Vísir - 24.11.1975, Síða 7
VISIR
Mánudagur 24. nóvember 1975.
LÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN
Umsjón^ Guðmundur Pétursson
WHITLAM
KALLAR
FRASER
JNN-
BROTS-
ÞJÓF..."
Frá likfylgd
Francos hers-
höfðingja i Madrid
i gær.
Á Spáni er nú hafið
nýtt timabil undir
stjórn Juan Carlos I.
Spánarkonungs,
Franco-timabilið leið
endanlega undir lok,
þegar einræðisherrann
aldni var jarðsunginn i
gær.
Konungurinn, sem sór
embíettiseið sinn á laugardg,
S,at í forsæti við minningarat-
höfnina i gæc, en tugir þúsunda
spánverja söfnuðust saman á
Oriente-torgi Madrid, meðan
Marcelo Gonzalez Martin
kardináli söng messu til sálu-
hjálpar hinum látna.
Franco var lagður til hinstu
SPANVERJAR A BAÐUM
ÁTTUM UM JUAN CARLOS
hvildar við minnimerki og graf-
reit hinna föllnu úr borgara-
styrjöldinni i ,,Dal hinna
dauðu”, en sá staður er um 58
km utan við Madrid. — Áður
hafði kista hins látna leiðtoga
staðið uppi nokkra daga opin
meðan þúsundir spánverja vott-
uðu ,,E1 Caudillo” hinstu
virðingu sina.
Ræðu Juan Carlos sem hann
flutti um leið og hann sór
konungseiðinn á laugardaginn
hafði verið beðið með mikilli
eftirvæntingu. Stjórnarand-
stæðingar hlustuðu vandlega
eftir væntanlegum fyrirheitum
um aukið pólitiskt frjálsræði, en
falangistar eftir yfirlýsingum
um að arftaki Francos hers-
höfðingja mundi fylgja stefnu
fyrirrennara sins.
Menn velta vöngum yfir þvi
hvort sá friður sem rikt hefur
innanlands undirstjórn Francos
siðustu 36 ársin sé nú á enda.
Helstu leiðtogar stjórnarand-
stöðunnar hafa þó lýst þvi yfir,
að þeir muni sýna þolinmæði og
ekki hafast að fyrsta kastið
meðan Juan Carlos sýndi hvað i
honum býr.
Ýmsir úr þeirra hópi lýstu
samt yfir vonbrigðum vegna
ummæla konungs við
eiðtökuna, þegar hann sagði að
„festa og forsjálni” skyldu
verða einkunnarorð rikis hans.
— Lögðu menn út af þvi að
konungur mundi vilja halda við
stjórnkerfi Francos.
Juan Carlos sagði við
minningarathöfnina i gær, að
stefnu Francos hershöfðingja
yrði best fylgt með þvi að
„stuðla að félagslegu réttlæti
sem efla mun þjóð vora og sam-
eina”.
. -lJI
Hér hvila jarðneskar leifar Francos með föllnum hetjum borgara-
styrjaldarinnar.
Heleno tekur við Nóbels-
verðlaunum fyrir Sakharov
Helena Sakharov ætl-
ar til Osló i næsta mán-
uði til þess að veita við-
töku friðarverðlaunum
Nóbels fyrir hönd eigin-
manns sins, Andrei Sak-
harov.
Með i för hennar verða gest-
gjafi hennar, þar sem hún dvelst
til lækninga i Flórence á Italiu,
þýðandi og prófessor Renato
Frezzoti sem gerði aðgerðina á
augum hennar. — Helena hefur
við augnsjúkdóminn „glaucoma”
að striða.
Helena hefur verið til lækninga
á Italiu siðan i ágúst. Nýlega
framlengdu sovésk yfirvöld feröa
leyfi hennar, og'ætlar hún að nota
timann til þess að taka við friðar-
verðlaununum.
Bóndi hennar getur sjálfur ekki
verið við afhendinguna i Osló, þvi
að sovésk yfiryöld neituðu honum
um vegabréf og ferðaleyfi. Var
þvi borið við að hann lumaði á
rikisleyndarmálum frá þeim
tima sem eðlisfræðingurinn starf-
aði að gerð vetnissprengju Sovét-
rikjanna, en Sakharov hefur
stundum verið nefndur „faðir
vetnissprengju Rússa”.
Þau hjónin hafa bæði sagt að
þetta væru eintómar viðbárur
yfirvalda. Segja þau langt vera
siðan andófsmanninum Sakharov
hafi verið treyst fyrir leyndar-
störfum, enda hefur hann verið i
ónáð stjórnvalda um árabil fyrir
mannréttindabaráttu sina. Hafa
þau hjón bent á að visindamenn
sem starfi að leyndarrannsókn-
um fái óhindrað að ferðast milli
landa.
Andrei Sakharov fékk friðar-
verðlaunin fyrir baráttu sina fyr-
ir auknum mannréttindum til
handa sovétborgurum.
Gough Whitlam, sem
vikið var úr forsætisráð-
herraembætti Ástraliu,
hóf i dag formlega kosn-
ingabaráttu Verka-
mannaflokksins með þvi
að skora á ástrali ,,að
leiðrétta rangindin”,
sein stjórn hans var
beitt, þegar hún var
svipt umboði.
Hann sagði 30.000 stuðnings-
mönnum sinum, sem sóttu fund
hans i dag i Domain Park við
höfnina i Sidney, að þeir ættu að
„gefa þingræðinu” tækifæri.
Landstjórinn, sir John Kerr,
vék stjórn Whitlams frá 11.
nóvember, þegar Whitlam neitaði
KOSNINGABAR-
ÁTTAN HAFIN í
ÁSTRALÍU MEÐ
BRAUKI OG BRAMLI
að boða til almennra kosninga,
þrátt fyrir að stjórn hans nyti
ekki nægilegs fylgis á þingi til
þess að koma fram fjárlagafrum-
varpi sinu.
Fram til kosninga fer bráða-
birgðastjórn Malcolms Frasers,
leiðtoga Frjálslynda flokksins,
með völd. Fraser mun flytja aðal-
kosningaræðu sina á morgun.
Whitlam lagði út af þvi i ræðu
sinni i dag, að legðu kjósendur
blessun sina á aðgerðir landstjór-
ans með þvi að kjósa hina, þá
mundi ámóta frammigrip land-
stjórans endurtaka sig æ ofan i æ,
uns þingræðið liði undir lok.
Hann kallaði stjórn Frasers
„innbrotsþjófa, sem dulklæddust
eins og húsverðir”. Þeim bæri að
„fleygja úr stjórnarráðinu”.
Þegar 13. desember rennur upp
(kjördagur) hafa þeir „haft 32
stolna daga til athafna — 32 stoln-
ir dagar er nóg,” sagði Whitlam.
Rakst á 87 þúsund
lesta flugmóðurskip
Bandariska her-
snekkjan „Belknap” og
risaflugmóðurskipið
„John F. Kennedy”
rákust á þar sem þau
voru á siglingu á Mið-
jarðarhafi á föstudags-
kvöld.
Belknap komst við
illan leik og tilstilli
fjögurra dráttarbáta til
hafnar i Priolo á Sikil-
ey i morgun. — Öll yfir-
byggingin aftan stjórn-
palls var sótsviðið
brak.
Atta menn létu lifið og 46
slösuðust, þegar Belknap rakst
á 87 þúsund smálesta flugmóður
skipið. — Eldur kom upp i báð-
um skipunum eftir áreksturinn,
en var slökktur um borð i JFK á
tiu minútum, meðan það tók
tvær og hálfa klukkustund að
ráða niðurlögum hans um borð i
Belknap.
Flugmóðurskipið var einmitt
að taka á móti flugvélum til
lendingar um borð, þegar
áreksturinn varð. Skipin voru
stödd þá um 70 milur undan
strönd Sikileyjar. — Visa varð
niu flugvélum til lendingar á
flugvelli á Sikiley.
Belknap var til taks skammt
undan flugmóðurskipinu til að
kippa um borð flugmönnum og
flugvélum sem kynnu að mis-
takast lendingin á JFK og falla i
sjóinn. En skyndilega beygði
Belknap af stefnu þar sem skip-
ið sigldi samsiða JFK. Flug-
móðurskipinu var vikið undan,
en léndingaþilfarið að aftan-
verðu rakst þá i yfirbyggingu
Belknap.
Svo viröist sem flugvéla-
bensin hafi runnið frá JFK á
Belknap og orsakaði ikveikjuna.
Belknap er voþnuð eldflaug-
um, en hvort þær eru með
kjarnorkuoddum eða ekki vill
bandariska flotamálastjórnin
ekki upplýsa. — A leið Belknap
til hafnar lagðist „Mount Bak-
er” birgðaflutningaskip Mið-
jarðarhafsflota USA upp að
snekkjunni og þykirsennilegt að
það hafi tekið eldflaugarnar úr
Belknap.