Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1944, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1944, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 199 ' * i Ferðasaga Arna Magnussonar: Á LEIÐ TIL KÍNA, „SUÐUR FYRIR SÓLINA Nú voru allar okkar sængur upp bornar á þilfarið til að þurrka þær eftir það illa veður, ei' vér höfðum í þeim spánska sjó. Einn- ig vititera eftir lúsum og óhrein- indum. Ef þetta finnst, verður eigandinn straffaður fyrir hirðu- leysi og dofinskap. Þegar nokkur fannst sofandi í sinni vakt, verður hann arresteraður og straffaður nieð 50 kaðalshöggum, ef það er í friðstíð. Er það í ófriðstíð, straff- ast hann uppá lífið. Nií er orðið so heitt af sólunni, að það má slá sjóvatn upp á þilfai'ið hvert annað glas (annanhvern hálftíma). Ann- ars bræðist bæði bik og tjara af skipinu. Berfættur kann hann ei að ganga á þilfarinu, því þá brenn- ur hans iljaskinn af hitanum^ sem sólin gefiw af sér á þilfarsplönk- unum. Mest plágar oss nú þorst- inn, lítil fæða og hart kommandum. Um dagvaktina hafði vor ober- stýrimaður vakt einu sinni sem oftar og var að sjá eftir landi í sinn stóra kikkert. Sá sem stýrði, var norskur matrós. .Tens Lange. Yor oberstýrimaður gekk inn í sitt kammer að vökva sér á brenni- víni eftir venju, því hann drakk gjarnan pott brennivín á vakt sinni, sem voru fjórir tímar. Legg- ur sinn stóra kikkert á kompás- húsið, þegar inn gekk. Jens Lange fann stóra lús í höfði sér, lagði hann á glasið í kikkeren. Vor stýri- raaður tók strax sinn kikkert, og þegar hann hafði séð lítið í hann, lofar hann guð, nð vér séum nú ei langt frá landi( því nú komi jula til okkar með þremur árum á borð. Gengur til kapt. ITólms og segir hönum þessi markverðugu tíðindi. Hann (kapt.), nýlega upp vaktur af sænginni, var úrillur, tekur og sinn stóra kikkert og fær öngva julu að sjá. Vor yfirstýri- maður segist hana gjörla sjá, — „en þeir forustu eður fremstu menn halda árunum upp í loftið“. Þeir. þrætast á um þetta. Að síðustu tek- ur vor kapteinn oberstýrimanns- ins kikkert og fer að reyna, hvert sjá kunni þessa julu, en þegar hann tók kikkerten, sneri það fremsta glas niður, so lúsin af féll^ hvar fyrir vor kapteinn fékk ekkert að sjá, vor yfirstýrimaður og ei held- ur, þegar þann tók við kikkerten En hefði hann hejwt það, er sá norski matrós gjörði við hans kikkert, var honum víst hið stærsta straff. En vor yfirstýrimaður var ei so vel kynntur, að nokkur mað- ur unnti hönum góðs, þar hann' var hinn versti að straffa fólk og það fyrir smámuni. Tveim dögum hér eftir fengum vér land í sikti, sem var Portopray, eitt lítið eyland (réttara höfuðstað- ur Kapverdisku eyja) og hevrir til kónginum af Portúgal. Vér vorum þar þrjá daga, fyiT en komumst til landsins, því vindurinn var lítill, en undirsjór eður lognöldur. Sýndist því bezt að halda út til sjós, þar til betri tækfæri gefast kynnu. Kort þar eftir komum vér til lands- ins. Við lögðum vort skip á rúm- sjóinn langt frá landi, höfðum ]>ó góðan leirbotn fyrir vor arnker, en fórum með vorn stóra bát í land hlaðinn með tómum vatnsföt- um, er uppfyllast áttu í landi með vatn. Vér höfðum og lítið arnker í bátnum, sem vér létum falla, þar sem í land fórum, fyrir afturstefni, en létum einn synda í land með landkaðalinn og gjöra hann fast- an. Nú gekk mikið brim í landí Vér köstuðum út þeim tómu fötum út í sjóinn, en þeir, sem ei kunnu synda, máttu hala sig í land eftir kaðlinum, og kunni sjórinn ganga yfir höfuð vort, máske yfir tvær mannshæðir, en þegar sjórinn út ranji, áttum vér við harða kosti að búa að halda oss so fast við kaðal- innt að sjórinn oss ei með sér tæki. I þessu brimi voru ei fáir I’ortoprayerer að synda til gamans, þar sjórinn var hálfvolgur. Þeir voru svartir sem sót með svart hár, líkast þeim svörtu unglambaskinn- um hjá oss, er voru krulluð með lítið hár. Þegar í land komum, sá- um yér kvenfólk með viðlíkum farfa. Þetta fólk var allt með söðul- bökuðum nefjum, gekk mest nakið. Utan um mittfð höfðu þeir svirgul af líni. Öngvan dreng sá eg þar, sem ei hafði sabel (sverð) við síðu sér, þó hann væri ei eldri en tíu ára. AUt þetta hvski var þjófgefið og morðingjar. Kort sagt: Það var það versta fólk undir sólunni, sem eg hefi heyrt og séð. Þeir eru opinberlegir þjófar. Þegar þeir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.