Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1951, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1951, Síða 3
\JiLtona (Ujamadóttir: JÓLANÖTT í SVE Fram úr skugga hinum megin fjarðarins skríður bátur. BLESSUÐ JÓLIN eru komin, allir í hátíðaskapi. Jólafastan hafði ver- ið óvenju góð og frosta lítil. Fjörð- urinn okkar, sem venjulega var alþakinn ís um jólin var nú alveg islaus. Á aðfangadag var kominn snjór yfir allt með dálitlu frosti. Það er bjart veður og fagurt, tungl- ið í fyllingu, svo allt umhverfið er vafið dýrðarljóma. Bærinn okkar einbýli, stóð undir lágu felli með klettastölium. Var mikil trú á því, að huldufólk byggi þar. Voru sagnir um, að barn, sem var að leika sjer þar, hefði fundið ný- undinn þráðalegg, og þótti sýnt, að hann væri frá huldufólki, sem byggi í fellinu. Þó það væri jólanótt, og alls staðar loguðu ljós, fór heimilis- fólkið að sofa á venjulegum tíma, því að kveldið var of heilagt til að spila eða hafa annan gleðskap. Var það geymt til jóladags, þá skemmti hver sjer eftir vild. Um tíu leytið heyrðist einkenni- legt hljóð, það er einhvers staðar verið að spila á harmoniku. Allir veita þessu óskifta athygli. Það er blæjalogn á firðinum, og fram úr skugga hinu megin fjarðarins, skríður bátur og kemur þá í ljós, að það er þaðan, sem hljóðfæra- slátturinn heyrist. Jeg get ekki hugsað til að fara inn. Það er sunginn jólasálmur og spilað und- ir á harmonikuna og báturinn skríður áfram út á firðinum. Mjer finst allt umhverfið verða svo unaðslegt og verð jeg innilega snortin og jólahelgin greip mig svo, að jeg gleymi aldrei þessu aðfangadagskveldi. Jeg geng nið- ur túnið, og upp á hól, sem er skammt frá sjónum, og horfi heim að blessuðum bænum mínum með mjallhvítt þakið, og allt umhverf- ið hvítt, og fjörðurinn glitraði í tunglskininu, og mjer datt í hug að allt væri saklaust og hreint nema jeg. Svo geng jeg heim og inn í bæ- inn, þar er fábreytt, en svipur jól- anna blasir við. Fólkið hefur verið í hátíðabúningi og hátíðaskapi. Jeg las jólahugvekjuna um kvöld- ið kl. 8 og þá eftir lesturinn var úthlutað jólagjöfunum, og drukkið súkkulaði og kaffi. Geislar gleðinn- ar spegluðust á andlitum barnanna og jafnvel þeirra eldri líka, enda var mikið búið að vinna að jóla- undirbúningnum. En það eru líka dásamleg launin, faðmlög og þakk- lætiskossar elsku litlu vinanna minna. Mig langar til að vera lengur úti, svo að jeg spyr manninn minn (hann var ekki háttaður) ,hvort hann vilji ekki koma með mjer til næsta bæar, -sem er aðeins 15 mín- útna gangur. Vissi jeg, að piltur og stúlka, sem við þektum vel, höfðu sett upp trúlofunarhringana þá um kvöldið, og fanst mjer tilvalið að fara til þeirra og óska þeim til ham-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.