Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1951, Page 19
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
599
Hvalsnes- bærinn.
staðið allar á sama stað, sem ráða
má af uppgreítri, síðan farið var
að grafa í gamla kirkjustæðið, sem
nú er í vesturenda hins nýstækk-
aða kirkjugarðs.
Það tilefni er talið til byggingar
núverandi kirkju, að eitt sinn var
Ketill bóndi í Kotvogi við ferming-
armessu að Hvalsnesi og komust
þá ekki allir kirkjugestir inn. Ket-
ill kvað að svo búið mætti ekki
standa að þeir sem messu vildu
hlýða væru utandyra. Skömmu síð-
ar ljet Ketill hefja byggingu nýrr-
ar kirkju, sem reist var fyrir utan
garð, á hól nokkrum skamt frá.
Kirkjan er hlaðin úr tilhöggnu
grjóti. Smiður var Magnús Guð-
mundsson frá Reykjavík en hleðslu
annaðist Magnús múrari frá Mið-
húsum, en hann mun hafa dáið
meðan á verkinu stóð, en það tók
3 ár að fullgera kirkjuna.
í sama mund var Asbjörn Ólafs-
son í Njarðvík að láta hlaða kirkju
þá sem enn stendur í Innri Njarð-
vík. Metingur var á milli höfðingj-
anna um það hver byggði stærra
cg sigraci Ketill þar, svo sem sjá
má, því báðar eru kirkjurnar eins,
nema Hvalsneskirkja er nokkru
stærri.
Núverandi Hvalsneskirkja er
vígð 1887 og þjónað af Útskála-
presti, sem einnig þjónar fjórum
öðrum kirkjum og gætir eins af
stærstu prestaköllum landsins.
Hvalsneskirkja er máttug og góð
til áheita, um það eru margar
sagnir en jeg kann þær fæstar. Þó
hafa núlifandi menn sagt mjer
nokkrar sem þeir vita deili á og
telja sannar.
Ein þessara sagna greinir frá
Hákoni bónda að Stafnesi. Hann
var skytta góð og stundaði tófu-
veiðar. Eitt sinn var hann í tófu-
leit skammt frá Stafnesi og komst
þá í kast við sjóskrímsli eitt fer-
legt. Berst viðureign þeirra sunn-
an undir túngarð og þótti Hákoni
sinn hlutur óvænkast. Hjet hann
þá að gefa Hvalsneskirkju gjöf
nokkra ef hann slyppi frá skrímsl-
inu. Brá þá svo við, að hann komst
innfyrir túngarðinn sem gerður var
úr háum rekaplönkum og skildi
þar með þeim Hákoni og skrímsl-
inu. Hákon færði kirkjunni ljósa-
hjálm mikinn — 12 kerta — sem
nú hangir næst altari og sannar
þessa sögu. Tveir aðrir ljósahjálm-
ar eru í kirkjunni og er annar til
minningar um Ólaf Sigurðsson frá
KKirkjau að iuuau