Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Side 7
LESBOK morgunblaðsins
399
Kveðja tii Finnlands
/. desember 1939
i.
Þungur gnýr frá austri ómar
inst í mína sál.
Vjelaískur válegt hljómar,
Vopna blikar stál.
Gandreið þýtur geimsins vegi,
grandi lífsins spýr,
yfir borg á björtum degi,
banalúður gnýr.
Rússlands, styrjarteitur, tryltur,
tvíhöfðaði örn,
kommúnismans kyngi fyltur,
kúgar Finnlands börn.
Hátt í lofti vængjum veifar
vargur yfir bráð,
bólgin reiði blóðið kneyfar,
bruggar heljarráð.
ójafn leikur hjer er hafinn,
hundrað er um einn.
Suomi skal viðjum vafin,
Vandalismans steinn
nú á Finnlands frelsi að hæfa,
fjöregg dáðalýðs.
— Yfir rauðum Rússum gnæfa
reistar stengur níðs.
II.
Þínum lífsins þrótti jeg trúi
þúsund vatna land,
þó að hatröm bryngálkn búi
börnum þínum grand.
í söng og óði, list og Ijóði
líf þitt vitni ber.
I frjálsra sona fórnarblóði
Finnlands máttur er.
Pinska þjóðin og hinn rússneski örn. Tákn-
ræiit málverk, eftir finskan :málara, þar sem
þjóðin er í mynd ungrar stúlku er heldur á lög-
bók þjóðarinnar, er rússneski tvíhöfðaði örninn
ætlar að rífa af henni.
ítra þjóð, í austurvegi,
í orku og dáðum stór,
sem á hörðum harmadegi
hetjueiða sór,
þú mátt líða, þú mátt stríða,
þessi er vegurinn.
Vondjörf bíða betri tíða,
uns blánar himinn þinn.
1. des. 1939.
Sigurjón Guðjónsson.