Vísir - 16.12.1975, Blaðsíða 5
VISIR Þriöjudagur 16. desember 1975.
5
;w * «i <* m * im m m * m |k; sii
Skoðum myndir
segjum sögur
- Nú semja litlu börnin sjálf sögurnar -
Skoðum myndir - segjum sögur
Lítil börn hafa yndi af að semja og segja sögur, og þau vilja láta hlutina hreyfast, svo að eitt-
hvað gerist. Flettimyndabækurnar eru einkum ætlaðar 3—7 ára börnum og veita óþrjótandi
tækifæri til hvors tveggja.
[ hverri bók eru 24 litmyndaspjöld, sem hægt er að fletta og raða saman í sögumyndir á 2400
vegu. Myndirnar eru gæddar lífi og fjölbreytni. Þar er alls konar fólk á ferli, fullorðnir og börn.
Þar eru dýr og fuglar, hús og bílar, tré og blóm, skúraský og sólskin.
Bækurnar SKOÐUM MYNDIR - SEGJUM SÖGUR veita börnunum ómældar ánægjustundir
og þroska jafnframt skynjun þeirra, auka orðaforða og þjálfa athygli, hugmyndaflug og mál-
beitingu.
Skoðum myndir
segjum sögur
2400/
j frá Emi og Örlygi 0
Emma
spjarar sig
Þriðja bókin um EMMU, ungu
leikkonuna, sem brýst áfranr
til frægðar og frama.
„Emma nam staðar og virti
fyrir sér skilti, sem á var
málað: LEIKLISTARSKÓLI
HEADSTONE-BORGAR.
Óneitanlega fann hún dálítið
til sín, er hún gekk inn um
hliðið. Þetta var fyrsti dagur
hennar í leiklistarskólanum.
Hún var nú einu sinni fræg
kvikmyndastjarna. Hvernig
skyldu hinir nemendurnir
bregðast við?
Áður hafa komið út bækurnar
EMMA og EMMUSYSTUR.
Þegar Trölli
stal jólunum
eftir Dr. Seuss.
Þorsteinn Valdimarsson
íslenskaði.
Þau munu mörg börnin sem
kannast við jólamyndina sem
sýnd var í íslenzka sjónvarp-
inu tvívegis, þar sem Trölli
tók sig til og stal jólunum.
Sú mynd var byggð á bók
eftir hinn víðkunna banda-
ríska barnabókahöfund og
teiknara, Dr. Seuss, en eftir
hann hafa áður komið út
bækurnar um Köttinn með
höttinn. Og raunar er Trölli
ærið líkur kettinum í útliti,
enda vafalaust náskyldur hon-
um.
TVÆR TEIKNIMYNDABÆKUR EFTIR EINN VINSÆLASTA
BARNABÓKAHÖFUND OKKAR DAGA, RICHARD SCARRY.
Tvaer teiknimyndabækur eftir einn vinsælasta barnabóka-
höfund okkar daga, Richard Scarry.
Richard Scarry er einn vinsælasti og eftirsóttasti barnabóka-
höfundur heimsins í dag. Bækur hans byggjast fyrst og fremst
upp á teikningum og það eru þær sem gert hafa Scarry svo
vinsælan, sem raun ber vitni.
Það eru sérkenni Scarrys að persónur hans eru allar í hinu
skringilegasta dýralíki og kennir þar mikillar fjölbreytni.
Jafnframt lætur hann dýrin nota hverskonar tæki og áhöld
sem maðurinn hefur fundið upp og tileinkað sér og allt er
á fleygiferð og flugi í bókunum.
Bílar,
flugvélar
og öll heimsins
furðulegustu
farartæki
Skemmtilega
Löggu-Lása
bókin
Leyndardómur
eldaugans
leystur af Alfred Hitchcock
og Njósnaþrenningunni.
Njósnaþrenningin lætur sér
ekki allt fyrir brjósti brenna.
Þetta eru hugaðir strákar,
fullir af ævintýralöngun, sem
glíma við allskonar dularfullar
gátur og njóta til þess dyggi-
legrar aðstoðar hins kunna
sérfræðings í dularfullum fyr-
irbrigðum, Alfreds Hitchcocks
Þetta er fjórða bókin sem út
kemur hér á landi um Njósna-
þrenninguna, en hinar fyrri
bækur hafa notið mikilla vin-
sælda barna og unglinga.
Barna- og unglingabækur 1975
Örn og Örlygur, Vesturgötu 42, Sími: 25722