Vísir - 13.09.1975, Síða 6
6
Visir. Laugardagur 13. september 1975.
yism
tJtgefandi:
Ritstjóri og ábm:
Ritstjóri frétta:
Fréttastjóri erl. frétta:
y Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiösla:
Ritstjórn:
Reykjaprent hf.
Þorsteinn Pálsson
Arni Gunnarsson
Guðmundur Pétursson
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 44. Simi 86611
Slðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands.
t lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Löggjöf um flokkafjármálin
Fyrir skömmu benti Visir á nauðsyn þess að
settar yrðu almennar lagareglur um fjármála-
starfsemi stjórnmálaflokkanna i landinu. Þessi
mikilvægi þáttur i öllu flokksstarfi hefur alla tið
verið undir huliðshjálmi. Ljóst er að i þeim efn-
um má koma fram ýmis konar úrbótum.
Starfsemi stjórnmálaflokkanna hefur smám
saman verið að opnast og ekki er óeðlilegt að
sama regla gildi um f jármál og önnur svið flokks-
starfsemi. Engin skynsamleg rök mæla með þvi
að fjáröflun flokkanna eigi að vera einhvers kon-
ar leyndarstarfsemi.
Að undanförnu hefur lóðarúthlutun til bygg-
ingarfélagsins Ármannsfells verið tengd við fjár-
öflunarstarfsemi vegna byggingarframkvæmda
Sjálfstæðisflokksins. Um þetta mál liggja ekki
fyrir nein opinber gögn sem hægt er að henda
reiður á og treysta. Allar bollaleggingar um það
hljóta þvi að vera að meira eða minna leyti til-
gangslausar. Það er næstum útilokað að fá nokk-
urn botn i þær.
Ef fjármál flokkanna væru opinber, væri miklu
auðveldara að skýra slik mál og hreinsa þá sem
kunna að ósekju að liggja undir grun um mis-
ferli. Fjármálastarfsemi stjórnmálaflokkanna er
flokksmönnum oft á tiðum jafn hulin ráðgáta eins
og utanflokksmönnum. Fulltrúar flokkanna sem
gegna opinberum trúnaðárstöðum geta þannig
tekið i ólitiskar ákvarðanir, án þess að vita um
fjármálalegar bakhliðar tiltekinna mála.
Með opinni fjármálastarfsemi flokkanna og
fastmótuðum reglum mætti koma i veg fyrir
hugsanleg mistök af þvi tagi. Það er þvi augljóst
mál, að stjórnmálaflokkarnir og þeir sem eru i
ábyrgð fyrir þá hafa hagsmuni af þvi að leyndar-
hjupunum verði lyft af fjármálum flokkanna.
Ljóst er að engar sönnur hafa verið færðar
fram i umræðum að undanförnu um misferli af
þessu tagi, en auk þess er full ástæða til að
auka aðhald á þessu sviði. Eitt dagblað heldur þvi
fram i forystugrein i gær að tilgangslitið sé að
lýsa sekt á nafngreind fyrirtæki og stjórnmála-
menn út af einstökum dæmum um þetta ástand.
Þetta er athyglisverð skoðun. En ef menn eru
sammála um að brýnt sé að auka aðhald i fjár-
málakerfi stjórnmálaflokkanna sýnist hitt vera
skynsamlegra að auka ábyrgð þeirra, sem með
fésýsluna fara. Að öðrum kosti geta menn ávallt
skýlt sér á bak við hina flokkspólitisku samtrygg-
ingu. Það er ekki lausn á vandanum.
í þessum efnum eru allir stjórnmálaflokkarnir
sama marki brenndir. A.m.k. þrir stærstu
flokkarnir standa i umfangsmiklum byggingar-
framkvæmdum. Engum kemur til hugar að hér
sé um óeðlilega starfsemi að ræða. Þvert á móti
má færa rök að þvi að mikilvægt sé, að flokkarnir
hafi góða félagsaðstöðu. Þeir gegna óneitanlega
veigamiklu hlutverki i þvi lýðræðislega stjórn-
skipulagi, sem við búum við.
Einmitt fyrir þessar sakir á ekki að rikja nein
leynd um þá óhjákvæmilegu fjáröflunarstarf-
semi, sem flokkarnir verða að ástunda. Þvi er
eðlilegt að settar verði almennar reglur um þetta
efni. En um leið verða menn að gæta þess, að
flokkarnir verði ekki ómagar á rikisjötunni. Gegn
slikum kröfum verða menn að standa einarðlega.
Umsjón: GP
liæsæsaBsssiSKssaisaiisaisusiisassi:
Æ MFM
Bygging Iþróttaleikvangsins, Iþróttahallar og Ibúða fyrir iþróttafólkið kostar Montreal skildinginn.
Hvar á borgarstjórinn að taka 300 milljónir dollara?
I
n
:
«
:
u
■
:■
■
■-
ii
:
u
Verður fjórhœttu-
spil lótið fjúr-
magno olympíuleik-
ana í Montreal?
Það verður fjölgað
[j Iþróttagreinum á
jj ólympiuleikunum i
[j Montreal 1976, ef Jean
|j Drapeau, borgarstjóri,
j fær þvi ráðið sem hann
3 vill.
■
■
'9
[ Þvi hefur Drapeau borgar-
3 stjóri látið sér koma i hug það
3 ráð, að reyna að stofna fljótandi
5 spilaviti, það stærsta i heimi,
[ sem gefið gæti af sér tekjur til
: að mæta tapinu. — Hann er með
I ráðagerðir um að kaupa
FRANCE, lúxusfarþegaskipið
franska, sem nýlega hefur ver-
ið lagt fyrir fullt og allt.
Drapeau vill láta binda skipið
við bryggjur i höfninni i
Montreal. bar ætti að vera nóg
bryggjupláss, þvi að athafna-
semi við höfnina i Montreal
hefur dregizt saman um 50% á
þessu ári.
Fylkisstjórnin i Quebec styð-
ur Drapeau borgarstjóra I þess-
um ráðum, enda hefur hún lengi
haft á prjónunum bollalegging-
ar um að reka — að minnsta
kosti um stundarsakir — á veg-
um rik'sins spilaviti.
Drapeau vill um leið leggja
braut fyrir hraðlest sem tengi
saman New York og Montreal.
Slik samgöngubót mundi fyrst
og fremst til þess gerð, að auð-
velda ibúum Nýja Englands að-
göngu að Mirabel-flugvellinum,
sem er norður af Montreal. En
vafalitið hefur borgarstjórinn
þar einnig i huga, að lokka ein-
hverja af fjárhættuspilurum frá
Bandarikjunum norður eftir til
að spila i nýja spilavitinu — ef af
þvi verður.
Samningar eru i undirbún-
ingi. Eigendur FRANCE, sem
er franska rikið, vilja fá 40
milljónir dollara fyrir skipið.
Hallinn á rekstri skipsins knúði
þá til þess að leggja þvi, sem
gekk þó ekki hávaðalaust fyrir
sig, einsog menn munu minnast
af fréttum. Sjómannasamtökin
frönsku og fleiri undu þvi illa,
þegar segja þurfti allri áhöfn-
Franska lúxusskipiö, FRANCE, er falt fyrir 40 milljónir dollara.
inni upp. Tók áhöfnin skipið
traustataki og neitaði að sigla
þvi til hafnar fyrr en yfirvöld
höfðu lofað þeim bætum fyrir
atvinnumissinn. Hvað um það,
Frakkar vilja fá 40 milljónir, en
Drapeau borgarstjóri býður
þeim aðeins 15 milljónir dollara
svo að töluvert ber á milli.
A meðan velta efasemdar-
menn þessari hugmynd borgar-
stjórans fyrir sér og finnst sum-
um þeirra hún vægast sagt fjar-
stæðukennd. Þeir telja, að
hagnaður af rekstri spilavitis
um borð i skipinu, mundi ekki
gera meira en vega upp
kostnaðinn af lántökum vegna
kaupa skipsins. Hvað þá að
vonast megi eftir stórgróða,
sem staðið geti undir halla af
ólym piuleikunum ?
Og einn þröskuldur er að
minnsta kosti á veginum. Spila-
viti eru nefnilega bönnuð sam-
kvæmt kanadiskum lögum,
nema þá i mynd einhverra
happdrætta eða hlutaveltu hjá
liknarfélögum og þá aðeins með
undanþáguleyfum viðkomandi
yfirvalda i hvert sinn.
Má vera, að Drapeau borgar-
stjóri fái yfirstigið þann þrösk-
uld með þvi að kalla ólympiu-
leikana góðgerðarstarfsemi, en
það er ekki vist, að hann fái
sannfært alla um, að atvinnu-
fjárhættuspilarar verði ekki
meðal gesta sem sækja spilavit-
ið. En það gæti hugsazt, að hann
fengi sannfært mestu vand-
lætingarpostulana, ef hann get-
ur sýnt fram á, að skattabyrðin
yröi þeim léttari i staðinn. Það
er eins og áhyggjur manna af
sálarvelferð náungans viki oft,
þegar annað þýðingarmeira
mál, eins og velferð pyngjunn-
ar, kemst á dagskrá. Það verð-
ur jú auðvitað að taka hlutina
fyrir i réttri röð.
300 milljón dollara tap, sem
dreifa yrði á öll bök manna i
Montreal, mjó sem breið, er
auðvitað mikið meira mál.
■
‘■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•í «■■■■■■■■■■■■■■■■■• ■■■■■■■■■■!--