Vísir - 25.08.1975, Blaðsíða 12
12
Visir. Mánudagur 25. ágúst 1975
Enska ■■ M I # I# •
Morkunum rigndi yfir
Englendinga á laugardaginn
Þrjátíu og níu mörk skoruð í 1. deild — tuftugu í þrem leikjum
Mörk, mörk og aftur mörk var
einkcnnandi fyrir leikinn i Eng-
landi á laugardaginn, i 1. deild
voru skoruð 39 mörk i 11 leikjum
— og Perby—QPR, Manchester
Utd.—Sheffield Utd. og Norwich-
—Aston Villa i þrcm leikjum uröu
mörkin 20!...
Mesta athygli vakti leikur Eng-
landsmeistaranna Derby, sem
léku gegn QPR á heimavelli.
Leikurinn varð hálfgerð martröö
hjá leikmönnum Dave Mackay og
litill meistarabragur á liðinu.
Það voru hins vegar leikmenn
QPR, sem léku eins og meistarar,
þeir náðu forystunni strax á 6.
min, þegar Dave Thomas af-
greiddi fyrirgjöf Don Givens i
markið hjá Derby og eftir það
voru þeir óstöðvandi. Stan Bowles
bætti öðru markinu við eftir langt
útspark frá Phil Parkes i mark-
inu og bakvörðurinn Dave
Clements bætti þriðja markinu
við fyrir leikhlé eftir aukaspyrnu
Don Masson.
1 seinni hálfleik gerði landsliðs-
maðurinn Colin Todd tvivegis ljót
mistök — sem kostuðu mörk.
Fyrst lét hann Dave Thomas
„stela” frá sér boltanum,
Thomas sendi siðan á Bowles,
sem skoraði, og stuttu siðar braut
hann illa á Don Givens innan vita-
teigs og það kostaði vitaspyrnu.
Or henni skoraði Stan Bowles sitt
þriðja mark „hat trick” i leikn-
um. 1 lokin tókst Roy McFarland
að koma Derby á blað, en það
hressti litiö upp á stöðuna úr þvi
sem komið var.
Manchester United er eina liðið
i 1. deild, sem er með „fullt hús”.
A laugardaginn lék liðið sinn
fyrsta heimaleik á keppnistima-
bilinu gegn Sheffield Utd. og var
góð aðsókn á Old Trafford — 56
þúsund áhorfendur.
Leikmenn Manchester voru
fljótir að finna leiðina i mark
Sheffield og i hálfleik höfðu þeir
skorað þrivegis, Stuart Pearsson
tvö og Sammy Mcllroy.
Yfirburðir Manchester voru
enn meiri i seinni hálfleik, en
leikmennirnir fóru ekki i gang
fyrr en Chris Cuthrie hafði skorað
fyrir Sheffield, þá bættu þeir
tveim mörkum við, fyrst Gerry
Daly og loks Mcllroy sinu öðru
marki.
„Finnið stytztu leiðina i
markið”, var dagskipunin hjá
John Bond framkvæmdastjóra
Norwich fyrir leikinn við Aston
Villa, og hefur hann þá haft úr-
slitin I fyrra I huga. Tap i deildar-
bikarnum 1:0, og heima 1:4 i
siðasta leiknum.
t fyrstu var allt i járnum, Ted
MacDougall skoraði fyrsta
markið fyrir Norwich úr viti, en
Ray Greydon jafnaði fyrir Villa
úr annarri vitaspyrnu.
En þá kom góður leikkafli hjá
Norwich — þrjú mörk á þrem
minútum, Steve Goyver, Duncan
Forbes og MacDougall skoruðu
og þannig var staðan i hálfleik.
Smávon kviknaði hjá leikmönn-
um Villa i seinni hálfleik, þegar
Charli Aitkin og Ray Greydon
minnkuðu muninn. En hún.varð
að engu, þegar MacDougall skor-
aði „hat-trick” og fimmta mark
Norwich eftir skemmtilegan ein-
leik.
En litum nú á úrslitin áður en
lengra er haldið.
1. deild:
Arsenal—Stoke 0:1
Birmingham—Everton 0:1
Coventry—Manc.City 2:0
Derby—QPR 1:5
Leeds—Ipswich 1:0
Liverpool—Tottenham 3:2
Manc.Utd.—Sheff.Utd. 5:1
Middlesbro—Wolves 1:0
Newcastle—Leicester 3:0
Norwich—Aston Villa 5:3
West Ham—Burnley 3:2
2. deild:
Blackburn R.—Oldham 4:1
Blackpool—Orient 1:0
Bolton—Fulham 2:2
Bristol R.—York City 2:1
Chelsea—Carlisle 3:1
Hull—Bristol City 3:1
Botts County—Southampton 0:0
Oxford—Sunderland 1:1
Plymouth Arg,—Charlton 1:0
Portsmouth—Notth.For. 1:1
WBA—Luton 1:0
Frammistaða Newcastle og
Coventry vekur mikla athygli,
Newcastíe átti i litlum erfiðleik-
um með Leicester. Malcolm Mac-
Ðonald skoraði tvívegis og lagði
þriðja markið, sem Mick Burns
skoraði. Hann hefur nú skorað 5
af 7 mörkum Newcastle i 3 leikj-
um — og átt hin tvö.
Lið Manchester City olli von-
brigðum á Highfield Road i
Coventry og voru leikmenn liðs-
ins langt frá sinu bezta. Eftir að
mark hafði verið dæmt af Rodney
March, náði Allan Green foryst-
unni fyrir Coventry með
skemmtilegu marki — sendi
Corrigan markvörð Manchester i
öfugt horn. Rétt fyrir leiklok bætti
Green við öðru marki og gull-
tryggði Coventry bæði stigin.
Staðan I hálfleik i leik Liverpool
og Tottenham var 2:0 fyrir
Lundúnaliðið og allt virtist stefna
að fyrsta sigri þess á Anfield sið-
an 1912. En varnarmanni Totten-
ham urðu á mistök strax i byrjun
seinni hálfleiks — handlék bolt-
ann innan vitateigs og það kostaði
vitaspyrnu.
Úr henni skoraði Kevin Keegan
og þar með var Liverpool-liðið
komið i gang og þeir John Case og
Steve Heighway skoruðu sitt
markið hvor. Mörk Tottenham
skoruðu Chris Jones og Duncan.
Allan Taylor var aftur i sviðs-
ljósinu með liði sinu West Ham og
skoraði tvö mörk og hefur hann
skorað 5 af 7 mörkum West Ham.
Hann jafnaði gegn Burnley, eftir
að Leighton James hafði náð for-
ystuunni með „þrumufleyg” af 25
m færi. Peter Noble sá um að
koma Burnley aftur yfir á 66.
min. — en Taylor svaraði nær
samstundis með góðu marki.
Lokaorðið átti svo Graham
Paddon fyrir West Ham.
Bon Latchford var bókaður i
leik Birmingham og Everton
fyrir að brjóta á „litla bróður”
Dave i markinu hjá Birmingham,
en ekki tókst honum að skora hjá
sinum gömlu félögum. Það kom I
hlut David Smallmans.
Eina markið i leik Arsenal og
Stoke skoraði Alan Hudson, sem
átti stórleik, á 49. min. Arsenal
lék án Alan Ball og var þar skarð
fyrir skildi og spurning hversu
lengi liðið hefur efni á að halda
honum fyrir utan liðið.
Peter Lorimer skoraði eina
markið i leik Leeds og Ipswich
með „þrumufleyg” af 25 m færi,
og John Hickton skoraði eina
mark Middlesbro sem vann
sinn fyrsta sigur á kostnað Úlf-
anna.
1 Skotlandi var leikin næstsið-
asta umferðin i deildarbikarnum,
en siðasta umferðin verður leikin
á miðvikudaginn.
Helztu úrslit á laugardaginn
uröu þessi:
Dumbarton—Celtic 0:8
Dundee—Ayr 2:4
Dunfermline—Hibernian 0:4
Hearts—Aberdeen 1:0
Kilmarnock—Dundee Utd. 1:0
Motherwell—Rangers 2:2
Celtic vann stórt á laugardag-
inn, en ekki tókst Jóhannesi Eð-
valdssyni að skora. Mörk Celtic
skoruðu: Harry Hood, Kenny
Dalglish og Paul Wilsons tvö
mörk hver og Tommy Callaghan
og Danny McGrein sitt markið
hvor.
Staðan i 1. deild er nú þessi:
Manc. Utd 3 3 0 0 9:1 6
Newcastle 3 2 1 0 7:1 5
QPR 3 2 1 0 8:2 5
Coventry 3 2 1 0 7:2 5
West Ham 3 2 1 0 7:5 5
Leeds 3 2 1 0 4:2 5
Manc. City 3 1 1 1 4:3 3
Arsenal 3 1 1 1 3:2 3
Stoke 3 1 1 1 4:4 3
Tottenham 3 1 1 1 4:4 3
Middlesboro 3 1 1 1 2:2 3
Liverpool 3 1 1 1 5:6 3
Norwich 3 1 1 1 6:7 3
Everton 3 1 1 1 3:5 3
B.urnley 3 0 2 1 3:4 2
Leicester 3 0 2 1 4:7 2
Derby 3 0 2 1 3:7 2
Wolves 3 0 1 2 2:5 1
Birmingham 3 0 1 2 3:6 1
Aston Villa 3 0 1 2 5:8 1
Ipswich 3 0 1 2 1:5 1
Sheff. Utd. 3 0 1 2 3:9 1
3.TA 1»AGA
ÍJTSALA!
* ■ri'lfLi T
Mánudag
þriðjudag
miðvikudag
☆ Stakar buxur
glæsilegt úrval — gott verö
☆ Herraföt
vönduö herraföt á góðu veröi
☆ Skyrtur
mikill afsláttur
☆ Peysur
lika mikill afsláttur
☆ Stakir jakkar
aö sjálfsögöu á mjög góöu veröi
VIÐ LÆKJARTORG
fr