Vísir - 13.09.1975, Blaðsíða 20
vísir
Laugardagur 13. september 1975.
Spönsku
gestirnir til
Club
Mollorca
koma á
fimmtudag
Háttsettir,spánskir gestir koma
til Club Mallorea næstkomandi
fimmtudag og á föstudag veröur
haldin mikil grfsaveizla aö Hótel
Sögu með bingói, sangria og til-
heyrandi.
Meöal gestanna er varaborgar-
stjóri Palma á Mallorca, sem
jafnframt er forseti Landssam-
bands hóteleigenda, og forseti
Ferðamálaráðs.
Annar er forstjóri Hótel Oasis
þar sem félagar i Club Mallorca
eiga að gista. Hann er jafnframt
aðalritari Ferðamálaráðsins.
Með þeim koma ýmsir aðstoðar-
menn, en ekki dansflokkurinn
sem búið var að ráða. Hann
komst ekki vegna þess hve
heimsöknin dróst á langinn og
hann þarf að vera viðstaddur
miklar hátiðir á eynni i þessum
mánuði.
Von var á þessum gestum mun
fyrr, en þeir hafa ekki átt
heimangengt vegna ófremdar-
ástands i hótelmálum á Spáni.
Þar var mikið yfirbókað um aðal-
ferðamannatimann og ýmis
vandræði af þvi.
— ÓT.
Jeppa-
keppnin
í dag
Torf æruaksturskeppninni
scm halda átti i nágrenni
Grindavíkur um sföustu helgi,
var frestaö þá vegna veðurs.
Ákveðið hefur verið að þessi
keppni fari fram i dag, laugar-
dag.
Björgunarsveitin Stakkur
heldur keppnina. Hún fer fram
i nágrenni Hagafells, við
Grindavíkurveginn, og hefst
kl. 14.30. Fimmtán þátttak-
cndur liafa skráð sig til keppni
á fimm mismunandi tegund-
um torfæruakstursbíla.
— ÓH.
Biskup vígir
nýjan prest í
Dómkirkju
Prestvigsla verður f Dómkirkj-
unni á morgun, sunnudaginn 14.
sept. kl. 11 f.h. Biskupinn yfir ís-
landi, hr. Sigurbjörn Einarsson,
vigir Svavar Stefánsson cand.
thcol til Hjaröarholtsprestakails.
Sr. Garöar Svavarsson lýsir
vígslu.
Vigsluvottar auk hans verða
sr. Jón Kr. tsfeld prófastur, sr.
Þorsteinn L. Jónsson og sr. Þor-
valdur K. Helgason. Sr. Þórir
Stephensen, dómkirkjuprestui;
þjónar fyrir altari.
Hinn nývigði prestur predikar.
Dómkórinn syngur undir stjórn
Ragnars Björnssonar, dómorgan-
ista.
Fíni sófinn er í
stóssstofunni
í slökkvibílnum
Hann er voldugur að sjá og tröll
i torfærum, Bedford Hjálpar-
sveitarinnar. i dyrunum standa
Snorri Hafsteinsson og Valgeir
Garðarsson en bilstjórinn, Sig-
urður Asgrimsson, hallar sér út
um gluggann.
Ljósm.: Ólafur Hauksson
Slökkviliðsbilar geta verið til
margs annars gagnlegir en að
slökkva elda. Félagar i Hjálpar-
sveit skáta i Vestmannaeyjum
fengu slika ofurást á slökkvibil
sem var i eigu Viðlagasjóðs að
þeir föluðust eftir bilnum. Þeir
fengu hann fyrir gott verð, og
unnu siðastliðinn vetur við að
breyta honum. Visir hitti
nokkra félaga úr sveitinni að
má!i þegar þeir voru nýkomnir
úr jómfrúarferð bilsins á
„meginlandinu.”
Blaðamanni var að sjálfsögðu
boðið sæti i sallafinum sófa i
„stássstofunni” i bilnum. Þar
sem áður var vatnstankur og
brunadælur er nú stórt hús með
plássi fyrir tuttugu manns.
Þarna mátti lita köfunarbún-
inga, bakpoka, svefnpoka, fjall-
klifurstæki, mataráhöld og
margt fleira.
„Við fórum stóran „rúnt” um
landið, og klifum i þeirri leið
Þumal i Vatnajökli sem enginn
hefur áður klifið,” sögðu þeir
Sigurður Asgrimsson, Snorri
Sófinn í „stássstofunni” I fyrrverandi slökkvibflnum er reyndar
ekki ætlaður til frambúðar heldur er hann notaður meðan annað
fæst ekki til að sitja á.
Hafsteinsson og Valgeir Garðs-
son, félagar i sveitinni.
„Billinn reyndist alveg stór-
kostlega i ferðinni. Við fórum
m.a. yfir Sprengisand án
minnstu erfiðleika. Það er bara
verst hvað hann eyðir miklu
benzini. Eyðslan er milli 40 og 50
litrará hundraðið. Ætli þetta sé
ekki met,” sögðu þeir félagar,
og bættu þvi við að þeir væru að
leita að góðri disilvél.
Þeir sögðust oft vera spurðir
hvað i ósköpunum þeir ætluðu
að gera við svona stóran fjalla-
bil i Vestmannaeyjum.
„Æltun okkar er i raun og
veru ekki sú að nota hann að
ráði i Eyjum. Við höfum fengið
vilyrði hjá bónda i Landeyjum
fyrir að hann geymi hjá sér bil
inn á sumrin, þá munum við
fara á gúmbátum milli lands og
Eyja, og nota bilinn að mestu til
fjallaferða á „tslandi.”
Þeir sögðu það vera nauðsyn-
legt fyrir hjálparsveitina að
hafa möguleika á þjálfunar-
ferðum annars staðar en i
Eyjum. Oft gengur erfiðlega að
útvega faratæki til slikra ferða,
ennúættiþaðvandamál að vera
leyst.
-ÓH.
LEITAR ASÍ TIL
BRÆÐRAFÉLAGA
ERLENDIS UM STUÐN-
ING í LAND-
HELGISDEILUNNI?
„Það hefur ekki komiö tit tals
ennþá að leita til bræðrafélaga
ASt i öðrum löndunt i sambandi
við aðgeröir i landhelgisdeiiunni
við Vestur-Þjóöverja cn við cr-
um opnir fyrir þvi aö taka það
til athugunar ef við teljum þess
þurfa,” sagði Björn Jónsson,
forseti ASt, i samtali við Visi I
gær.
„Við höfum oft kynnt bræðra-
samtökunum afstöðu okkar i
þessum málum, bæði Alþjóða-
sambandi verkalýösfélaga,
Evrópusambandinu oe Norræna
sambandinu. Það fer ekkert
miili máia að forystumönnum
þessara samtaka er kunnugt um
viöhorf okkar til þessara mála,”
sagði Björn.
Hann sagði einnig að hann
væri ánægður með þær móttök-
ur sem samþykkt ASt um af-
greiðslubann á vestur-þýzku
eftirlitskipin hefur fengið. „All-
ir hafa tekið þessu ákaflega vel
og manni heyrist að almennt
séu menn sammála um nauðsyn
þess að ASt gerði þessa sam-
þykkt. 011 blööin hafa t.d. tekið
þessu afar vel.”
Auglýst hefur verið á vegum Innkaupastofnunar rikisins útboð
á byggingu nýs húss fyrir norska sendiráðið I Reykjavik. Nýja
húsiö verður reist á lóð sem norska sendiráöið hefur átt frá árinu
1936 á Fjólugötu 17, en bústaður norska sendiherrans er að
Fjólugötu 15. Byggt verður tveggja hæöa hús sem i verða skrif-
stofur og ibúðir fyrir starfsfólk. 1 útboðsauglýsingu segir að
verkinu skuli lokið fyrir árslok 1977. Teiknistofan Arkir teiknaði
og það voru arkitektarnir Haukur Viktorsson og Ulrik Arthurs-
son sem verkið unnu. Norska sendiráðið er nú til húsa að
Hverfisgötu 45 en það hús hefur veriö i eigu-norska rikisins frá
árinu 1917. Sendiherrabústaðurinn að Fjólugötu 15 var keyptur á
striðsárunum og hefur lengi staðið til að byggt yrði á lóðinni nr.
17.
„ENGINN FENGIÐ LÓD
VEGNA FRAMLAGS TIL
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS"
— sagði Albert, en vildi ekki rœða um morðsveitirnar
— Þaö hefur enginn
fengið lóö vegna fram-
laga til Sjálfstæðisf lokks-
ins og það hefur enginn
fengið neitun vegna þess
að hann hafi ekki viljað
leggja fram fé, sagði Al-
bert Guðmundsson, i við-
tali við Visi i gær. Hann
vildi hinsvegar ekki ræða
um þær morðsveitir sem
hann sagði í Dagblaðinu
að stefndu að mannorði
sinu í bak og fyrir.
Ég hef talað við sjálfstæðis-
fólk viðsvegar að af landinu,
bæði fyrirtæki og einstaklinga,
og reynt að fá það til að standa
saman um að gefa Sjálfstæðis-
flokknum þessa byggingu.
— Þar á meðal eru góðir sjálf-
stæðismenn sem eru aðstand-
endur Einhamars. Það er rétt
að þeir hafa ekki ennþá lagt
fram fé til byggingarinnar en
það kemur-óðaúthlutunum ekk-
ert við.
— Hvað um morðsveitir sem
þú segir að sæki að mannorði
þinu?
— Ég vil ekki gera frekari
grein fyrir þvi á þessu stigi. En
ég vil leggja á það áherzlu að
þegar sótt er að mér þá magn-
ast ég. Og ég vona að allt sjálf-
stæðisfólk skilji að það þarf að
standa þéttar saman um bygg-
inguna nú en nokkru sinni fyrr.
Þetta á að hleypa baráttuhug i
okkur.
Visir hafði einnig samband
við forsætisráðherra og bað um
upplýsingar um rannsókn hans
á dylgjum i sambandi við lóða-
úthlutanir. Hann bað um frest
framyfir helgi til að svara
vegna anna.
— ÓT:
mmmmmmmm