i megr-
unarkúr. Það er ekki mælt með Ayds kúrnum
fyrir'fólk, sem þjáist af offitu vegna efna-
skiptasjúkdóma. Sérhver Ayd inniheldur 25
hitaeiningar i mola og sérhver únsa er bætt
með: A vitamini 850 I.U., B1 vitamini
(Thiamine hydrochloride) 0.425 mg, B2 vita-
min (Riboflavin) 0.425 mg. Nicotinic acid
(Niacin) 6,49 mg, Calcium 216,5 mg. Fosfór
107.6 mg. Járn 5.41 mg.