Vísir - 24.09.1975, Qupperneq 15
Vísir. Miðvikudagur 24. september 1975
15
1973
Þannig var útlitið 5. febrúar
1973, þegar hálfbyggt hús þeirra
Sævars og Astu var næstum allt
komið undir ösku.
,,Brostnar vonir"
kölluðum við mynd sem
birtist i Visi 5. febrúar
1973. Myndin var af húsi í
byggingu í Vestmanna-
eyjum. Gosaska hafði
næstum fyllt hálfbyggt
húsið að innan.
Eigendurnir flúðu frá
Eyjum, eins og aðrir íbú-
ar þar. Meðan á þessum
hörmungum stóð, hafa
þeir tafarlaust hugsað
mikið um það hvort húsið
kæmi nokkurn tímann til
með að risa meira en
orðið var.
Myndina, sem
Guðmundur Sigfússon,
fréttaritari Visis í Eyjum
tók fyrir skömmu, mætti
kalla ,,Bjartar vonir
BJARTAR VONIR VAKNA Á NÝ
vakna". Hún er af sama
húsinu sem nú er orðið
fokhelt. Eigendurnir,
hjónin Sævar Tryggvason
og Ásta Sigurðardóttir,
eru komin aftur og ætla
að Ijúka við að byggja
húsið.
Viðlagasjóður yfirtók
húsiðá sínum tíma. Rúm-
um tveimur árum eftir að
gosið hófst, keyptu þau
Sævar og Ásta húsið aftur
af sjóðnum og hófu
endurreisnarstarf ið.
,,Við hefðum líklega
ekki komið aftur, ef við
hefðum ekki fengið þetta
hús," segir Sævar. -OH.
i dag: Húsiö sem við tötdum
dæmi um brostnar vonir fyrir
rúmum tveimur árum, er nú
dæmi uin hið gagnstæða. Sævar
og Ásta, húseigendurnir, standa
á þakinu.
Ljósm.: Guðmundur Sigfússon.
1975
NÝR BJÖRGUNAR-
BÚNINGUR
Eins og kunnugt er eru nú
oliuborpallar víða i Norðursjó.
Flogiö er með oliuverkamenn-
ina til vinnu i þrylum. Augljóst
mál er að verulegt hættu-
ástand getur skapazt ef eitt-
livað fer úrskeiðis með þyrl-
una og mennirnir fara i sjóinn.
Talið er að óvarinn maöur geti
ekki lifað nema i sex minútur i
úfnum Noröursjónum að
vetrarlagi.
Nú hefur hins vegar Shell, i
samvinnu við British Airways
látið hanna sérstakan
björgunarbúning, sem getur
haldið lifi i mönnum i isköldum
sjónum i allt að 1 1/2 klst.
Búningur þessi er af sérstakri
gerð, tvöfaldur með lausri
hettu. Hann er svo þjáll að
engum erfiðleikum á að vera
bundið að komast út úr flaki
þyrlu sem hlekkzt hefur á, á
augabragði.
Shell fyrirtækið i Bretlandi
hefur þegar pantaö 200 slika
búninga og i framtiðinni er
ætlunin að allir þyrlufarþegar
verði iklæddir slikum búningum
þegar flogið verður með þá til
fjarlægra borpalla.
Kannski eitthvað fyrir okkur?