Vísir - 16.12.1975, Blaðsíða 6

Vísir - 16.12.1975, Blaðsíða 6
6 SNORRABRAUT 58.SIMI 12045 SKATA © J mnux /Ijál/xirHiH'il HkútaM HoykjavikW ATHUGIÐ! Okkar springdý einstaklingsrúm i úrvalsflokk Úrval af Sængy ha vefnbekkir. eg rúmteppi á 9-7, fimmtudag kl. 9-9 og fg kl. 10-5. Springdýnur Helluhrauni 20, Sími 53044. Hafnarf irði, FRIMERKL íslenzk og erlend Frímerkjaalbúm Innstungubækur Stærsta frímerkjaverzlun landsins FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN Skólavörðustig 21 A-Simi 21170 vísm VÍSAR Á VIÐSKIPTIN VinSPEIAR HIIÓmPIÖTUR ISLENSKAR OG ERLENDAR JÓLAPLÖTUR. Flestar fáanlegar islenskar hljómplötur Erlendar M.A. • Paul Anka Melanie Dr. Hook John Denver Art Garfunkel Rolling Stones Neil Diamond David Essex Roger Whittaker Perry Como Bee Gees Three Dog Night Rod Stewart Eric Burdon Donovan Andre Kostelanetz She’s a lady Greatest Hits Feelings Stoneground Words Gather Me. Bankruot Windsong Rocky Mountain Christmas Breakaway Greatest Hits Goid Rock on The Last Farewell Pure Gold 2 years on Cyan Atlantic Crossing Smiler Stop Sunshine Superman Greatest Hits Strauss Waltzes psfeindstæki Glæsibæ, Simi 81915 m 16. desember 1975. VISIR Kvíðir geðveikis- úrskurði meir en fangelsisdómi inn cpair hiin \r\ Allt hefur mistekist hjú Söru Moore og nú vofir geggjunarstimpillinn yfir stœrsta framtaki hennar, banatilrœðinu við forsetann „Hún er byltingar- manneskja hverrar mál- staður hefur alltaf brugð- ist," sagði kaþólskur prestur um Söru Jane Moore sem býður dóms vegna tilraunar hennar til að ráða Ford Bandarikja- forseta af dögum. Þessi 45 ára gamla kona mæt- ir fyrir dómaranum i dag eftir aö hann tók gilt i gær aö hún viöurkenndi sök sina þótt hún i byrjun máls lýsti yfir sakleysi sinu og vildi færa fram varnir. Ef hún verður sakfelld á hún yfir höfði sér ævilangt fangelsi, en verði úrskurðaö að hún sé geðveik á hún á hættu að verða dæmd til öryggisvörslu á geð- veikrahæli. Faðir William O’Donnell, kaþólskur prestur sem átt hefur viðræður viö Moore i varðhald- inu, segir að hún kviði mest aö verða úrskurðuð geðveik. „Segðu fólki aö ég sé ekki brjáluð,” haföi hann eftir henni. Hana hryllir við tilhugsuninni um aö pólitiskur tilgangur verknaðar hennar fari forgörö- um ef hún veröi talin geggjuð. Þar með fari i handaskolum þetta mesta framtak hennar, eins og flest annað sem hún hefur tekiö sér fyrir hendur. „Henni veröur meira um þetta en nokkuð annað,” sagði presturinn. Konan á að baki langa sögu geötruflana og rótleysis. Lengi freistaði hún þess að ganga i liö með vinstrimönnum sem vildu ekkert með hana hafa eftir að þeir fréttu að hún hafði ein- hverju sinni verið uppljóstrari á snærum FBI. Liza Minelli og Burt Reynolds saman í „Lucy Lady": Hundóónœgð bœði með nýju myndina, leikstjórann og endolokin Blaðamannafundur sem haldinn var um borð i Queen Mary til að kynna kvikmyndina „Lucky Lady", fór i handaskolum á sunnudaginn þegar tvær leikstjörnur ,,20th Century Fox" fóru að finna mynd- inni hitt og þetta til for- áttu. „Þetta var mér algert áfall. Ég er öll i uppnámi vegna þessarar myndar”, sagði Liza Minelli viö blaöamennina og meðleikari hennar Burt Reynolds tók undir með henni. Hann vildi kenna leikstjóran- um Stanley Donen um þaðsem fariö hefði úrskeiöis i myndinni og sagði: „Ég mun aldrei starfa með honum aftur.” Agreiningurinn er um endi þessarar kvikmyndar sem kost- aði 14 milljónir dollara i fram- leiðslu. Leikstjórinn lét gera þrennar útgáfur á sögulokunum. „Lucky Lady” fjallar um hóp smyglara sem á bannárunum flytja áfengi i báti frá Mexikó til Bandarikjanna. — Einn endir myndarinnar sýnir hvar Burt Reynolds og félagi hans, leikinn af Gene Hackman, farast i skot- bardaga við lögregluyfirvöld úti á sjó. — Anríar endir gerir ráð fyrir aö þeir lifi bardagann af. — Sá þriðji sýnir þá komast til hárrarelli þar sem þeir rifja upp minningar frá þeim gömlu góðu dögum. Minelli sagðist taka örlagasen- una fram yfir þær seinni og var uppvæg vegna breytingarinnar á endalokunum og ýmsum öðrum klippingum. — Kvikmyndaverið haföi valið annan endinn þar sem smyglararnir komust af. Reynolds sagði: „Ég var þeirr- ar skoðunar að við kæmum til greina til óskarsverðlauna. Þetta heföi getað oröið ódauðleg mynd, en eins og nú horfir er þetta að- eins söluskran. — Ég skammast min ekkert fyrir myndina, en hún hefði getað oröiö betri.” A öðrum blaðamannafundi sem Doen leikstjóri efndi til sérstak- lega, sagði hann: „Að minu mati er það leikstjórans að gera eins góöa mynd og hann getur. — Ef þeim likar hún ekki verða þau bara að kyngja þvi.”

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.