Tíminn - 04.10.1966, Blaðsíða 1
Auglýsing t Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
3 af hverjum fimm Bandaríkjamönnum
Trúa ekkineinuí
Warrenskýrslunni
NTB-Washington, mánudag.
Meiri hiuti Bandaríkjanna telur,
að heimurinn hafi ekki fengið að
vita allan sannleika um morðið
á Kennedy, forseta, og trúir því
ekki heldur, að Lee Harvey Os-
wald hafi verið einn um morðið,
að því er fram kemur í skoðana-
könnun, sem skýrt var opinber-
lega frá í WashinSton í dag.
Rannsókn þessi, sem birt er í
Washington Post, sýnir, að þrír
af hverjum fimm Bandarí'kjamönn
um vísa á bug höfuðatriðunum f
Warren-skýrslunni um morðið, en
í skýrslu Warren-nefndarinnar svo
nefndu er því m.a. slegið föstu.
að enginn hafi verið í vitorði með
Oswald um morðið.
Meiri hlutinn er þeirrar skoð-
unnar, að morðið hafi verið liður
í víðtæku samsæri, án þess þó að
geta sagt um, hverjir hafi staðið
Framhald á bls. 14.
UNDIRRITUÐU
SAMNINGINN UM
MENNINGARSJÓÐ
NTB-Kaupmannahöfn, mánudag.
Samningurinn um norrænan
menningarsjóð var undirritaður í
Kristjánsborgar-höll í Kaupmanna
höfn í dag, af menntamálaráðherr
um Norðurlandanna fimm,
Framhald á bls. 14
mmmmm
Miií s i
ii’•:
Forsætisráiherra telur eignakönnun
nauðsynlega, ef gengið verður lækkað
Reykjavík, mánudag.
Það vakti athygli manna, cr
fylgdust með blaðamannafundin-
um í sjónvarpinu á föstudaSs-
kvöld, að Bjarni Benediktsson, for
sætisráðherra, sagði, að ef út í
gengislækkun yrði farið, yrði að
gera eignakönnun samfara geng-
isfellingunni.
Að vísu sagði forsætisráðhen-
ann, að hann teldi, að gengis-
lækkun væri ekki nein lausn fyrir
atvinnuvegina og þótti það hraust-
lega mælt af manni, sem stóð að
gengislækkunum í tvígang sem að-
alúrræði fyrir atvinnuvegina. En
hins vegar kom það skýrt fram
að ráðherrann vill láta fram-
kvæma eignakönnun hjá mönnum,
ef til þess ráðs verður horfið að
lækka gengi krónunnar. Þetta
myndi sennilega þýða, að skatta-
lögreglan myndi gera úttekt á
eignum manna og að sjálfsogðu
einnig taka skattaframtöi til hlið-
sjónar og athugunar.
Vetur gekk í garð um
norffan og austanvert land-
ið á sunnudag, og á Akur-
eyri, þar sem Haraldur Sig-
uiffeson tók þessa mynd var
hálka á götum og srvo sann-
aríega vetrarlegt um að lit-
ast. Siglufjarðarskarð lokað
ist, og hefur ekki verið rutt,
en aftur á móti fór hefill
um Möðrudalsöræfi í gær,
en þar var orðin þung færð.
Fimm menn í litlum bíl ætl
uðu á sunnudaginn yfir
Möðrudalsöræfi, en festu
bílinn og komu tíl byggða
í morgun. Tíu bílar munu
Framhald á bls. 14.
Krístján Thorlacius, formaður BSSB í setningarræðu:
SAMTÖKIN FAl FULLAN SAMNINGSRÉH
SJ-Reyk j avík,mánudag.
24. þing Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja hófst á Hótel Sögu
í gær. Þingið sitja 123 fulltrúar
frá 27 félögum. Áheyrnarfulltrúar
frá Alþýðusambandi íslands, Far-
manna- og fiskimannasambandi
íslands, Sambandi íslenzkra banka
manna og Stéttasambandi bænda
var boðið að sitja þingið, og
fluttu fulltrúar þessara félaga og
fciagasambanda stutt ávörp.
f setningarræðu minntlst Kristj
án Thorlacíus formaður B.S.R.B.
nokkurra látinna forustumanna
og heiðruðu fundarmenn minn-
ingu þeirra með því að rísa úr
sætum.
Kristján rakti þvínæst þau stnrf
sem liggja fyrir þing-
inu. Hann nefndi fyrst kjaiamál-
in, sem'verða eitt aðalverkefni
þingsins.
Kristján sagði m.a.: „Laun op-
inberra starfsmanna hafa að und-
anförnu dregizt mjög aftur úr
kjörum annarra stétta, og færast
Frá þlngi BSRB. Kristján Thorlacius flytur setningarræSuna.
(Tímamynd GE)
nú óðum í sama farið og var fyr
ir fyrstu heildarsamningana 1963
og dóm Kjaradóms frá 3. júlí 1963.
Sú þróun, sem síðan hefur átt
sér stað, veldur því, að opinber-
ir starfsmenn telja óhjákvæmilegt
að kjarasamningalögunum verði
breytt á þá leið, að samtökin
fái fullan samningsrétt, þar með
talinn verkfallsrétt.
Það er min skoðun, að þetta
væri einnig heppilegt fyrir þjóð-
félagið. í því felst óumdeilanleg
hætta, ef ríkið og bæjarfélögin
verða ekki samkeppnisfær um
starfskrafta við einkareksturinn.
Fullur samningsréttur myndi bezt
tryggja að opinberir starfsmenn
fái sambærileg kjör við aðrar stélt
ir þjóðfélagsins.
Óvenjulegt góðæri hefur verið
hér á iandi undanfarin ár og þjóð
artekjurnar vaxið hröðum skref-
Framhald á bls. 14.
Skotið á
lögregluna
í Keflavík
KJ-Reykjavík, mánudag.
Skotið var á Iögreglumenn
í Keflavík á laugardaSs-
kvöldið, er þeir voru kallað
ir að húsi nokkru þar í bæ,
vegna manns sem var með
riffil í höndum og hótaði
að skjóta, en lögreglumenn
ina sakaði ekki.
Lögreglan var kölluð að
luisi í Keflavík urn kl. sjö
á Iaugardagskvöldið, og
Framhald á bls. 14.
I