Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1944, Síða 1
Mh
36. tölublað.
JltogiiiiHftto im
Sunnudagur 11. nóvember 1944
XIX. árganguc.
Ii old*rpr»nt»ml4)* fe-A
onann
Gu
jaaaar
afóáon:
SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ
skáld í Reykjavík
I.
FORMÁLSORÐ.
JÓN BORGFIRÐINGUR skrif-
aði eins og kunnugt er mjög grein-
argóða og nákvæma ævisögu Sig-
urðar Breiðfjörðs. Viðaði hann efni
víða að. Enda þótt þar sje margt
tínt til, hef jeg við athugun á frum
gögnum varðandi æviferil Sigurð-
ar, rekist á ýmislegt, bæði til leið-
rjettingar á ævisögu hans og til
viðauka við það, sem áður hefir
verið um hann skrifað. Gögn þau,
sem jeg fer aðallega eftir eru brjefa
bækur bæjarfógetans í Reykjavík,
skjöl mála þeirra, sem höfðuð voru
gegn Sigurði, brjef til og frá stift-
amtmanni varðandi Sigurð, brjefa-
söfn bæjarfógetans í Reykjavík og
brjefabók landlæknis, sem jeg at-
hugaði eftir ábendingu Vilmundar
Jónssonar landlæknis.
.Teg mun hjer á eftir rekja hið
helsta af því, sem jeg hef fundið,
og er margt smásmugulegt og ef til
vill ekki til þess að auka hróður
Sigurðar sem manns, en alt um það
til fyllri kynningar á honum og
hinni raunalegu ævi hans.
Sigurður var sjálfur ærið reik-
Sigurður Breiðfjörð
ull í frásögn um æviatriði sín, og
verður því á stundum að gæta var-
ygðar við því, sem hann segir í
því efni. Árni Þorsteinsson sýslu-
maður í Snæfellsnessýslu kemst
þannig að orði í vottorði dags. 3.
maí 1843, sem hann gaf um Sigurð:
,,í Snæfellsnessýslu embættisskjöl-
um og prótókollum er ekki að finna
að beykir Sigurður Breiðfjörð hafi
nokkurn tíma, fyrri eða síðar, á-
kærður eða dæmdur verið um nokk-
urt sem helst lagabrot utan ein-
asta tvígifting...., og um lífshlaup
sitt hefir hann undir frumprófi
nefndrar sakar fyrir rjetti þann
12. október 1837 svoleiðis borið:
að hann sje fæddur á Skógarströnd
og uppalinn þar og í Ilelgafells-
sveit til síns 14da aldurs árs, þá.
hann siglt hafi til Kaupmannahafn-
ar og þar verið í þrjú ár að læra
beykishandverk. Svo hafi hann kom.
ið til Isafjarðarkaupstaðar 1818 og
þar dvalið í 5 ár við höndlunar-
þjenustu. Þaðan farið til Stykkis-
hólms og dvalið þar 3 ár, stund-
um við höndlunarþjenustu í kaup-
staðnum, og flust þaðan til Reykja-
víkur og verið þar 4 ár og svo far-
ið til Vestmannaeyja, og dvalið
þar, að sig minni, þrjú og hálft
ár, þaðan til Flateyjar á Breiða-
firði og verið þar 2 ár, síðan 1
vetur í Kaupmannahöfn, og þar
næst 4 ár í Grænlandi og síðan
hjer um bil 2 ár í Snæfellsnes-
sýslu“.