Vísir - 26.09.1975, Síða 8
8
Vlsir. Föstudagur 26. september 1975
NY
VERZLUN
OPNUM Á MORGUN
í BREIÐHOLTI
ENSKI LANDSLIÐS*
BÚNINGURINN
HOLLENZKI LANDSLIÐS'
BÚNINGIJRINN
FLESTIR ENSKU OG ÍS-
LFNZKIl 1. DEILDA
BUNINGARNIR
PUMPA
ÍÞRÓTTATÖSKUR
BORÐTENNIS-SPAÐAR
KÚLUR
NET
llintq@M> ©íhmmmnmt
HÓLAGARÐI
LÓUHÓLUM 2-6
Danskennsla Þ R.
Námskeið í gömlu dönsunum og þjóðdöns-
um hefjast miðvikudaginn 1. okt. og
mánudaginn 6. okt n.k.
Kennsla i barnaflokkum félagsins hefst
mánudaginn 6. okt.
Fyrir börn 4—12 ára. Innritun verður að
Fríkirkjuvegi 11, laugardaginn 27. sept.
milli kl. 2 og 6 og i sima 15937 og mánudag-
inn 29. sept. í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu milli kl. 7 og 10 e.h. og i sima 12826.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
Hesthús til sölu
Til söíu er 12 hesta hús i Glaðheimum,
Kópavogi. Hesthúsið er með innréttingu
úr járni og sjálfbrynningu.
Uppl. í símum 38375 og 73845.
Smáauglýsingar Visis
Markaðstorg
tækifæranna
Vísir auglýsingar
Hverfisgötu 44 sími 11660
Llkan af nýtizku fjósi og hlöAu, þar sem ööru megin er þurrheysgeymsla og hinum megin flatgryfja
fyrir súrhey.
Helmingur heyfengs
bœnda þyrfti að
vera vothey
„Lofttœmingaraðferðin engan umtalsverðan
kost fram yfir venjulegan votheysverkun"
,,Ég tel, að lofttæm-
ingaraðferðin hafi eng-
an umtalsverðan kost
fram yfir venjulega
votheysverkun. Á ég
þar við venjulega verk-
un i súrheysturn eða
flatgryfju.”
Þetta sagði Magnús Sig
steinsson, byggingar- og bú-
tækniráðunautur hjá Búnaðar-
félagi tslands, er við ræddum
við hann um sogtæmingar- eða
lofttæmingaraðferð, sem notuð
hefur verið við votheysverkun
að Nýjabæ og Hvammi undir
Eyjafjöllum. Heygeymslur und-
ir votheyið þar hefur Einar
Guðjónsson járnsmiðameistari
hannað. Einar sagði VIsi i við-
tali fyrir nokkru, að enn væri
málið á tilraunastigi, en aðferð-
in hefði gefizt vel.
Magnús sagði, að bútækni-
deild Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins hefði gert rann-
sókn á heygeymslu Einars fyrir
2—3 árum í Hvammi. t þeirri
prófun kom i ljós, að útilokað
var að fá geymsluna loftþétta,
þannig að ekki tókst að mynda
neinn verulegan undirþrýsting i
henni og allverulegur hiti mæld-
ist I heyinu.
Loftið i heyinu
litið eftir að það
er látið inn.
„Aðalatriðið við votheysverk-
un,” hélt Magnús áfram máli
sinu ,,er að útiloka að utanað-
komandi loft komist I heyið.
Loftið, sem er i heyinu eftir að
það er látið inn, er það litið, að
jurtirnar nota súrefnið allt á
nokkrum klukkustundum. Þetta
á auðvitað aðeins við, ef troðið
er vel i geymslurnar.
í turnum þrýstist loftið út
fyrir áhrif þunga, sem stöðugt
bætist ofan á, en iflatgryfjum er
traktor notaður til þess að troða
heyið niður jafnóðum.
Veika hliðin við lofttæmingar-
aðferðina i heyverkun er sú, að
mjög erfitt er að fá geymslurn-
ar 100% loftþéttar. Þess vegna
er erfitt að soga loftið úr heyinu
án þess að eiga þá á hættu að
draga stöðugt inn nýtt súrefnis-
rikt loft.
Það eru mörg ár siðan lóft-
tæmingaraðferðin kom frarri er-
lendis. Þar hefur hún aðeins
verið notuð til bráðabirgða en
ekki náð neinni útbreiðslu.
Þarf að hanna vot-
heysgeymslur þannig
að auðvelt sé að
koma tækni við
Ef votheysverkun á að ná
verulegri útbreiðslu og vinsæld-
um hjá islenzkum bændum,
verður fyrst og fremst að hanna
votheysgeymslur þannig, að
auðvelt sé að koma við tækni við
fyllingu þeirra og losun og gera
flutning votheysins auðveldan
alla leið til gripanna. Þetta er
vegna þess, að votheyið er mun
þyngra i meðförum en þurrhey-
ið.
Það er liðin tið og á mis-
skilningi byggt að halda, að af
votheyi sé vond lykt og hún loði
við menn lengi á eftir. Gott vot-
hey er þvi sem næst lyktarlaust.
Gæði i votheyi byggjast auðvit-
að mest á vandvirkni og skiln-
ingi þess, sem það verkar.”
Þá sagði Magnús, að það væri
misskilningur, að það þyrfti
tvöfaldan vélakost, annars veg-
ar við vothey og hins vegar við
þurrhey. Þeir bændur, sem ættu
heyhleðsluvagna, svo að eitt-
hvað væri nefnt, gætu notað
hann jöfnum höndum við hirð-
ingu votheys og þurrheys. Hins
vegar komast menn af með mun
minni vélakost, ef þeir eru ein-
göngu með votheysverkun.
„Við viljum eindregið hvetja
bændur til að stóráuka votheys-
verkun. Æskilegast væri, að
helmingur heyfengs bænda væri
vothey,” sagði Magnús að lok-
um.