Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1944, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1944, Síða 2
r 191 — ~r LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ) O *r Einar Ásmundsson lun eftir að Ghxnnar var íermdur. Þessi kaþólski prestur mun hafa verið inikilhæfur maður og því liaft áhrif á hinn unga svein, í daglegri umgengni og með því að gerast kennari hans í frönsku og líklega fleiri greinum. Um þetta leyti fjekk sjera Baudoin brjef frá frönskum greii'a, þar sem hann bauðst til þess, að kosta núm tveggja íslenskra drengja í Frakk- landi. Urðu þeir Gunnar og Þórhall- ur fyrir valinut en móðir Þórhalls var treg til að láta son sinn fara i'rá sjer og var því ákveðið að Jón Sveinsson (Nonni) skyldi verða námsfjelagi Gunnars. Leið Gunnars lá fyrst til Ivaupmannahafnar og fór hann frá Akureyri í júlí 1870 með skútunni Rakel. Eg hefi með höndum útdrátt úr dagbók Gunnars þar sem lauslega er sagt frá þessari fyrstu ferð hans 10 ára gamals. „9. júlí. Er að búa mig að heim- an og fer með þessar bækur“ ; telur svo upp 19 bækur, biblían er fyrst, kvæðí Bjarna Thorarensens og svo námsbækur; þar á meðal latnesk grammatík. Síðan telur hann upp annan farangur, virðist hann luifa verið vei búinn að fötum. Hann segist hafa 60 rd. og 1 rd. frá Laufási, sem hann á að verja til að kaupa rjómakönnu fyrir frú Sig- ríði. sömu tegundar og hann hefit* meðferðis handarhaldslausa. Faðir hans og Guttormur fylgja honum til Akureyrar og fara þeir heim næsta dag, en hann fór um borð í Rakel er leggur at' stað 12. júlí. (,Lögð- umst við Hrísey kl. 1 ; eg fjekk brjef frá föður mínum með Tryggva frá IIallgilsstöðum“. Ferðin virðist liafa gengið sæmilega, Þann 16. sjá þeir Langanes og 2. ágúst koma þeir til Kaupmannahafnar. Að heiman hafði hann í vasabókinni heimilis- fang þriggja manna: Gísli Brynj- úlfsson, Magnús Eiríksson og PálL Sveinsson. Fylgdu þeir honum og leiðbeindu og skólanám hóf hann brátt í St. Knuds Skole og fjekk sjer kenslu utan skóla í latínu, frönsku, o. fl. Hann talar um brjef, sem hann byrjaði að skrifa föður mínum. Þórhalli Bjarnarsyni, fermingar- bróður sínum, og frá sjera Baudoin; hann kemur oft til Gísla Brynjúlfs- sonar og talar um að frú hans hafi spilað fyrir sig á píanó. 9. ágúst: „Eg skrifaði Þórhalli og byrjað iað skrifa föður mínum. Eg var við messu.“ / 10. ágúst: ?,Eg enti víð að skrifa föður mínum, svo fór eg til M. E.. (Magn. Eiríkss.) og hann gekk með mjer í bókasölubuð og þar keypti eg 100 tíma í frönsku og svo lykilinn með og 10 Nr. af „Dagbladet“ til að senda íöður mín- um einnig. 8íðan fór eg um borð í Rakel með stígvjelin og bókapakk- ann og svo br.ief og einn pakka; (könnuna í Laufás). Kapteinninn tók við bessu. 4. sept.: „Sunnud. G. B. (Gísli Brynjúlfsson) kom til mín og bauð mjer að koma með sjer í Tivoli; cg fór svo kl. o til M. E. og tók hjá honum tvo rd. (eftir 61 rd.). Síðan fór eg til G. B. kl. 3Vst, borðaði hjá honiun og kl. 6—7 fór- Jóhanna Friðriksdóttir um við í Tivoli og vorum til 11 íil 12. Eg sá þar ýmislegt (dverga, ara- biskan hest, heyrði músik( etc.). 5. sept. „Bar ekkert til tíðinda; eg byrjaði að lesa kaþólska lær- dómsbók“. 11. sept. „Afmælisdagur minn; byrjað 18. ár“. 17. sept. „Madama Valentin bað mig að reyna að útvega sjer 8 álnir af hv'ítu vaðmáli í kjól handa sjer. 18. sept. „G. B. sagði rnjer að faðir minn hefði fengið 100 rd. verðlaun fyrir ritgjörðina sína og þar að auki 12 rd. fyrir hverja örk í 8 blaða brotit en vissi ekki hvað hún mundi verða margar arkir“. 28. sept. „Eg fór til M. E„ lafði hjá honum dálítið, svo fór eg iil G'. B. og tafði hjá hopum lengi; síðan fór hann með mjer til Garðs- ins (Regens) og til Boga. sonar biskupsins og svo til Pjeturs Jóns- sonar og þaðan fórum við svo upp í Sívalaturn og sáurn yfir alla Kaupmannahöfn. Svo fórum við heim til mín og svo um borð í „Gránu“ og töluðum nokkuð lengi við kapteinínn og sagðist hann liafa farið af stað 11. sept„ en þá var ekki „Rakel“ komin. Eg enti við að skrifa föður mínum og Baudoin

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.