Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1941, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1941, Page 1
jyjtorgMMfclaðskts 47. tölublað. Sunnudagur 30. nóvember 1941. XVI. árgangur. U^Umrpr—mml*)* fc.t. Hannes Hafstein Endurminningar og ræðukaflar Hannes Hafstein. (Málverk eftir frú Kristínu Jónsdóttir). ANN 4. desember eru 80 ár liðin frá fæðingu Hann- esar Hafstein. Sagan um áhrif hans á þjóðlíf okkar á stjóm- málaframþróun og framfara- mál, er óskráð enn. Æfisaga hans, í aðaldráttum, er þjóð- inni í fersku minni. En þegar að því kemur, að stjórnmála- menn og sagnfræðingar rita um. ,,Hafsteinstímabilið“ í sögu landsins, þá kemur að því, að þeir munu finna, að áhrif þessa eina manns voru meiri, en flestir samtíðarmenn hans gerðu sjer grein fyrir. Frá endalokum landshöfð- ingjatímabilsins og fram til 1908, gerðist svo mikil stökk- breyting á anda og hugsunar- hætti þjóðarinnar, að fullkomið einsdæmi er í sögu okkar. Or- sakir hinna miklu umskifta jafnt á andlegu sem efnalegu sviði verða vitanlega ekki rakt- sr til þessa eina manns. — En hann var tvímælalaust slíkur foringi þjóðar sinnar, að áhrifa hans gætti á öllum sviðum, meðan hans naut við. Hann hafði líka það fram jrfir aðra stjórnmálamenn, að vera jöfnum höndum stjóm- malaleiðtogi og skáld. I honum sameinaðist þetta tvent á hinn glæsilegasta hátt. Samstarfsmönnum hans og samherjum, fer nú að fækka. En öllum, sem höfðu af honum einhver persónuleg kynni, varð hann ógleymanleg- ur. I eftirfarandi smágreinum er skýrt frá endurminningum nokkurra samtíðarmanna hans. En auk þess eru hjer endur- prentaðir kaflar úr ræðum eftir hann, sem hver á sinn hátt gefa glögga hugmynd um höfund þeirra.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.