Vísir - 25.08.1975, Blaðsíða 11
Vísir. Mánudagur 25. ágiist 1975.
Visir. Mánudagur 25. ágiist 1975.
124 mörk
í 1. deild
Staöan 11. deild eftirleikina um helgina, en
þar hafa verið skoruð 124 mörk til þessa:
Keflavik—IBV 0:0
KR-FH 1:1
Fram—Vikingur 1:0
Akranes 12 7 3 2 28:13 17
Fram 138 14 18:14 17
Vikingur 13 5 3 5 15:12 13
Keflavik 13 4 5 4 13:12 13
FH 13 4 5 4 11:19 13
Valur 12 4 4 4 16:15 12
IBV 13 2 5 6 11:21 9
KR 13 2 4 7 12:18 8
Markhæstu menn:
Matthias Hallgrimsson Akranes 9
örn Óskarsson tBV 8
Marteinn Geirsson Fram 7
Guðmundur Þorbjörnsson Val 7
Teitur Þórðarson-Akranes 7
Steinar Jóhannsson Keflavik. 6
Atli Þór Iléðinsson KR 5
Næstu leikir:
Valur—Akranes á Laugardalsvellinum I
kvöld. FH—Vikingur, Akranes—Keflavik og
KR—IBV á laugardaginn, og Fram—Valur á
sunnudag.
180 mörk
í 2. deild
Staðan i 2. deild eftir leikina um helgina, en
þar hafa nú verið skoruð 180 mörk til þessa:
f Armann—Selfoss
Breiðablik—Þróttur
Völsungur—Haukar
Vikingur Ó.—Reynir A
Breiðablik
Þróttur
Armann
Selfoss
Haukar
Völsungur
Reynir A
Vikingur ó
0 1 48:8 24
1 2 27:13 21
4 3 22:16 16
5 3 25:19 15
1 8 20:24 9
3 7 14:29 9
1 9 14:29 7
1 11 10:42 3
Markhæstu menn:
Sumarliði Guðbjartsson Selfoss 13
Hinrik Þórhallsson Breiðablik 13
ÞórHreiðarsson Breiðablik 9
Ólafur Friðriksson Breiðablik 9
Hreinn Eiliðason Völsung 7
Sverrir Brynjólfsson Þrótti 7
Loftur Eyjóifsson Haukum 7
Þorvaldur 1. Þorvaldsson Þrótti 7
Næstu ieikir:
Selfoss—Breiðablik og Reynir A.—Völs-
ungur á laugardaginn, og Haukar—Ármann
og Þróttur—Vikingur Ó. á sunnudag.
Guðgeir og
Ásgeir fá
góða dóma!
„Okkur gekk illa i tveim fyrstu leikjun-
um”, sagði Asgeir Sigurvinsson er við töluð-
um við hann i Belgiu I morgun. Við töpuðum
fyrir Beveren 1:0 og Beerschot 2:0 báðum á
útivelli. Það sama var upp á teningnum hjá
liði Guðgeirs Leifssonar, Charleroi, þeir töp-
uðu tveim fyrstu leikjunum —fyrir Lierse 3:0
og RWD Molenbeek 2:0, báðum á útivelli.
Um helgina gekk þetta betur hjá okkur,
enda lékum við þá á heimavelli. Viö hjá
Standard unnum, en lið Guðgeirs geröi jafn-
tefli. Það er talsvert skrifað um Guögeir
hérna í blööunum og fær hann mjög góða
dóma, þó að hann sé ekki enn búinn að ná
sinu bezta, — þvi þaö tekur nokkurn tima að
finna sig, þegar leikið er með atvinnumönn-
um”.
„Ég er mjög ánægöur með allt hérna”,
sagði Guðgeir, sem var I heimsókn hjá As-
geiri. „Okkur gekk ekki sem bezt til að byrja
með, en nú vonum viö að veröi breyting á.
Hér er heimavöllurinn mjög mikilvægur og
þakka menn fyrir aö fá annaö stigið á úti-
velli”.
Staöan I Belgiu er þannig, að RWD Molen-
beek hefur unnið alla sina leiki og er með 6
stig, en á eftir koma mörg lið með 3 til 4 stig.
Tveir reknir
út af í leik
ÍBK og ÍBV
Heitt í kolunum í Keflavíkinni á
laugardaginn en ekkert mark var skorað
Seinustu minútur leiks IBK og
tBV á grasvellinum i Keflavik i 1.
deildinni á laugardaginn liktust
meira júdósýningu en knatt-
spyrnukeppni. Menn voru kná-
lega lagðir að veiii, ýmist með
handar eða fótabrögðum, svo að
dómarinn Grétar Norðfjörð sá sig
neyddan tii að visa einum leik-
manni úr hvoru liði af leikvelli,
þeim Friðfinni Finnbogasyni,
tBV og Einari Gunnarssyni, tBK.
í þessum leik skipti brottvikn-
ingin ekki miklu máli, þar sem
skammt var til leiksloka, aðeins
rúm minúta, en þar sem báðir
hinir brottreknu dæmast i leik-
bann, getur frumhlaup Einars og
Friðfinns haft örlagarikar af-
leiöingar fyrir bæði liðin. Keflvik-
ingar eiga á hættu að verða án
Einars i undanúrslitum bikar-
keppninnar gegn KR, og eins og
ÍBK-liðið er i dag mega þeir slzt
án hans vera. Eyjamenn eiga
einnig eftir þýðingarmikinn leik
við KR-inga innan tiðar, — bar-
áttuna um tilveruréttinn I 1. deild
og þurfa þvi á öllum slnum liðs-
styrk að halda.
Annars var gangur leiksins sá,
að Eyjamenn sóttu öllu meira I
leiknum, en opin tækifæri áttu
Keflvikingar öllu fleiri. Snilldar
markvarzla Eyjamanna barg
öðru stiginu og ef til vill 1.
deildarsætinu I þessum maka-
lausa jafnteflisleik.
Oftustu varnir beggja liða
ásamt markvöröunum áttu
þolanlegan leik, en tengiliðirnir
og framlinumennirnir sýndu fátt,
sem augað gladdi, og sum skot,
sérstaklega Eyjamanna, fóru
himinhátt yfir, eða nær hornfán-
um en markinu. Annars var
baráttan um völdin á vallarmiöi-
unni hörð og gekk á ýmsu, t.d.
svipti Grétar Magnússon fyrir-
liða Eyjamanna, Snorra Rútsson,
klæöum, — reif aðra buxnaskálm
hans, endilangt niður.
Framllna ÍBK fór fyrst að
skapa sér færi, eftir að Friðrik
Ragnarsson kom inn á, svo og
Guðjón Guðijóinsson, hinn leikni
og snöggi útherji, sem fyrir náð
og miskunn fékk að koma I leik-
inn, svona 5 til 10 minútur. Rétt er
að geta þess, að ölafur Júliusson,
landsliðsmaðurinn, gat ekki
leikið með IBK vegna meiðsla og
var það sannarlega skaði fyrir
IBK.
Örn Óskarsson var sá eini
framherja ÍBV, sem eitthvert
lifsmark var með, ef svo má að
orði kveða, en af varnarmönnum
voru þeir Ólafur Sigurvinsson,
sem er óðum að taka við sér eftir
meiðslin, Þórður Hallgrimsson
ásamt Einari Friðþjófssyni
traustustu stoðirnar.
Þetta eru leikmenn Breiðabliks, sem á föstudagskvöldið tryggðu sér sigur i 2. deild og þar með sæti 11. deild tslandsmótsins I knattspyrnu
næsta ár. Ljósmynd Bj. Bj.
Undarleg úrslit á loka-
sprettinum í 2. deildinni
Breiðablik vann sér sœti í 1. deild með stórsigri yfir Þrótti — jafntefli hjó
Ármanni og Selfoss 4:4 — og Víkingur og Völsungur sigruðu í sínum leikjum
Eins og sagt var frá á forsiðu
blaðsins á laugardaginn sigraði
Breiðablik Þrótt i 2. deild á föstu-
dagskvöldiö með fjórum mörkum
gegn einu ög tryggöi sér með þvi
sigur I deiidinni i ár. Breiðablik er
þar með komiö aftur upp 11. deild
— eftir tveggja ára fjarveru — og
Þróttur á möguleika á 1. deildar-
sæti með þvi að sigra neðsta liðið I
1. deildinni — KR eða IBV — I
aukaleik um „aukasætið”.
Leikur Breiðabliks á móti
Þrótti var mjög góöur og sigurinn
sanngjarn. En á meðan þessi
leikur var háður, fór fram ekki
KR NAÐI EKKII NEMA
ANNAÐ STIGIÐ
Er því enn á botninum í 1. deild
og á aðeins eftir að leika við ÍBV,
KR-ingarsitja enn á botninum i
1. deild eftir leikina um helgina,
en á laugardaginn léku þeir við
FH á Laugardalsvellinum og
náðu aðeins jafntefli 1:1. Þeir
hafa þvi hlotið 8 stig, en Vest-
mannaeyingar, sem fengu annað
stigið I Keflavik, eru meö 9 stig.
KR og IBV leika svo um næstu
helgi á Laugardalsvellinum og
verður það uppgjör um, hvort
liöið hafnar endaniega á botnin-
um i 1. deild.
Þaö kom strax I ljós, aö leikur-
inn á laugardaginn var tekinn
alvarlega af KR, þvi aö leikmenn
liðsins börðust eins og ljón allan
leikinn — en uppskeran var samt
ekki I samræmi víð alla barátt-
úna. Það sem háði KR-ingum
mest I leiknum var, að framllna
liðsins var algjörlega bitlaus og
var nú Atli Þór Héðinsson illa
fjarri, en hann gat ekki leikið með
vegna meiðsla, sem hann hlaut I
slðasta leik. Þá vantaði llka fyrir-
liðann Hauk Ottesen, en hánn var
i leikbanni.
KR-ingar voru sterkari aðilinn I
leiknum, en þeim gekk illa að
skapa sér marktækifæri þrátt
fyrir mikla yfirburði á miöjunni. I
fyrri hálfleik sköpuðust aðeins
tvö umtalsverð færi og áttu KR-
ingar bæði. 1 fyrra skiptiö tókst
varnarmönnum FH að hreinsa á
slðustu stundu eftir mikla pressu,
en I hitt skiptið bjargaði ómar
Karlsson með góðu úthlaupi.
Baldvin Eliasson náði svo for-
ystunni fyrir KR-inga I byrjun
seinni hálfleiks, eftir aö skot frá
Hálfdáni örlygssyni haföi verið
varið á marklinu, boltinn barst út
til Baldvins, sem var vel staösett-
ur og hann skoraði örugglega.
En fagnaðarlæti KR-inga urðu
skammvinn, þvi að einni mínútu
slðar voru FH-ingar búnir að
jafna. Þá fékk Leifur Helgason
boltann eftir ljót varnarmistök
hjá KR og úr þröngri aðstöðu
tókst honum að koma boltanum I
markið framhjá Magnúsi Guð-
mundssyni markverði.
Fleiri urðu mörkin svo ekki.
KR-ingar sóttu nærri látlaust það
sem eftir var leiksins, en tókst
ekki að skapa sér nein umtals-
verð tækifæri. Af og til áttu svo
FH-ingar upphlaup, sem ávallt
sköpuðu hættu, og svo þeir nær að
skora ef eitthvað var.
Hjá KR bar mest á Ottó Guö-
mundssvni. Ólafi ólafssyni,
Halldóri Björnssyni og
Stefáni Erni Sigurössyni. Bald-
vin Eliasson kom inn á i seinni
hálfleik sem varnamaður og stóð
sig vel.
En hjá FH-ingum bar mest á
Janusi Guðlaugssyni, Ólafi Dani-
valssyni og Leifi Helgasyni.
B p’ V
O
M
M
1
<%• J
slðri leikur I deildinni á Melavell-
inum. Þar áttust við Selfoss og
Armann, og lauk þeirri viöureign
með jafntefli — 4:4.
Selfyssingarnir höfðu eitt mark
yfir i hálfleik, 2:1, og þegar 10
minútur voru eftir af leiknum,
var staðan 4:1 fyrir Selfoss. En þá
tóku Armenningarnir heldur bet-
ur kipp og jöfnuðu 4:4 á næstu
fimm mínútum.
Mörk Selfyssinga höfðu gert
þeir Sumarliði Guðbjartsson þrjú
og Jakob Gunnarsson eitt, en
Smári Jónsson hafði þá skorað
eina mark Armanns. Ogmundur
Kristinsson markvöröur Ar-
menninga minnkaði bilið i 4:2
með marki úr viti, en slðan kom
Arnlaugur Helgason með 4:3 og
Kristinn Pedersen jafnaði 4:4,
þegar fimm mlnútur voru eftir.
I ólafsvlk sigruðu heimamenn i
slnum fyrsta leik I 2. deild I ár, er
þeir unnu Reyni Arskógsströnd
3:2. Bæði mörk Reynis skoraði
Björgvin Guðlaugsson, en fyrir
Viking skoruðu þeir Hilmar
Gunnarsson, Ólafur Rögnvalds-
son og Atli Alexandersson. Þessi
sigur Vikings kom heldur seint —
liðið er og verður i neösta sætinu I
deildinni úr þessu.
Gömlu landsliðsmennirnir —
Hreinn Elliðason og Magnús
Torfason — sáu um sigur Völs-
unga yfir Haukum á Húsavlk á
laugardaginn. Magnús skoraði I
fyrri hálfleik, en Guðjón Sveins-
son jafnaði fyrir Hauka skömmu
slðar. Þannig var staöan þar til á
slðustu mínútu leiksins, að
Hreinn kom boltanum i netið hjá
Haukunum og tryggði Völsungum
þar með sigurinn.
Engar
fréttir
af Sigurði!
Þrátt fyrir itrekaöar til-
raunir hefur okkur ekki tekizt
aö fá neinar fréttir af Sigurði
Sigurðssyni, sem var eini ís-
lendingurinn, sem tók þátt i
Evrópumóti unglinga i frjáls-
um iþróttum i Grikklandi um
helgina.
I fréttaskeytum frá mótinu
er hans hvergi getiö og okkur
tókst heidur ekki aö hafa upp á
honum né fararstjóranum I
Grikklandi. Sigurður átti aö
keppa I 100 og 200 metra
hlaupi.
Marteinn hélt vonar-
neistq Fmm lifandi
Skoraði eina mark Fram í leiknum við Víking í gœrkvöldi
og nú horfa Framarar bœnaraugum til Valsmanna, sem
mœta Skagamönnum ú Laugardalsvellinum í kvöld
Framarar koma eflaust til með
aö hvetja Vaismenn af krafti á
Laugardalsveliinum i kvöld, er
þeir rauö/hvitu mæta Akurnes-
ingum þar I 1. deildarkeppninni.
Fram eygir enn von á sigri i
deildinni — eftir sigur yfir Viking
I gærkvöldi — en til þess aö svo
verði, veröur Fram aö geta treyst
á sigur Valsmanna i leiknum I
kvöld.
önnur liö en þessi tvö hafa ekki
lengur möguleika á tslands-
meistaratitlinum — úr þvi var
endanlega skorið I leikjunum um
þessa helgi. Akranes á eftir að
mæta Keflavik á Akranesi og Val
I kvöld, en Fram á eftir að leika
við Val. I þessum þrem leikjum
ræöst efsta hæðin i mótinu en sú
neðsta I leik KR og IBV á Laugar-
dalsvellinum um næstu helgi.
Vlkingur átti glætu, ef sigur
hefði náðst yfir Fram I leiknum I
gær en Marteinn Geirsson — með
aðstoð frá félaga sínum, Kristni
Jörundssyni, og markverði Vlk-
ings.Diðrik ólafssyni — sá um að
gera þann draum að engu með þvi
að skora eina mark leiksins.
Það kom á 34. minútu fyrri
hálfleiks. Slmon Kristjánsson átti
þá sendingu inn að marki Vik-
ings, sem auðvelt átti að vera að
ráða við. Diðrik hljóp út úr mark-
inu og hafði hendur á boltanum,
en missti hann frá sér til Kristins,
sem skallaði yfir hann. Boltinn
var að svlfa yfir markllnuna,
þegar Marteinn kom að — rétt á
undan einum varnarmanni Vik-
ings — og sendi hann alla leið I
netiö.
Marteinn átti annað gullið tæki-
færi á siðustu sekúndu hálfleiks-
ins, er hann fékk sendingu út á
móti sér inn I vitateig Vikings, en
þá brást honum bogalistin —
skaut langt fram hjá marki.
Fyrri hálfleikurinn var jafn og
tækifærin állka mörg hjá báðum
liöum og munurinn var sá, að
Fram gat notað eitt af sinum og
þaö nægði I þessum leik eins og I
svo mörgum fyrri leikjum liðsins
I sumar.
1 siðari hálfleiknum voru Vlk-
ingarnir öllu aðgangsharðari og
voru oft nálægt þvl að jafna. En
frábær markvarzla Árna Stefáns-
sonar kom I veg fyrir það. Óskar
Tómasson átti t.d. gullið tækifæri
á 5. mln. hálfleiksins, er Stefán
Halldórsson sendi fyrir markið —
átti vlst að veröa skot — óskar
var broti úr sekúndu of seinn,
náði ekki I boltann, en sendi Arna
markvörð þess I stað I netiö.
Þá átti Gunnar örn stórglæsi-
legt skot á markið úr aukaspyrnu,
sem Arni varði meistaralega.
Hafði hann mun meira að gera I
markinu en Diörik I siðari hálf-
leiknum, enda tækifæri Framar-
ana frekar fá þó munaði litlu rétt
fyrir Ieikslok,, en einn af „gömlu
mönnunum” I Fram — Erlendur
Magnússon — komst einn að
marki Vikings og hafði aðeins
Diðrik til að glima við — en hann
þurfti ekkert að sýna, þvi Erlend-
ur hitti ekki markið úr fimm
metra fjarlægð!!!
Leikurinn i gærkvöldi var á
köflum ágætlega leikinn, en þó
heldur lengri og fleiri kaflarnir,
þar sem litið sem ekkert var um
að vera.
Varnirnar voru sterkustu
„deildir” liðanna og þeir, sem
þar léku, beztu menn þeirra.
Rúnar Gislason var einna frisk-
astúr I Fram-linunni, en I fremstu
linu Vlkings þeir Stefán Halldórs-
son og Óskar Tómasson — sá síð-
arnefndi var þó heldur of eigin-
gjam og markgráðugur.
Dómari var Valur Benedikts-
son og var svona sæmilegur eins
og flestir leikmennirnir..
—klp—
KR vann
alla
leikina
Körfuknattleiksfólk KR
sigraöi í öllum þrem leikjun-
um viö enska liöiö Staines I
tþróttahúsi Kennaraskólans i
gærkvöldi.
1 meistaraflokki karla sigr-
uöu KR-ingarnir meö 72 stig-
um gegn 56 f skemmtilegum
leik. t 3. flokki sigruöu þeir
34:19 og i meistaraflokki
kvenna meö 25 stigum gegn 4.
Sú bezta i enska liöinu
meiddist á æfingu á iaugar-
daginn og gat þvi ekki veriö
meö I þessum leik, og hrundi
þá allt enska liöiö til grunna,
eins og sjá má á stigatöflunni.
—klp—
Þaö skall oft hurö nærri hælum viö mark Fram i leiknum viö Viking I gærkvöldi. Hér var Stefán
Halldórsson nálægt þvi aö skora og liggur endilangur á vellinum á eftir.