Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Blaðsíða 11
LESBÓK MORiGUNBLAÐSINS 403 sýnn maður og sparsamur. Og hann mat sparnað og hagsýni mikils, enda þurfti hann á þeim eiginleikum að halda. Við mig sagði hann stundum: „Guðrún mín. Við gætum vel kom- ist af með að búa í einu herbergi, ef á þyrfti að halda. En skuldir og víxla hata jeg. Ef jeg þyrfti að standa í því, þá gæti jeg ekki orkt“. Um það vorum við sam- mála. Hann sagði líka: „Tvennskonar frelsi er mönnum nauðsynlegt. Annað er frelsi samviskunnar, að ekkert íþyngi henni, hitt er efna- legt frelsi. Sá sem hefir þetta tvent hann er frjáls maður. Betri heimilisföður en hann get jeg ekki hugsað mjer, síkátur og glaður og yngstur meðal þeirra ungu. Og bamgóður með afbrigð- um. Það var hans mesta yndi að leika sjer við börnin og segja þeim sögur, þegar hann hafði tíma til þess. í kvæði Guðm. Guðmundsson- ar um Þorstein lýsti hann hinum barngóða heimilisföður með þess- um orðum: Og kærleikans kvöldljóð þú kvaðst yfir sæng, er breiddirðu yfir blundandi börnin þinn væng. En Guðmundur var tíður gest- ur á heimili okkar og var mikil vinátta milli Þorsteins og hans, Hafði Þorsteinn mætur á hinni leikandi „lyrik“ Guðmundar og hinum fyndnu stökum hans. JAFNAÐAR- MENSKAN HANS. Til þess að afla heimilinu tekna fjekst hann við kenslu. Kenslugjaldið var ekki hátt í þá daga; 35 aurar á kl.st. Aldrei kvartaði hann yfir því, að hann fengi of lítið fyrir kensluna. Aftur á móti talaði hann oft um það við mig, hvað hann fyndi til þess, að nemendurnir myndu eiga erfitt með að borga kenslu- gjaldið, þótt lágt væri. Það þótti honum verst og óskaði helst að geta kent ókeypis. Hans jafnaðarmenska var al- drei neitt nálægt því „þitt er mitt“ en „mitt er þitt“ gat hann sagt hvenær sem var, enda sagði hann: Jeg hef aldrei skilið aðra jafnaðarmensku en þá, sem Kristur kencL'i: Sá yðar, sem á tvo kirtla, gefi hinum annan, sem engan á“. Og eins sagði hann að hægt væri að gerbreyta öllum heiminum ef menn vildu hlýða þessu eina boðorði Krists: „Það sem þjer viljið að mennirnir geri yður, það skuluð þjer og þeim gera“. Þorsteinn las oft í Biblíunni ,einkum guðspjöllunum og kunni langa kafla úr þeim ut- anbókar. Svo mikið kunni hann ur þeim, að sr. Haraldur Níels- son til dæmis undraðist stórum. Oft sagði hann, að sjer fyndist hann geta alveg sjeð hvaða setn- ingar í guðspjöllunum væru eft- ir Meistarann sjálfan, því svo bæru þær af öðru. Sr. Haraldur Níelsson og Þor- steinn voru góðir vinir, og voru mjög samrýmdir á mörgum sviðum. Mat Þorsteinn mikils hita sr. Haraldar, einlægni, hrein skilni og áhuga. Sr. Haraldur var líka alveg óvenjulega ljóðelskur maður og smekkvís. Á síðari árum hafa ýmsir vilj- að halda því fram, að Þorsteinn hafi verið andvígur kristindómi. Jeg get ekki hugsað mjer meiri fjarstæðu. DÝRAVINURINN. Brjóstgæði Þorsteins komu m. a. fram í kærleik hans og um- hyggjusemi gagnvart dýrunum. Þeim þætti í hugarfari hans kyntust menn m. a. af því sem hann skrifaði í Dýravininn. Hann skrifaði þar að vísu fyrst í stað undir dulnefni. En hætti því síðar. Af þeim málum kynt- ust þeir Tryggvi Gunnarsson og hann, og skrifaði og orti Þor- steinn ýmislegt beint fyrir á- eggjan vinar síns Tryggva. Þorsteini þótti yfirleitt mikið fyrir því, að vita af því að nokk- urt dýr væri tekið af lífi. „En“, sagði hann, „úr því að við getum ekki komist hjá því að slátra f jenu, þá er skylda okkar að gera það á sem mannúðlegastan hátt og þjáningaminstan". Undir eins og hann kom heim til Seyðisfjarðar skömmu fyrir aldamótin, byrjaði hann á því að fá því framgengt að sláturfje yrði skotið. Skrifaði hann um þetta ýmsar greinar, síðast í „Arnfirð- ing“. En á Seyðisfirði komst þetta fyrst í framkvæmd. En hjer á heimilinu reyndist erfitt að samræma það, að hafa kött og hæna að sjer fjölda snjó- titlinga á veturna. Hvar sem heimili okkar var, söfnuðust smáfuglarnir utan um okkur strax og snjór kom. Og þeim var gefið reglulega. En köttinn var ekki hægt að gera útlægan úr heimilinu. Því kött vildi Þorsteinn hafa, hvar sem hann var. Kisa vildi gera sjer mat úr fuglunum. Úr vöndu var að ráða. Þorsteinn hafði ekki önnur ráð, en tala við köttinn sinn og leiða honum það fyrir sjónir, að hann mætti ekki veiða fuglana. Og það gerði hann svo rækilega, að engu var líkara en kisi skildi hvað hann meinti. Litlu fuglamir úti í snjónum kringum húsið, voru friðhelgir. Kisi mátti ekki snerta þá. Hann hætti því, eftir langar og marg- ar fortölur. En einkennilegt var að sjá köttinn vappa úti við í nánd við fuglana, leggja koll- húfur og skotra augunum til þeirra. Það var rjett eins og maður sæi hvað hann „klæjaði í klærnar“ þó hann vildi ekki ó- hlýðnast húsbónda sínum, og brosti Þorsteinn oft að þessum tilburðum kisu. En það voru fleiri dýr en kett- ir og fuglar, sem Þorsteinn gat gert að vinum sínum. Forláta hest átti hann síðustu árin, sem hann lifði. Hésturinn var ljón- styggur. En ef Þorsteinn kall- aði á hann og gekk til hans, stóð þessi vinur hans grafkyr. KVEÐJUORÐ Sr. KJARTANS. Síðasta sumarið sem Þorsteinn lifði, vorum við vikutíma austur í Hruna hjá sr. Kjartani Helga- svni. Þeir voru mjög nánir vinir Þorsteinn og hann. Við vorum þar í besta yfirlæti og undi Þorsteinn prýðilega hag sínum. Framh. á bls. 408.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.