Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1944, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1944, Síða 1
15. tölublað. Sunnudagur 30. apríl 1944. XIX. árgangur. Uafulilarpraataiiilðjai L.t Ingólfur Gíslason, læknir: NOKKUR ÆFIATRIÐI GUNNARS EINARSSONAR, KAUPMANNS Löngum, breytilegum og aö ýmsu leyti merkilegum æfiferli lauk er Ounnar Einarsson frá Nesi andað- ist 1 síðastl. mánuði. í safni fyrstu æskuniinninga minna er glögg mynd af honum ungum frjálslegum og spaugsöm- um fyrirmanni; hann hafði hlotiði fágun heimsmannsins af sífeldum utanförum og dvöl víða í löndum Evrópu. Það yrði löng saga ef rekja skyldi götu hans fet fyrir fet og1 verður það ekki' gert hjer, aðeins stiklað á aðal merkjasteinunum. Gunnar fæddist að Þverá í Dals- mynni 11. sept. 1853. Faðir hans, Einar Asmundsson, l>jó þá með, konu sinni, Margrjeti Guttorms- dóttur, á parti af jörðinni móti föður sínum, Ásmundi Gíslasvni. Tveim árum síðar fluttist Einar að Nesi og ólst Gunnar þar upp; var hann fermdur í Laufáskirkju af sjera Birni Halldórssyni og meðal fermingarbarna var þá Þórhallur, síðar biskup sonur prófasts. Fyrir ferminguna höfðu börnin gengið lengi til spurninga því sjera Björu vildi uppfræða þau sem best. Mjer Gunnar Einarsson dettur í hug saga er eg heyrði í æsku af þessum fermingarundir- búningi. Þeir fjelagar Þórhallur og Gunnar vildu sleppa seni l.jett- ast frá námsstritinu, eins og geng- ur og tóku þeir ráð sín saman. Börnin sátu ætíð öll í einni röð á bekk^ byrjaði prófastur yfirheyrsl- una á því fyrsta til vinstri og! hlýddi þeim yfir hverju af öðru og endaði á þeim síðasta til hægri. Tóku nú fjelagarnir fast sæti sinn við hvorn enda raðarinnar og þurfti þarafleiðandi annar þeirra ekki að lesa nema upphaf lexíunnar og hinn endirinn. (!ekk svo lengi, en loks endaði þetta með skelfingu^ því prófastur byrjaði eitt sinn á öfugum enda raðarinnar. Þór- hallur'sagði ekki neitt og fjekk ávítur, en Gunnar var svo heppinn að hann gat svarað einhverju þeg- ar hann var spurður útúr og fjekk hrós fyrir hjá prófasti, þótt hann hefði ekki unnið til Jiess. Þegar Gunnar var um fermingu langaði hann til að reyna sjómanns- lífið. Eftir nokkrar mótbárur fjekk hann leyfi föður síns til að fara eina veiðiför með hákarlaskipi sem; lá ferðbúið á Ivljáströnd, en um morguninn var sent eftir honum, treysti hann sjer ekki vegna las- leika, hafði sýkst í meltingarfær- um — af ofmiklu rúsínuáti. Skipið fór, en kom ekki aftur. Annars segir ekki af ferðum Gunnars fyr en Baudoin prestur kemur til sögunnar, hann hafði vetr arsetu á Nesi einu, eða tveim ár-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.