Vísir - 24.09.1975, Blaðsíða 5
Vísir. Miðvikudagur 24. september 1975
5
ÍTLÖND í MORGUN ÚTLÖND ÍORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson
Þegar dimmir fara
skytturnar á kreik
viku að þessu sinni — með stöku
hléum. En þetta er i fjórða sinn sið-
an i marz, að Libanon logar i
óeirðum vinstri- og hægrimanna.
Meðal hægrimanna eru kristnir
áberandi, en múhameðstrúarmenn
og skæruliðar Palestinuaraba
fremstir i röðum óeirðarmanna á
vinstri væng.
Siðustu ráðstafanir stjórnarinnar
til að reyna að koma á sáttum virð-
ast ekki falla i góðan jarðveg, og
eru það einkanlega vinstrimenn,
sem setja sig upp á móti þeim. —
En flestir telja, að það hafi verið
mistök að velja fulltrúa i sérstaka
sáttasamninganefnd eftir flokks-
linum að kröfu Jumblatt, leiðtoga
vinstrimanna. Nauðsyn hefði verið
að velja mennina eftir trúarbrögð-
um.
Abdel-Ha im Khadda, utanrikis-
ráðherra Sýrlands, hefur reynt að
hafa milligöngu um að bera klæði á
vopn hinna striðandi fylkinga i
Libanon. Hefur hann verið á stöð-
ugum fundum með fulltrúum
deiluaðila siðan á föstudagskvöld.
Um árangur þessara viðræðna
vildi hann ekki annað segja við
fréttamenn i gærkvöldi, en ....„við
erum ekki búnir enn.”
Líbanonstorð nötraði í
gærkvöldi undan fallbyssu-
skothrið og sprengjudrun-
um, og þar með var á enda
annað vopnahléð, sem reynt
hef ur verið að koma á þar á
tæpri viku.
FELLIBYLURINN
Fellibylurinn, Eloise, hefur
lækkað i virðingarstiganum og
kallast nú aðeins venjulegur
hitabeltisstormur. En áður lét
hún eftir sig mikla slóð eyði-
leggingar meðfram strönd
Flórida, þar sem hún hratt á
undan sér flóðbyglju.
Þúsundir ibúa Flórida flúðu
til hærra liggjandi staða und-
an flóðbylgjunni. Þó sluppu
fjölbýlustu svæðin við verstu
vindrokurnar úr Eloise. —
1 Mikil spjöll urðu samt i Fort
Walton og nágrenni, og eins i
Panamaborg þar fyrir sunn-
an.
Aður en Eloise kom til
Flórida hafði hún farið yfir
Gærdagurinn hafði verið fremur
tiðindalitill og vonir vöknuðu um,
að vopnahléð yrði að þessu sinni
haldið og kyrrð og friður kæmist á.
En þegar dimma tók, fóru skytt-
urnar á kreik og byssukúlurnar
hvinu um strætin i Beirút i gær-
kvöldi og langt fram á nótt.
Þessi átök hafa nú staðið á þriðju
LOKS í RÉNUN
Karibahafið, eins og svo
margarsysturhennará undan
henni. Varð hún 30 manns að
bana i Puerto Rico og i
Dóminikanska lýðveldinu.
Ekkert manntjón er talið hafa
orðið i Flórida.
Veðurfræðingar segja, að
vindhraði Eloise hafði nú fall-
ið úr 135 km/klst niður i 112
km/klst.
A myndinni hér fyrir neðan,
sem Visi barst simleiðis i
morgun, getur að lita yfir
bátahöfnina i Fort Walton og
má af skemmdunum nokkuð
sjá, i hvers konar ham Eioise
liefur verið.
Ætlar hún að verja
sig sjálf?
Tvær konur úr Kaliforniu, báðar
ákærðar fyrir tilraunir til þess að
svipta Ford Bandarikjaforseta
íifi, sitja nú i fangelsi og biða, önn-
ur þess að mál hennar komi fyrir
og hin þess að sæta geðrannsókn.
Sara Jane Moore verður látin
sæta umfangsmikilli geðrannsókn
til þess að ganga úr skugga um,
hvort hún sé sakhæf. — Þessi mið-
aldra móðir 9 ára ^amals drengs
skaut á Gerald Ford úr skamm-
byssu á mánudaginn, og var það
annað tilræðið, sem honum hefur
verið sýnt á sautján dögum.
Meðan svona er komið fyrir
Moore, hefur Lynette Fromme, 26
ára fylgikona Charles Mansons,
verið úrskurðuð sakhæf af sálfræð-
ingum.
Thomas McBride dómari úr-
skurðaði um leið, að hún gæti feng-
ið að koma fram sem sinn eigin
verjandi i réttarhöldunum. En
hann varaði hana við þvi, að hún
gæti ekki „rokið upp og niður eins
og bulla i vélastrokk” til að láta
bóka mótmæli gegn réttarhöldun-
um, eins og mörgum leikmannin-
um hættir til, sem stendur i þeirri
trú, að þau séu eitthvað i svipuðum
dúr og það sem þeir sáu i Perry
Mason-sjónvarpsþáttunum.
Verjandi Söru Moore, James
Hewitt, var spurður að þvi i gær,
hvort skjólstæðingur hans hefði
skemmtun af þeirri frægð og at-
hygli, sem hún nyti þessa dagana.
— Hún var skælbrosandi út undir
bæði eyru, þegar kom til réttarsal-
arins i gær.
„Ég held, að þetta séu engir
skemmtitimar hjá henni,” svaraði
hann.
Hann býst við þvi, — verði hún
úrskurðuð ósakhæf — að hún verði
látin dvelja sex mánuði á fanga-
sjúkrahúsi til að reyna að lækna
hana, áður en hún yrði sett i ör-
yggisgæzlu á geðsjúkrahús.
Þurftu að úminna
Guillaume um að
skila leyniskjölum
Gunther Guillaumc, sem sak-
aður er um njósnir fyrir A-Þjóð-
verja, notaði aðstöðu sina sem
trúnaðarmaður Willy Brandts
kanslara tii að hafa með sér
leyniskjöl hcim. Eitt sinn hélt
hann þeim svo lcngi, að áminna
þurfli hann uin að skila þeim
aftur.
Réttarhöldin i máli Guillaum-
es, sem handtekinn var ásamt
konu sinni i april i fyrra, standa
enn yfir.
I vfirheyrslum i gær greindi
einn starfsmanna kanslara-
embættisins frá þvi, aö
Guillaume liefði tveim vikum
eflir að hann kom heim frá 2
vikiia fríl 1973 i Noregi (með
Willy Brandt) haldið 18 tclex-
skeytum merktum trúnaðarmál,
heima hjá sér, Skilaði hann
þeim ekki fyrr en hann hafði
verið áminntur.
En starfsmaöurinn skýrði frá
þvi uin leið, að opinberir starfs-
inenn væru margir trassar I
þessuin efnum, og þctta hcfði
ekki þótt óvcnjulegt.
Ætluðu að hafa með $ér
kyrkislöngur á völlinn
Brezk vfirvöld ætla að hrinda af stað rannsókn á þvi, hvað knýi
ungmenni til skem mdarverka og ofbeldis á ferðalögum þeirra til
þess aö fylgjast með knattspyrnuleikjum.
Vandalismi ungra knattspyrnuaðdáenda er orðinn þjóðar-
skönim i Bretlandi, og hefur m.a. neyttbrezku járnbrautirnar til
að lcggja niður sérstakar ferðir til að flytja fólk milli staða aö
horfa á knattspyrnuleiki.
Nýjasta uppátæki þcssara pörupilta laut aö þvi að stela tveim-
ur fimm metra löngum kýrkislöngum og ætluðu þeir að smygla
heiin meðsér inn á völlinn i leik Southampton næsta laugardag.
Fœr ekki að giftast unnusta sínum
Austurrisk kona, sem hafði vonazt til þess að fá að gifta sig I
Moskvu i gær, varði I stað deginum til hungurverkfalls I Sankti
Stefáns dómkirkjunni i Vinarborg. Hún er að mótmæla synjun
Kremlherranna um leyfi til að koma til Sovétrikjanna.
Þcssi 32 ára kennslukona neytti aðeins vatns I gær og kvaðst
ekki inundu láta annaö inn fyrir sinar varir, mcöan sovézk yfir-
völd sætu við sinn keip.
Unuusti hennar i Moskvu sagði blaðamönnum á meöan, að þau
ætluðu sér að lcita til leiðtoga þeirra 35 rikja, sem undirrituðu
llclsinki-y firlýsinguna, eftir hjálp til þess að fá Sovétstjórnina til
að standa við loforðin um að greiða fyrir hjónaböndum milli
fólks af óliku þjóðerni.
Fresturinn rann út hjá Claustre í gœr
Utanríkisráðherra Chad sakaði Frakklandsstjórn i gær um ó-
þolandi afskipti af innanrikismálum I Chad og átti þar við til-
raunir Frakka til þess að bjarga Francoise Claustre úr höndum
uppreisnarmanna i Chad.
Franska stjórnin hcfur boðið uppreisnarmönnum peninga,
ökutæki, og hjálpargögn i skiptum fyrir konuna. — Uppreisnar-
mcnn liöföu liótaö að taka hana af lifi i gær, ef lausnargjaldið
bærisl ekki áöur en frestur rann út.
Af þvi varö þó ekki I gær, og hefur enn fengizt frestur til aö
reyna að ná fornleifafræðingnum og eiginmanni hennar, sem
sömuleiðis er fangi uppreisnarmanna I Tibesti-eyðimörkinni, úr
prisundinni.
En það hefur tafið málið mjög, að yfirvöld I Chad eru mjög ó-
samvinnuþýð, enda óttast þau, að uppreisnarntennirnir noti 10
ntilljón franka lausnargjaldið til frekari hryðjuverka.
Hér er John
Lennon ásamt
Yoko Ono.
LENNON
FÆR FREST
Vonir hafa vaknað að nýju hjá
John Lennon, eins úr gamla
Bítlahópnum, i tveggja ára til-
raunum hans til að fá dvalar- og
atvinnulcyfi i Bandarikjununt.
Yfirvöld, scnt höfðu visað
honum úr landi, frestuðu aö
senda hann burt, þvi að kona
hans, Yoko Ono, scm hefur
dvalarleyfi i USA, gengur kona
ekki einsömul. — Þykir of kald-
ranalegt að stia þcirn i sundur
úr þvi þannig stendur á.
Það, sem yfirvöld I USA fiuna
Lennon til foráttu, er gamalt
mál, þar sein eitt sinn á ferðum
Lennons fundust I fórum hans
hass-fikniefni.