Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1945, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1945, Síða 14
LESBÚK MORGUNBLAÐtílNS [ £94 Bjamason frá tikarðsdal átti það. Þarna þekkti jeg mig fyrst eftir að jeg fór jd’ir skarðið, áðnr hai'ði jeg ekki vitað neitt glögglega hvað jeg fór. Jeg var að hugsa um að fara inn og hvíla mig, en jeg liætti við \ það, bæði af því, að jeg óttaðist um að mjer rnyndi kólna um of þar sem jeg var svo illa til reika, blautur og freðinn föt niín og jeg dálítið kal- inn á höndum og á fæti; jeg hjelt að jeg muncli sofna, og e. t. v. ekki vakna framar. Og svo var hitt cigi síður, að jeg vildi sem fyrst og mögulegt væri koma boðum í bæinn, um lát Einars, svo hægt væri að gera ráðstafanir til þess að sækja lík hans strax. En hversu feginn jeg var, að vita að jeg var nú kom- inn í námd við mannabyggð, það get jeg varla útmálað. Nú var að byrja að birta af degi. Príðinni var nú að ljetta en frostið að aukast. Jeg afrjeð að reyna að brjótast síðasta söplinn hcim að Steinaflötum, því farið var nú að styttast þangað. Þetta ’tókst þótt þarðsótt væri fyrir mig og komst Jeg þangað heim kl. 81/2 um morg- íininn. Var þá fólkið þar komið á fætur. Var mjer tekið þar eins jeg væri úr helju heimtur og hjúkrað með hinni.mestu nákvæmni og alúð. Þar fjekk jeg og samstundis mann, til að fara niður í bæifln, til að ,láta ’Alfons Jónsson lögfræðing vita um slysið, því Einar heitinn hafði verið að vinna fyrir hann innfrá. , Jeg var strax látinn hátta oían í rúm á Steinaflötum og hrestist jeg furðu íljótt. Eins og jeg gat uin fyrr, var jeg dálítið kalinn á fingr- jnrn og tám á öðrumjfæti. Kalið var þýtt með varúð, og fjekk jeg engan yaranlegan baga af þvi. Kristján Möller lögregluþjónn, kem síðar um daginn fram að Stcinaflötum og tókaf mjer skýrslu nm slysið. Seinnipart dagsins var jeg orðiun svo hress, að jeg gat j, gengxð studdur niður í bæinn og heim til mín. Jeg var að vísu tals- vert eftir mig nokkra næstu daga, en^jeg varð furðu fljótt jafngóður. Ljósið eða stjarnan, sem jeg sá, hefir ef til vill verið draumsýn, en hvað sem unx það má lialda, þá er það staðreynd, að sýn þessi veitti' mjer styrk, og jeg er ekki í vafa um það, að sýn þessari og þeim styrk sem mjer fannst hún veita mjer, á jeg það fyi’st og fremst að þakka, að jeg komst liíandi til bæja. — Jeg skal geta þess, að jeg var ald- rei hið minsta óttasleginn eða hrædd ur þessa löngu nótt, — þá lengstu held jeg, sem jeg hefi lifað, ■— og aldrei fannst rnjer að jeg vera neitt uggandi um það, að mjer ekki auðn aðist að komast lifandi til bæja. En nóttin var löng, — óendanlega löng. ★ ',r ^ FRÁSÖGN þessi cr skráð eftir Guðlaugi Bergssyni sjálfum 15. jan. 1942. Hann á nú heima í Dal- vík, og er enn hress og að kalla má ósljóvgaður andlcga; kvikur á fæti og ljettur í spori, sem væri hann fertugur. Sjón og heyrn er að vísu dálítið farin að láta á sjá, en þó vonum minna. — Gixðlaugur missti foður sinn ungur og ólst upp með móður sinni, fyrst í Sljettuhlíð og síðar í Svarfaðardal og þar giftist hann, og bjó þar um allmörg ár, en fluttist svo þaðan til Sljettuhlíð- ar, og bjó þar á ýmsum jörðum (Keldum, Skálaá, Ystahóli, Mýr- um) og eftir að hann hætti búskap, íluttist hann til Siglufjarðar og dvaldist þar til vorsins 1941. Guð- laugur er gagnvandaður rnaður, greindur vel og vinsæll af öllum, sem þekkja hann. Búðarmaðurinn: — Þetta er al- )veg fyrirtaks rottueitur, frú. Þjer skulið bara srnakka á því. Englaborgin Framh. af bls. 291. hitta þetta fólk, sem dvelur svo fjarri ættlandi sínu. Næsti dagur er gamlársdagur. Þann dag og nýársdag á jcg að dvelja á heimili Lake-hjónanna við ströndina. Um kvöldið sofna jeg við sírenu- væl. Jeg heyri það í gcgn um svefn inn öðru hvoru alla nóttina. Og svona var það á hverri nóttu, að því er manni fannst, með stundar fjórðungs millibili. Umferðin, í Los Angeles og ná- grenni er tröllaukin. Strætin eru breið en bifreiðarnar brima í margsettum röðum hver fram úr annari á fleygiferð bæði til hægri og vinstri. Iljer munar oft mjóu. Hjer á,sá sökina — cf slys verður — sem ekki heldur beinni línu. Og hjer er þetta hægt því að hvcrgi sjest hola í götu. Los Angeles er að flatarmáli stærsta borg heimsins. Tíminn er þotinn xit í veður og vind fyrir gangandi mann. En jafnvcl í bifreið verður að hafa liraðann á. Á kvöldin kvikna raðir af blá- grænum eða gulum Ijósum — eins ,og skrautlýsing meðfram eggsljett- um vegunum — og sýna hvort aka má áfram eða ei. Slík lýsing, eða Ijósker á götu- Ihorn, þarf að koma við helstu urn- fei’ðaæðar Reykjavíkurborgar. Þegar jcg dreg upp gluggatjald- jð næsta morgun, er sterkju sólskin. Hlýr andvarinn berst í bylgjum inn um galopinn gluggann og fugl- arnir syngja hver í kapp við annan. En það er líka gamlársdagur! 4 4 4 — Einu sinni vai'stu svo ástfang- inn af mjer, að þú sagðist gcta borðað mig. — Já, og jeg var sá bölvaður bjálfi að gera það ekki.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.