Vísir - 13.09.1975, Qupperneq 16
lý Vísir. Laugardagur 13. september 1975.
| íSAG | D KVÖLD| Q □AG | D KVÖl L Q □AG |
Útvarp kl. 21,45 á laugardag:
Framhaldssögurnar
í dagblöðunum
Klukkan hálf fimm spjallar
Jökull Jakobsson við hlustend-
ur. Þar gefur hann landsmönn-
um forsmekkinn af þvi hve
framhaldssögur dagblaðanna
eru skemmtilegar og áhuga-
vekjandi. Hann mun siðan
hringja i fólk Uti i bæ, til að
spyrja það hvort það lesi fram-
haldssögurnar i blöðunum.
Flytjendur auk hans verða
Steinunn Jóhannesdóttir og
Karl Guðmundsson.
Þá verður minnst 20 ára af-
mælis Delta Rithm Boys og spil-
uð nokkur lög, sem voru tekin
upp á hljómleikum i Háskóla-
biói árið 1963. — HH.
Útvarp kl. 16,30:
Dóra f Kaplaskjóli er mlkii hestakona.
Sjónvarp kl. 18,55 á sunnudag:
Gjafahrossið
Myndin hefst á þvi, að eigin-
kona timbursala nokkurs verður
ekkja. Hún á tvo syni. Tekur eldri
sonurinn við þvi að aka Ut eldi-
viðnum en til þess notar hann
vagn, sem dreginn er af hesti.
Blaðamenn sjá strákinn af til-
viljun og finnst það mjög sniðugt
að ennþá skuli vera notaður hest-
vagn i þessa leiðangra með
timbrið. Tala þeir við strákinn en
þegar þeir smella mynd af
honum, þar sem hann situr upp
á hestvagninum, þá fælist hestur-
inn af blossanum og stekkur fyrir
bil og deyr..
Þessir ágætu blaðamenn sjá nú
að efnið er orðið enn betra. Segja
þeir frá þessu i blöðunum og setja
frásögnina þannig upp að
strákurinn sé ekki aðeins ný bú-
inn að missa föður sinn heldur sé
hann einnig búinn að missa hest-
inn. Peningarnir streyma að og
keyptur er annar hestur..
HE.
Hvernig getur bók, sem heitir
„Ljóð vega salt", staðið kyrr?
i júii I sumar gaf Heimskringla
út ljóðabók eftir ungan höfund,
scm heitir Sigurður Pálsson.
Nefnir hann Ijóðabókina „Ljóð
vega salt”.
í kvöid mun þetta unga skáid
iesa upp úr bók sinni nokkur ljóð.
„Ljóðin i bókinni eru
mishljóma samstæða, en undir
niðri er tónninn af sama toga
spunninn,” sagði höfundurinn.
SJONVARP •
Laugardagur
13. september 1975
18.00 Iþróttir.Umsjónarmaöur
Omar Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.30 Læknir I vanda.Breskur
gamanmyndaflokkur. Nótt I
líkhúsinu. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
20.55 Rolf Harris. Breskur
söngva- og skemmtiþáttur.
Þýðandi Sigrún Helgadóttir.
21.40 Georgy (Georgy Girl)
Bandarisk gamanmynd frá
árinu 1966. Aðalhlutverk
Lynn Redgrave, Charlotte
Rampling, Alan Bates og
James Mason. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
Georgina, eða Georgy, er
ung og glaðleg hnáta. Hún
gefur sig litt að karlmönn-
um, en vinkona hennar og
herbergisfélagi, Meredith,
er hins vegar til I tuskið, og
hefur með framferði sinu ó-
fyrirsjáanleg áhrif á örlög
þeirra beggja.
Sunnudagur
14. september
18.00 Höfuðpaurinn. Banda-
risk teiknimynd. Þýðandi
Stefán Jökúlsson.
18.25 Tönlistarhátið ungs fólk.
18.55 Kaplaskjól. Bresk fram-
haldsmynd. Gjafahrossið.
„En ég mun flytja ljóð i kvöld ,
sem sýna sem flestar hliðar af
þessum demant”.
„Ljóðin eru einkum frá
Parisarárum minum, en þar
stundaði ég nám i leikhúsfræðum
og bókmenntum.”
— Hefur bók þin selzt vel?
. „Hvernig getur bók, sem heitir
„Ljóð vega salt” staðið kyrr?
— Um hvað fjalla ljóð þin?
„Ljóðin skýra sig sjálf. Ef þau
19.20 lllé.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 The New Settlers.
Siðastliðið vor var breska
söngsveitin The New
Settlers á hljómleikaferða-
lagi hér á landi, og kom þá
meðal annars við i sjón-
varpssal, þar sem þessi
upptaka var gerð. Stjóm
upptöku Egill Eðvarðsson.
20.50 Smásalinn. Breskt
sjónvarpsleikrit, byggt á
sögu eftir A. E. Coppard.
Aðalhlutverk Keith
Coppard. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson. Harvey er
farandsali, sem ferðast um
sveitir og selur bændum og
búaliði ýmiss konar
nauðsynjar. Á bæ einum
kemst hann i kynni við
Mary og móður hennar, sem
er roskin og heilsuveil.
Móðirin biður Harvey að
kvænast stúlkunni, sem
innan skamms á að erfa
jörðina, og er þar að auki
álitleg i besta lagi. Honum
list vel á þessa hugmynd, en
vill þó ekki rasa um ráð
fram.
21.40 Ilinn hinsti leyndar-
dómur. Bandarisk fræðslu-
mynd um rannsóknir á vit-
undog lifskrafti. I myndinni
er meðal annars fjallað um
sjálfsvitund jurta og örvera,
huglækningar og beitingu
hugarorkunnar. Þýðandi og
þulur Geir Vilhjálmsson.
22.20 iþróttir. Umsjónar-
maður Ómar Ragnarsson.
22.50 Að kvöldi dags.
gera það ekki þá gerir það eng-
inn.”
— Hefur þú fengizt við skáld-
sögu- eða leikritagerð? „Ég
treysti mér til að taka nokkra
kafla i skáldsögu og koma öllu
innihaldi þeirra fyrir I einu ljóði.
Það er nú einu sinni svo með mig,
Skáldiö, Sigurður Pálsson, að
heimili sinu á Tómasarhaganum.
að alltaf þegar ég byrja að skrifa
„prósa”, þá enda ég i ljóði”.
— Getur þú lifar af skáld-
skapnum eingöngu?
Nei ég hef aldrei getað komizt i
nógu ódýrt fæði sem þarf til að
geta lifað af listinni eingöngu.
Þess vegna hef ég stundað aðra
atvinnu jafnhliða. Siðastliðinn
vetur kenndi ég við báða leik-
listarskólana i borginni og i sum-
ar starfaði ég sem fararstjóri,”
sagði Sigurður að lokum.
— HE,
Útvarp kl. 19,35:
„Armenía er nýr heim-
ur fyrir íslending"
— Gunnar M. Magnúss flytur fyrri
þátt sinn um Armeníu
— Armenia er alveg nýr
heimur fyrir tslendinga, sagði
Gunnar M. Magnús, sem flytur
ferðaþátt um það ágæta land.
— Ég dvaldi i Armeniu i tiu
daga i ágústmánuði, sagði
Gunnar. Þangað fór ég ásamt
þeim Ólafi Ornólfssyni, loft-
skeytamanni og Elinu Guð-
mundsdóttur.
Armenia er á landamærum
Tyrklands og Iran að sunnan-
verðu en Rússlands að norðan-
verðu. Við ferðuðumst mikið
um, fórum upp á hálendið, skoð-
uðum borgir og söfn. Við dvöld-
um I höfuðborginni Jerevan,
sem er bæði eldgömul og
ný.tizkuleg.
Það er mikil velmegun i
Armeniu. Ibúarnir sem eru
Eranar lifa aðallega á útflutn-
ingi á suðrænum ávöxtum,
mjölvöru, kjötiðnaði, gúmmi-
og baðmullarframleiðslu og
fleiru.
— Þetta er mjög failegt fólk,
brúnleitt á hörund, svarteygt
og móeygt, sagði Gunnar.
Þeir eiTi kristinnar trúar og
byggðu þeir fyrstu kirjuna sem
sögur geta um. Vegna trúar
sinnar hafa þeir átt i stööugum
bardögum og það mjög illvíg-
um. Tyrkir reyndu aö útrýma
þeim en þeir eru múhameöstrú-
ar.
Eftir að fyrri heimsstyrjöld-
inni lauk gengu þeir i samband
með Sovétlýðveldinu.áður höfðu
þeir verið undirokaðir af Tyrkj-
um að hluta en að hluta sjálf-
stæðir.
Þessi þjóð hefur alið ýmsa
fræga menn, þar á meðal
tónskáldið Katsaturian, skák-
manninn Petroshan skáldið
Saroyan, sem siðan flutti til
Ameriku, og fleiri.
— HE.
Útvarp kl. 14,00 í dag:
Rœtt við umföluð-
ustu menn ársins
Á þriöja timanum i dag munu
Edda Þórarinsdóttir, Guðlaug-
ur Þorvaldsson, háskólarektor,
og Thor Vilhjálmsson rithöfund-
ur hella úr skálum vizku sinnar
yfir landsmenn.
Auk þess verða viðtöl við um-
töluðustu menn ársins, þá Jónas
jvristjánson og Þorstein Páls-
son. Viðtölin eru tekin sitt I
hvoru lagi en þeir fá sömu
spurningarnar.