Vísir - 10.09.1975, Síða 8
!
\
1
c
f
Dynamo vann
Bayern í
„Supercup
Dynamo Kiev frá Sovétrikjunum
sigraði Bayern Munchen i fyrri leik
liöanna i „Supercup” I Munchen i
gærkvöldi með einu marki gegn
engu, og stendur þvi vel að vígi fyrir
siðari leikinn, sem á að fara fram i
Kiev þann 6. október n.k.
Þessari keppni á milli sigurvegar-
anna i Evrópukeppni deildarmeist-
ara og Evrópukeppni bikarmeistara
var komið á I sumar, og var þá búizt
við, að hún myndi vekja mikla
athygli og verða vel' sótt.
Þaö var þó ekki að sjá á leiknum i
gær — áhorfendastæðin á olympfu-
leikvanginum I Munchen voru hálf-
tóm, og þar af voru aöeins örfáir
Rússar.
Þeir héldu, að þeirra menn hefðu
skorað á 23. minútu ieiksins, er skot
frá Oleg Blochin var greiniiega varið
fyrir innan linu, en dómarinn lét
leikinn halda áfram eins og ekkert
heföi i skorizt.
A 65. minútu leiksins var Blochin
aftur á ferðinni — lék á fjóra varnar-
menn Bayern, þar á meðal fyrir-
liðann, Frans Beckenbauer, og sendi
siöan knöttinn með þrumuskoti fram
hjá Sepp Maier i marki Bayern.
Þetta eina mark nægði meisturum
bikarmeistaranna til að sigra i leikn-
um, sem þótti ekkineitt afbragð, þótt
tvö „stjörnulið” mættust þarna.
—klp—
Reykjavík —
Landið um
nœstu helgi
Nú hefur verið ákveöið að keppnin
Reykjavik — Landið i frjálsum
iþróttum fari fram á Laugardals-
vellinum um næstu heigi, 13. og 14.
september.
Liðin hafa þegar veriö valin og
verða kcppcndur hátt á annað
hundrað. Keppt verður I öllum bik-
argreinunum og verða þrir frá hvoru
liði i grein og reiknast stigin frá
fyrsta manni: 6-5-4-3-2-1.
Ekki er að éfa að keppni þessi
verður hin skemmtilegasta, þvi að
nú keppa allir beztu frjálsiþrótta-
menn landsins saman. Siðast þegar
að keppni þessi fór fram 1971 bar
landsbyggöin sigur úrbitum. Keppni
þessi veröur einskonar vertiðariok
stórmóta frjálsiþróttafólks okkar i
sumar — en senn er nú lokið við-
burðariku keppnistimabili.
—BB
)
V.
Foster keppir
ekkki gegn
Svíum
Brendan Foster, Evrópumeistar-
inn i 5.000 m hlaupi, hefur hætt við aö
keppa með Englandi i landskeppn-
inni við Svia i frjálsum íþróttum um
næstu helgi.
Fosterernúað jafna sigeftir mörg
erfjð hlaup nýlega og er einn af
mörgum i liði Breta, sem ckki verða
með I keppninni.
Annar Evrópumeistari, Alan Pas-
coe, mun ekki keppa i sinni sterkustu
grein, 400 m grindahiaupi — hann
lætur sér nægja að hlaupa 110 m
grindahlaup.
Keppnin hefst á laugardaginn á
Meadowbánk-vellinum i Edinborg og
stendur i tvo daga.
—BB
OLAFUR SKORAR!
íslendingarnir sem leika með vestur-þýzku
landknattleiksliðunum SV Hamburg, Danker-
sen, Göppingen og Donzdorf, haf a vakið mikla
athygli í Vestur-Þýskalandi. Undrast hand-
knattleiksunnendur skotkraft og hittni þess-
ara manna, og hefur mikið verið gert úr því í
sumum blöðum. Eitt þeirra birti t.d. þessar
tvær myndir af Ólafi Einarssyni, sem leikur
með 2. deildarliðinu TG Donzdorf, er lið hans
lék á móti 1. deildarliðinu TuS Hofweier. f
þeim leik skoraði hann 10 mörk og var maður-
inn á bakvið óvæntan sigur 2. deildarliðsins
Visir. Miðvikudagur 10. september 1975.
Ármenningar sömdu við
einn svartan í nótt!
Fó hingað bandarískan körfuknattleiksmann, Jimmy Rogers, sem mun leika
með liði þeirra nœstu þrjó mónuði
Körfuknattleiksdeild Armanns
hefur nú riðið á vaðið og gert
samning við bandarfskan körfu-
knattleiksmann um að leika með
liðinu næstu þrjá mánuði. Heitir
hann Jimmy Rogers — blökku-
maður 1.98 m á hæð, og er 100 kg.
Leikur hann sem framherji —
skorar og hirðir mikiö af fráköst-
um.
„Við erum búnir að vera i stöð-
ugu sambandi við umboðsskrif-
stofu körfuknattleiksmanna i
Bandarikjunum i nótt”, sagði
Guðmundur Sigurðsson, formað-
ur Körfuknattleiksdeildar Ar-
manns.i viðtali við Visi i morgun.
,,Og það var ekki fyrr en undir
morgun, að búið var að ganga frá
öllum helztu atriðunum.
Samningurinn gerir ráð fyrir
þvi, að Rogers verði hjá okkur i
þrjá mánuði og auk þess að leika
með liðinu, mun hann taka að sér
þjálfun hjá öllum yngri flokkum
félagsins.
Þetta fyrirtæki mun koma til
með að kosta okkur stórfé, en við
erum staðráðnir i að vinna vel
þannig að endar náist saman.
Ein af ástæðunum fyrir þvi, að
við förum út i þetta er að við leik-
um i Evrópubikarkeppninni i
körfuknattleik i ár og stefnum að
þvi að komast áfram i þeirri
keppni. Við eigum að leika gegn
finnsku bikarmeisturunum og
munum við sækja Simon Ölafsson
tilBandarikjanna ileikina, en þar
verður hann við háskólanám”.
Þá sagði Guðmundur okkur að
Rogers hefði leikið með mjög
Plástur á sárið hjá
Eyjaskeggjum
Sigruðu Hauka í úrslitaleiknum í 2. flokki
„Það var smá-sárabót fyrir
okkur að sigra I þessum flokki
eftir að hafa fallið niöur I 2.
deild um siðustu helgi,” sagði
Hermann Kr. Jónsson, formaö-
ur Knattspyrnuráðs Vest-
mannaeyja, eftir sigur 2. flokks
tBV yfir Haukum i tslandsmót-
inu I knattspyrnu i gærkvöldi.
„Við litum bjartari augum á
framtiðina eftir þetta og von-
umst til að koma fijótt aftur upp
I 1. deild, enda eru I þessum
flokki mjög efnilegir leikmenn
eins og I öðrum yngri flokkunum
hjá okkur.”
Vestmannaeyingarnir sigr-
uöu Hauka 3:0 og voru öil mörk-
in skoruð i siðari hálfleik. Var
þar að verki i öll skiptin Sigur-
lás Þorleifsson, sem átti mjög
góðan leik og var bezti maður-
inn á vellinum.
—klp—
þekktum liðum á undanfömum
árum, bæði i Bandarikjunum og
utan þeirra — og væri þekkt nafn.
Hannhefði m.a. leikið I Argentinu
og Mexikó og náð þar frábærum
árangri.
„Við eigum von á Rogers hing-
að eftir vikutima eða svo og þá
munum við byrja að undirbúa
okkur af krafti fyrir Evrópuleik-
ina, en við eigum að leika heima-
leikinn 29. október — en útileikinn
aðeins viku seinna”. íslandsmót-
ið i körfuknattleik hefst 8. nóvem-
ber og lýkur fyrri umferðinni 18.
janúar og þvi er ljóst að verði
samningurinn við Bandarikja-
manninn ekki framlengdur, mun
hann ekki ná að leika fyrri um-
ferðina i mótinu.
En framtak þetta hjá Armenn-
ingum er hið athyglisverðasta og
nú er bara að biða og sjá, hvort
fleiri áhorfendur koma ekki til að
horfa á körfubolta en verið hefur.
Hef varla t
að fara til N<
—segir markakóngurinn Matthías Hallg
og aðrir Akurnesingar í landsliðinu he
knattspyrnunni allan þennan
„Það verður úr þvi skorið
þegar ég kem heim frá Rússlandi,
hvort ég fer til Bergen i þessum
mánuði eða ekki” sagði marka-
kóngurinn okkar — Matthias
Hallgrimsson — er við spjölluöum
við hann á hóteiinu, sem islenzka
liðið bjó á eftir landsleikinn i
Liege á laugardagskvöldið.
„Ég ætla til náms i Bergen i
Noregi og jafnframt að leika með
1. deildarliðinu Brann, eins og ég
sagði ykkur á Visi þegar þið
spurðuðmig að þvi fyrir nokkru.
En nú er ég kominn i hálfgerða
timaþröng með þetta allt og veit