Vísir - 26.09.1975, Side 5
Visir. Föstudagur 26. september 1975
5
'LÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ morgun ÚTLÖND í MORGUN ÚTL Umsjón: Guðmundur Pétursson
Við setningu ráðherrafundar OPEC I Vinarborg. T.h. sést Ahmed
Zaki Yamani, sheik.
OPEC-ráðherrar
rífast um pró-
sentin og olíu
Ahmed Zaki Yamani,
olíumálaráðherra Saudi
Arabiu, stóð einn uppi
gegn hinum tólf olíuráð-
herrunum á fundi sam-
taka olíuútflutningsríkja
i gær, og lét sig hvergi.
Hinir taka ekki í mál
minni verðhækkun á olíu,
en sem nemur 15%. Yam-
ani sheik verður hins veg-
ar ekki af því skekinnað
5% sé algjör hámarks-
hækkun.
Flestir töldu, að þessi ásteyt-
ingur hefði leitt til þess, að fund-
urinn flosnaði upp, þegar menn
sáu, að Yamani yfirgaf fundinn
i Vinarborg og tók sér flugvél til
Lundúna.
,,Nei, ég gekk ekki af fundi.
Ég þarf hins vegar að hafa sam-
ráð við stjórn Sáudi Arabiu, og
mér hefur ekki tekizt að ná
sambandi við hana i Vin. Þvi fór
ég til London,” sagði Yamani
ráðherra við fréttamenn.
Fundurinn i gær stóð i fjórar
klukkustundir og var sagt, að
þar hefði gengið á ýmsu. Þetta
var annar fundardagurinn.
Hefur kvisast út af honum,
að allir hafi orðið sammála um
15% verðhækkun eða rúmlega
það. Allir nema Yamani. —
Sögðust þá fundarmenn hafa
dregið mikið úr fyrirhuguðum
verðhækkunum, og lengra væri
ekki unnt að ganga til móts við
sjónarmið Saudi Arabiu. Þeir
höfðu nefnilega hugsað sér 20%
hækkun.
Ætlunin mun hafa verið sú, að
15% hækkunin kæmi annað
hvort strax til framkvæmda i
næstu viku, eða þá i áföngum.
Hluti hennar strax, en sumt i
janúar, og skyldi þetta nýja
verð gilda til september 1976.
Hækki olian um 15% þýðir það
að fatið af oliunni hækkar um
1,50 dollar. En tölfræðingum
reiknast þá svo til að reikning-
urinn af oliuneyzlu heims hækki
þá um 15.000 milljón doliara yfir
árið.
Yamani sheik sagði eftir
fundinn: ,,Ég held ekki, að ég sé
tilbúin til að samþykkja meira
en 5% hækkun.”
Dr. Mofia Tonjo Aboko, oliu-
ráðherra Nigeriu, sagði eftir
fundinn, að Yamani hefði lengi
á fundinum haldið sig við fimm
prósentin, en siðan slakað til
upp i 10%.
Yamani sheik flaug af fundinum í Vín til London og kveðst
ekki fara hœrra en 5%. — Hinir vilja 15% hœkkun
i *
Settust um fangelsið
Þúsundir mótmælandi
borgara í Lissabon settust
um fangelsi hersins
snemma í gær og neyddu
stjórn fangelsisins til að
sleppa tveim kommún-
istískum hermönnum úr
haldi.
Mannsöfnuðurinn setti upp
vegatálma viö alla vegi sem
liggja til Trafariafangelsisins,
þannig að liðsauki gat enginn
borizt. Fangelsið liggur á fjar-
lægari bakka Tagus-árinnar, sem
rennur hjá Lissabon.
Fangelsisstjórnin lét fangana
tvo ganga frjálsa út úr fangeísinu
og hverfa inn í fagnandi
mannfjöldann.
Kommúnistar, sem finna sig
vera að missa undirtökin, sem
þeir höfðu i hernum og stjórn
landsins, hafa æst til götuóeirða
og þúsundir liðsmanna þeirra
hafa farið fylktu liði um götur til
að hrella stjórnmálaandstæðinga
þeirra.
Sprengja sprakk i Lissabon i
þessari ólgu í gærkvöldi, og er
vitað með vissu, að tveir menn að
minnsta kosti létu lifið af hennar
völdum.
Töluvert ber á vinstrisinnuðum
hermönnum i kröfugöngum
kommúnista, og voru þeir
framarlega i flokki mannsafnað-
arins við Trafariafangelsið. Enda
sitja i fangelsinu hermenn, sem
uppvisir hafa orðið að ýmsum
brotum. En auk þess eru hafðir
þar i haldi nokkrir þeirra hægri-
manna, sem teknir voru úr um-
ferð, þegar herinn bylfi hægri-
stjórninni fyrrverandi.
Spáðu um gosið
Simamyndin hér við hliðina
barsti morgun af eldgosi ár Tol-
bachik-eldfjallinu á Kamchatka
I Sovétrikjunum. Riíssar segja,
að þetta sé stærsta eldgos, sem
menn minnist þar um slóðir. —
Tolbachik heyrir til hinum
fræga Kiyuchevskaya-eldfjalla-
klasa.
Sovézkir jarðfræðingar höfðu
spáð fyrir um þetta gos, og er
það í fyrsta skipti, sem slik for-
spá er höfð um eldgos. Athugan-
ir þeirra gáfu þeim til kynna
m.a.s., hvar eldgosið yrði.
Þann 6. júlf 1975 byrjaði svo
Tolbachik að gjósa og hefur
gosið siðan, aðallega ösku og
vikri. Nú nýiega fór svo glóandi
hraun að renna úr gignum.
Þingið spyrnir við
Fordstjórnin hefur nú
rekið sig á eina alvarlega
torfæru í tilraunum sínum
til að vinna samþykki
þingsins á ráðagerðinni um
að setja bandaríska tækni-
menn á vörð í Sínaíeyði-
mörkinni — sem var eitt
skilyrði samninga ísraela
og Egypta.
Sumir fulltrúar utanrikismála-
nefndar öldungadeildarinnar
krefjast þess, að öll spilin verði
lögð á borðið um loforð Banda-
rikjastjórnar við Egypta og tsra-
ela viökomandi þessum samn-
ingum.
Stjórnin spyrnir hinsvegar við
fótum, og telur það muni mjög
verða henni til trafala i utanrikis-
málum, verði hún að kunngera
það sem henni og stjórnum
Egyptalands og Israels hefur
farið á milli.
1 von um málamiðlun sat
Henry Kissinger utanrikisráð-
herra fund með utanrikisnefnd-
inni i gærkvöldi. Stóð sá fundur i 2
1/2 klst., en að honum loknum
voru menn jafnnær.
Fyrr i gær hafði Ford forseti
varað þingleiðtoga viö þvi, að
dráttur á samþykki þingsins til
staðfestingar loforðum Banda-
rikjastjórnar gæti orðið til þess að
spilla þvi, að samningur Egypta
og tsraels yrði að veruleika.
Eftir fundinn i gærkvöldi voru
menn þó ekki úrkula vonar um,
að frekari viðræður stjórnarinn-
ar og þingnefndarinnar gætu
leyst þennan hnút. Þær færu þó
naumast fram fyrr en i næstu
viku, og ekki að vænta þess, að
þingið afgreiði málið fyrr en i
fyrsta lagi eftir hálfan mánuð. Er
það öllu siðar en Fordstjórnin
ætlaði.
BANDARIKJAÞING
HLYNNT 200 MÍLNA
FISKVEIÐILÖGSÖGU
fiskiskip skuli hafa forgang u
veiði innan 200 milna breiðs sva
is um strendur Bandarikjann
Það gerir ráð fyrir, að erlei
fiskiskip fái þvi aðeins að vei
innan þess svæðis, að bandarisl
fiskimenn hafi ekki gengið
nærri fiskistofnunum.
Greinilegt er, aö þingme:
hafa látið sér segjast af kvörtu
um fiskimanna i Bandarikjunui
sem bera sig upp undan sókn <
lendra fiskveiðiflota á mið þeirr
Einkum þykja Rússar og Japar
ásælnir.
Verzlunarmálanefnd öldunga-
deildar Bandarikjaþings sam-
þykkti I gær lagafrumvarp, sem
jafngilda mundi 200 milna fisk-
veiðilögsögu Bandarikjanna, ef
frumvarpið yrði að lögum.
Þetta frumvarp er svipað öðru,
sem samþykkt var I siglinga-
málanefnd fulltrúadeildarinnar,
og er ámóta og frumvarp, sem
öldungadeildin samþykkti undir
siðustu þinglok, en varö aldrei að
lögum.
Það felur i sér, að bandarlsk