Vísir - 10.09.1975, Blaðsíða 4

Vísir - 10.09.1975, Blaðsíða 4
4 Vlsir. Miövikudagur 10. september 1975. SKÁKEINVÍGIÐ ER ENN HÖFUÐVERKUR Skóksambandið reynir að fó greiddar 1,3 milljónir Skákeinvigiö fræga milli Fischers og Spasskys 1972 i Laugardalshöllinni, er enn til um- fjöllunar hjá Skáksambandinu. Aöallega eru þaö peningamál, sem hafa dregiö dilk á eftir sér. „Skáksambandiö hefur veriö aö reyna aö fá aftur 1.3 millj. sem þaö lagði i útgáfu skákblaðs i Bandarikjunum vegna ein- komi”, sagöi Gunnar Gunnarsson forseti Skáksambandsins i viötali viö Visi um þessi mál. Otgáfa þessa einvlgisblaös mun hafa staðiö á sléttu, og útgef- andinn lýst þvi yfir aö hann gæti ekki endurgreitt. „Annað slagiö fáum viö svo kröfur frá aöila I Bandarikjunum um 5 þúsund dollara endur- greiöslu (750 þús. Isl. kr.) sem hann greiddi fyrir einkarétt á fréttum af einviginu. Þessi aðili gat aldrei nýtt sér einkaréttinn. Hann hengir hatt sinn á þaö aö einvigiö byrjaöi ekki á réttum tima. Skáksambandiö lltur svo á, aö einvlgiö hafi ekki átt aö teljast hafiö fyrr en viö setningu þess. „Hins vegar stöndum viö ekki I neinum greiöslum nú vegna Skákeinvlgisins. Þeim er öllum lokiö, þrátt fyrir svona einstaka mál, sem viröast seint ætla aö verða útkljáö, sagöi Gunnar enn- fremur. Kvikmyndin sem Iöntækni tók af einvlginu, er enn eitt vanda- máliö. Sá frægi Fox fékk Iöntækni til aö taka myndina. Iöntækni hækkaöi veröiö allnokkuð viö hann, svo hann neitaði aö borga, þegar tökunni var lokið. Skák- sambandiö er eignaraöili aö film- unum. Aætlað haföi veriö aö sýna Ifilmurnar á Alþjóölegu vörusýn- |ingunni nú. Fischer stendur I málaferlum viö Fox núna, og lögöu menn þvl ekki I aö sýna myndirnar, ef þaö kynni aö draga dilk á eftir sér. „Bókfæröur gróöi af einvlginu var sex milljónir, en I þvl dæmi var t.d. reiknaö meö aö þessar 1.3 milljónir sem viö eigum útistand- andi, kæmu inn, Þaö má segja aö viö höfum staöið á sléttu eftir ein- vígiö”, sagöi Gunnar Gunnarsson aö lokum. —ÓH Agalegur á íslenzkum þjóðvegum Góður í ófœrum — Þessi bill er góöur I ófær- um, en hann er agalegur á is- lenzku þjóövegunum. Þaö er blæja á honum, svo aö viö sátum alltaf I rykmekki, sögöu þeir Bernard og Andreas frá Þýzka- landi. Þeir hafa feröazt á Haflinger biinum sinum um ts- land I tvo mánuöi, en eru nú á heimleiö. Þeir fara flugleiöis en billinn meö skipi. — Þetta var stórskemmtileg- ur leiöangur og viö erum hrifnir af tslandi. Þaö er svo ólikt öör- um löndum, sem viö höfum heimsótt. Mynd BG. apntb MORGUN Ú1 Flóð í Nicara- gua Um eitt þúsund manna eru talin hafa misst heimili sln I héraöinu Rivas I Nicaragua I flóöum aö undanförnu. — Rivas er um 80 km suður af höfuðborg- inni Manágua, sem lagðist að mestu I rúst I miklum jarðskjálfta á jólum fyrir tveim árum. Miklir vextir urðu skyndilega I ám á þessum slóðum,sem tóku aö flæöa yfir bakka slna I gærmorgun. Hefur flóðiö meöal annars oröiö til þess aö stöðva alla umferö um aöal-þjóöbrautina, sem liggur þarna um og áfram i gegn- um Mið-Ameríku. Leit ekki við biskup en gleypti peðin Karpov og Portisch geröu jafntefli I fyrstu skák sinni 16 skáka-einviginu til úrslita á alþjóöamótinu i Mflanó. Bauð Portisch jafntefli eftir 35 leiki og áttu þá báöir einn mann og fimm peö á boröinu og gengiö haföi á ýmsu. A meðan vann Petrosjan Júgóslav- ann, Ljubojevic, i fyrstu skák þeirra, en þeir heyja einnig einvigi um 3. og 4. sætið. — í 19. leik bauð Ljubojevic biskupsfórn, sem Petrosjan þáði ekki. Hins vegar hirti Petrosjan tvö peð af Ljubojevic og varð gott af. Sagði Petrosjan, aö Ljubojevic hefði telft of djarft. „Hann hjálpaði mér að vinna.” — EnLjubojevic sagöi: — „Ég byrjaði ekki að hugsa, fyrr en ég var kominn með tapað tafl. Gat einhvern veginn ekki einbeitt mér.” Iðnaðar- og lagerhúsnœði óska eftir að taka á leigu iðnaðar- og lagerhúsnæði. Vinsamlegast hringið i sima 19460. Barnamúsíkskóli Reykjavíkur Breiðholtsútibú, annað starfsár Breiðholtsibúar athugið: Barnamúsikskólinn mun starfrækja útibú i Fellahelli i vetur fyrir 6 og 7 ára börn i Breiðholtshverfi. Athugið að aðeins verða tekin 6 og 7 ára börn, ekki eldri. Innritun væntanlegra nemenda fer fram i Iðnskólahúsinu við Skólavörðuholt, inn- gangur frá Vitastig, 5. hæð, dagana 11.—13. september (fimmtudag, föstudag og laugardag) kl. 2—6 siðdegis. Hafið með ykkur stundaskrá barnanna úr barnaskól- anum. Einnig er innritað i sima 28477 á sama tima. Athugið einnig, að nokkur 7 ára börn geta enn innritast i stofnskólann i Iðnskólahús- inu sömu daga og á sama tima. Skólastjóri. Jazzleikfimi fyrir alla Námskeið 12.—16. sept. í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Kl. 10—11.30 eða 13.30—15. Fyrir íþróttakennara kl. 15.30—18. Kennari: Monika Bechman Einstakt tækifæri. Upplýsingar og innritun á skrifstofu i.S.t. eða F.S.t. sími 83377. Fimleikasambandið. Rösklega að verið Flugvélarhreyfill tætti þök af tveim timburhúsum, velti um koll vörubif- reiö, þeytti upp i loft nokkrum bifhjól- um og rak smiöshöggiö á listaverkið meö þvl gð rifa upp með rótum nokkur tré viö endann á Paya Leber-flugvell- inum i Singapore I gærkvöldi. Eða svo segir lögreglan i Singapore, sem telur, aö útblástur DC-10 farþega- þotuhreyfils hafi valdið þessum ósköp- um, þegar þotan tók sig á loft við enda einnar flugbrautarinnar. Þrjár flug- vélar fóru I loftiö á sex mlnútna bili- og hefur grunurinn beinzt aö einni þeirra, nýsjálenzkri farþegavél, um að hafa skilið eftir sig þennan slóöa. Friðrik með þriá vinninga eftir átta umferðir FÓLKSBÍLADEKK — VÖRUBÍLADEKK — TRAKTORSDEKK Fyrirliggjandi flestar stæröir af japönskum TOYO hjólböröum. Einnig mikiö úrval af hinum vinsælu HOLLENSKU HEILSÓLUÐU HJÓLBÖRÐUM á hagstæöu veröi. Sendum I póstkröfu. ' HJÓLBARÐASALAN B0RGARTÚNI 24 Simi 14925. Friörik ólafsson er kominn meö þrjá vinninga eftir átta umferöir á minningarskákmóti Alexanders I Eng- landi. — Af 15 þátttakendum eru 11 stórmeistarar og er baráttan hörö. Ungverski stórmeistarinn, Gyula Sax,er efstur með sex vinninga. Tefldi hann I gær við Gheorghiu frá Rúmeníu, og leit I fyrstu út sem Gheorghiu væri meö unnið tafl, þegar Sax snéri vörn upp i sókn og mátaði Gheorghiu I 32. leik. Stórmeistararnir, Hubner (V- Þýzkal.) og Geller (Sovétrikin), eru jafnir I 2.-3. sæti meö 5 vinninga. Hubner hefur ekki tapað skák I mót- inu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.