Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1939, Blaðsíða 19
LESBÓK morgunblaðsins
411
MENN 1894
NeSri deild. Talið vinstra megin frá: Þorlákur Guðmundsson bóndi í Fífuhvammi, 2. þm. Árnesinga. Björn
Sigfússon, þá bóndi í Grímstungu, síðar á Kornsá, 1. þm. Húnvetninga. Halldór Daníelsson, bóndi í Langholti, þm.
Mýramanna. Jón Jensson yfirdómari, þm. Reykvíkinga. Ólafur Briem bóndi á Álfgeirsvöllum, 1. þm. Skagfirðinga.
Þórhallur Bjarnarson, þá forstöðumaður prestaskólans (síðar biskup), þm. Borgfirðinga. Guðjón Guðlaugsson
bóndi á Ljúfustöðum, þm. Strandamanna. Jón Jónsson í Múla, 2. þm. Eyfirðinga. Sigurður Gunnarsson, prestur
í Stykkishólmi, 1. þm. Sunnmýlinga. Eiríkur Gíslason, prestur að Staðarstað, síðar á Stað í Hrútafirði, þm. Snæ-
fellinga. Benedikt Sveinsson sýslumaður í Þingeyjarsýslu, þm. Norður-Þingeyinga. Jens Pálsson, þá prestur á Út-
skálum, síðar í Görðum, þm. Dalamanna. Tryggvi Gunnarsson bankastjóri, 1. þm. Árnesinga. Magnús Stephensen
landshöfðingi. Jón Þórarinsson, þá skólastjóri í Flensborg, síðar fræðslumálastjóri, 2. þm. Gullbr. og Kjósarsýslu.
Þórður Guðmundsson, bóndi á Hala, 2. þm. Rangæinga. Þórarinn Böðvarsson prófastur í Görðum, 1. þm. Gullbr.
og Kjósarsýslu. Pjetur Jónsson, bóndi á Gautlöndum, síðar ráðherra, þm. Suður-Þingeyinga. Einar Jónsson, þá
prestur á Kirkjubæ (síðar á Hofi), 1. þm. Norðmýlinga. Guðlaugur Guðmundsson, þá sýslumaður i Skaftafellss. (síð-
ar bæjarfógeti á Akureyri), þm. Vestur-Skaftfellinga. Valtýr Guðmundsson, dósent í Khöfn (síðar prófessor), þm.
Vestmanneyinga. Jón Jónsson, prófastur á Stafafelli, þm. Austur-Skaftfellinga. Sighvatur Árnason, bóndi í Eyvind-
arholti, 1. þm. Rangæinga. — Tvo neðri-deildar-manna vantar á myndina, Skúla Thoroddsen, 2. þm. ísfirðinga, og
Klemens Jónsson, 1. þm. Eyfirðinga.
inum. — Sumir bæta við sög-
una, að prófessor Franckenau
hafi, þegar hann var búinn að
ná orminum, gripið korða og
hlaupið út, og ætlað að reka
Jón í gegn með honum, af því
að hann hafi óttast að hann
mundi verða sjer snjallari og slá
rýrð á frægð sína ef hann í-
lengdist í Höfn. — Þegar Jón
var ytra, tók hann sjer ættar-
nafnið Bergmann, sem er dregið
af Setbergi á Snæfellsnesi, en
þar ólst hann upp og þar var
faðir hans prestur áður en hann
varð biskup. Síðar tóku allir
synir Steins biskups upp þetta
ættarnafn.
■4r
Vorið 1718 kom Jón Berg-
mann heim með Akureyrarskipi,
segir Espólín, en aðrir segja, að
hann hafi komið í Hofsós og
mun það rjettara. Eftir að hann
var stiginn af skipsfjöl, gerði
hann boð heim til Hóla, um að
sækja sig og var jafnskjótt send-
ur þangað maður með hesta til
þess að sækja hann og farangur
hans. Sá, sem var sendur, var
Þorgeir bróðir biskupsins, en
hann hafði áður búið út á Skaga
og var nú orðinn ráðsmaður á
Hólastað. Þorgeir var líka af-
bragðs læknir og er sú saga sögð
um hann, að hann hafi komið
auga í konu, sem hafði dottið
svo illa að augað lá úti á kinn,
og svo hafði honum tekist þetta
vel, að konan varð kvalalaus í
auganu, þó aldrei fengi hún sjón
á því. Það er sagt, að Þorgeir
hafi átt merkilega lækningabók
og kent Jóni frænda sínum
„kúnstirnar" eftir henni, þegar
hann var drengur, og þessvegna
hafi hann tekið það fyrir að
verða læknir.
Þegar þeir. hjeldu frá Hofsós
heim til Hóla, fóru þeir yfir Kol-
beinsdalsá og áðu hestum sínum
þar sem nú heitir Flekkuhvamm-
ur og tóku ofan koffort sín. Það
er sagt, að þá hafi Jón komið
auga á tvær kindur, aðra hvíta
en hina svarta, sem voru á beit
í svo kölluðum Ásatungum þar
skamt frá. Þeir handsömuðu
kindurnar og bundu þær sauða-
bandi. Síðan er sagt að Jón hafi
opnað koffort sín, tekið lækn-
ingahnífa sína og skorið annan
bóginn af báðum kindunum. —