Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1945, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1945, Side 1
t»ók JlltYBmiMateiii* 20. tölublað. ., Sunnudagur 20. maí 1945. XX árgangur. liifold*ryr—t»ildt» - HIN FYRSTA FÓRN - Kaflar úr predikun eftir sr. FriÖrik A. Friðriksson prófast í Húsavík MENN, sem sökkt hafa hug sínum niður í mátt og helgi fórnarlögmáls ins, hafa spurt: „Hver og hvílík var hin fyrsta fóm?“ Einn þeirra gefur ímyndunarafli sínu lausan tauminn, og segir: Það var lengst aftur í ómunatíð — miklu lengra en nokkur saga nær. Það var í útjaðri skógar, á svölum haustmorgni. llrím.er á trjám.og grösum, eftir napurt næturfrost. Það var kalt í skóginum. En sjá, — árblik kviknar á austuiJ loftinu. Og loksins kemur sól y'fir sjónhaug. Morgungeislarnir sindra í hríminu, og breyta því smámsaman í daggardropa. Ylurinn vex — og líf færist í allt — allt, sem þráir ljós ið og daginn. Ut úr hellisskúta kemur maður ■— ef mann skyldi kalla. Leifar af veiðidýri liggja við skútaopið —» og maðurinn hyggst þegar að seðja hungur sitt. En. ósjálfrátt verður honum litið upp. Yfir skóginum skín sólin, og sjálf- ur sveipast hann Ijóma hennar. Hvílíkur unaður, eftir næturhroll- inn, að finna ljúfan ylifiinn leika um sig. Einhver undarleg, ókennileg til- finning grípur hrjúfa hellisbúann, — eitthvað, sem líkist þakklátsemi og elsku til jiessa lýsandi vinar þarna uppi, sem vermir hann og gerir bjart í kringum hann. Nú veit hann, að hann á og lang- ar til að gera eitthvað fyrir ]>ennan vin — þessa veru, sem er honum svona góð. En hvað á það þá að vera ? Uellis- búan'um er ekki sýnt um flóknar hugleiðingar — en hann kemst að iokum að niðurstöðu. Uvers þarfn- ast hann sjálfur mest ? Umfram allt — matar. Mundi þá ekki þessi ljós- vera líka þarfnast matar? Á ein- hverju hlýtur hún að lifa. — Maðurinn lýtur niður og tínir saman fáeina steina. Þeir eru heit- ir, — sólin er í þeini. Og nú tekur maðurinn matinn, sem hann hafði sjálfur ætlað að liorða, og leggur hann ofan á stein- ana — fyrsta, fábrotna altarið, shm mannshönd reisti til að þakka g.jáf- irnar góðu að ofan. Þessi var þá fyrsta gjöfin, sem maður gaf guði sínum — fyrsta fórnin, fyrsta sjálfsafneitunin, fyrsta „guðsþjónustan". Og húa var sönn og helg — því að því var fórnað, sem maðurinn vissi þá dýr- mætast í eigu sinni. Þetta var merk stund í.lífi manns ins. Sál hans, innri maður hans, tók að vaxa. Ilann hafði fengið hug- boð um veru, sem æðri væri honum sjálfum, og af mætti vænta vernd- ar og. styrks. Ljós trúarinnar tók nú að ljóma yfir mannlífið — eins og l.jós morg- umsóknirnar yfir vaknandi skóginn. Hin ægilega nótt heiðninnar byrj- aði að missa makt myrkra sinna. Hrím sjálfselskunnar tók að smá- breytast í daggardropa sjálfsafneit- unar og fórnar. Ávallt síðan hefir þetta tvennt — trú og fórn — verið aflvaki og líftaug menningarinnar, verið menn- ingin sjálf. Hugmyndimar um Guð og skiln- ingurinn á hinni sönnu, rjettu fórn hefir breyst með vaxandi mætti Framh. á næstu síðu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.