Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1944, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1944, Síða 12
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 204 inn aí uppástungu þessari, en ljet samt tilleiðast að fara, eftir mikið þjark. Og með hjartslætti miklum gekk hann nokkrum dögum síðar fyrir sigurvegarann. Timur Lenk var ekkert augna- gaman. Andlit hans var þannig, að það hefði áreiðanlega skotið óðum hestum skelk í bringu og ekki prýddi það innri hugarró. En kennarinn gerði hvorugt að blikna eða blána. Og Timur Lenk var vit- ur maður. llann skildi — ef hann þá ekki vissi það áður — að þessi hlægilegi og vesæli maður var hug- rakkur. En sterkur var hann á- reiðanlega ekki. Og skyldu taugar hans þola nokkuð að ráði ? Timur Lenk ákvað að reyna kennarann. „Ilodsja'*, sagði hann. ,(Eg heíi heyrt talað um visku þína. Getur þú sagt mjer, hvert hlutskifti mitt vcrður á dómsdegi.’ Fæ eg pláss í hiinnaríki eða helvíti ?“ Nasreddin hafði svar á reiðum höndum: „Sannarlega herra, þykir mjer leitt, að þitt konunglega hjarta skuli þjást af slíkum hugsunum. En eftir þvíf sem eg í auðmýkt minni veit best, þarft þú hvorki að hafa áhyggjur eða vera í eía. Þegar Djengis Kahn dó, var það deginum ljósara, að hann fór beina leið til hclvítis. Þú getur verið viss um, hcrra, að þjer er ætlað heiðurssæti við hliðina á Nimrod. Farao, Alexander og Djcngis Kahn !*‘ Allir viðstaddir hjcldu, að nú yrði Nasrcddin að láta lífið fyrir dirfsku sína. En, Jivílíkt undur! Timur Lcnk rak upp þcnnan rokna hlátur. En hann varð brátt alvar- légur á ný, og skipaði að færa Nasreddin út á torgið. Þar varð vesalings kcnnarinn að stiíla sjer upp við inúrinn, og breiða kápu sína út mcð báðum höndum. Timur Lenk skipaði bogaskyttu einni, að skjóta pílu milii hnjánna á honum. Nasreddin skalf og nötraði af hræðslu, og reyndi af veikum mætti að romsa upp bænum þeim, setn hann kunni, en hann hafði ekki lokið við fyrstu bænina, þegar pílan skaust milli hnjánna á honuin,' án þess ;tð skaða hann hið minnsta. Nú fjekk önnur bogaskytta skipun unt, að skjóta pílu undir annan handlegg kennarans. Pílan fór í gegnum kápuna, en snerti ekki handlegg hans. En þegar þriðja bogaskyttan fjekk skipun um, að skjóta pílu í gegnum túrban Nas- reddins, lá honuni við yfirliði. En bogaskyttan sú vissi hvað hún söng, og pílan flaug í gegnum túrban Nasreddins, áður en hann hafði tíma til Jiess að falla í vfir- lið. Nú voru raunirnar á enda, og tnenn óskuðu Nasreddin til ham- ingju, sem reyndi að setja upp kæruleysissvip. Timur Lcnk hrósaði honutn og gaf honuni ríkulegar gjafir. M. a. skipaði hann svo fyrir að kennarinn skyldi fá nýja kápu og nýjan túrban, í stað þeirra er höfðu eyðilagst. Kennarinn þakkaði fyrir náðina, en bætti við: ,,Vildi herrann þá gjöra svo vel og gcfa skipun um, að eg fengi einnig nýjar nærbux- ur‘ ‘. „En menn tnínir staðhæfa, að pílurnar hafi ekki svo mikið sem kontið við nærföt J)ín“, sagði Timttr Lenk. „Þú hefir algjörlega rjett fyrir J)jer, herra“, sagði Nasreddin. „En þótt það sjáist ekki utan á, er eg illilega hræddur um, að þær hafi beðið tjón innan á!“ Timur Lenk fjekk nýtt hláturkast og Nasreddin nýjar nærbuxur. Hem herskár og grimntur harð- stjóri hefir Timur Lettk Jxdað furð- anlega gagnrýni á eigin persónu. En annars var stjorn hans engan veginn mannúðleg. Eitt hans fyrsta k verk var að kalla til sín landsstjór- ann í bænum Aksjekir, sem hann vissi að Var mjög ríkur. Hann ætl- aði að ásaka hann fyrir að hafa svikið undir sig skatta, til þess að fá ástæðu til þess að fjefletta liann, En reikningar landsstjórans voru allir í góðu lagi. Hann hafði skrif- að þá upp á pappaskífu, Sent hann fjekk Tituur Lenk. En hann reif strax pappaskífuna í tætlur, og neyddi landsstjórann til þess að borða upp tætlurnar. Og að því loknu gat hann fjeflett veslings landsstjórann eftir vild. Híðan gerði hann boð eftir Nasreddin, því að hann hugði að kennarinn mundi verða fýrirtaks skattheimtumaður. Að mánuði liðnunt, fjekk Nas- reddin skipun umt að leggja franv reikninga sína. Ilann gekk fyrir Timur Lenk nieð heljar stóra pönnu köku, seni þakin var tölunv. Timur Lenk furðaði sig auðvitað á þessu uppátæki hans, og svaraði Nas- reddin þá: „Ilerra, eg bjóst við að fá skipun unt. að borða upp reikningana. Því miður hefi eg ekki eins sterkan tnaga, og fyrir- rennari minn. Eg er gantall og get því aðeins melt pönnukökur“. Allar þessar sögur má enn þann dag í dag hevra í Tvrklandi. Þær eru einnig sagðar í Kaukasus, Ilell- as og Ungverjalandi, og hafa meira að segja farið yfír alla Norður- Afriku o náð til Hikilevjar og Huð- ur-Italíu. (ig enn Jvatiit dag í dag fcrðast ntenn til þess að skoða gröf Nasrcddins í Aksjekir. Því að Nasreddin er engin ævin- týrapcrsóna. Honum hafa að vísu vcrið eignaðar margar sögur, sem hann á ekkert í og eru miklu eldri ett hann. En að sögn fróðra matnia er það söguleg staðreyndt að Nas- reddin hafi dvalið við ltirð Tiuiur Lenk. Nasreddtn var etnnig getið í sam-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.