Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1952, Page 16
263
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
4 Þingvöllum 1874.
Þef»ar sást til konungs að austan.
raðaði fólkið sér beggja megin við
veginn, svo að hann gæti riðið á milli.
Þe?ar ég hevrði hróp, fór ég ég út til
að revna að sjá og heyra það, sem ég
gæti. Ég kom mátulega til þess að sjá
hestinn fælast undir konungi, hrædd-
an við ópin og ósköpin. Geir gamli
Zoéga hljóp af baki og var svo hepp-
inn að ná í taumana og stilla hestinn,
til allrar hamingju, og mikið var hann
fljótur. Konungur gaf honum silfur-
kaffikönnu. Minna gat það varla ver-
ið. En það er satt, hann fékk líka
medalíu, og hana úr gulli, meira að
segja. — (Guðrún Borgfjörð).
Flosagjá.
Fiosagjá heitir gjáin austanvert við
Lögberg, sem svo var oftast kallað í
minni tíð. En af því að Nikulásar-
pyttur er í sömu gjánni, mun hún einn-
ig, eftir að hann drap sig í honum
17^42, hafa verið kölluð Nikulásargjá.
Ég veit ekki betur en að gjá þessi
héti Flosagjá, nepan að og upp úr,
einnig bak við Lögberg, hvaðan gjáin,
sem er að vestanverðu við Lögberg,
er klofningur, á hverjum ég vissi ekk-
ert nafn. (Séra Einar S. Einarsen á
Þingvöllum. — í Flosagjá er Nikulás-
arpyttur þar sem nú er farið að nefna
Peningagjá).
Jarðskjálftarask á
Þingvöllum.
í jarðskjálftanum 1789 sökk landið
mil'i A’mannaPÍár off Hrafnaeiár um
4 alnir, sem mæla mátti á eftirlátnum
merkjum svarðlínunnar, hvar hún
hafði áður legið eftir berginu. Þá
sökk og líkt bil í Henglinum útundan
Hestvík í Þingvallavatni, er menn
tóku sem merki þess, að Kaldá rynni
þar undir úr vatninu. Þá hvarf urriða-
veiðin úr gjánni Silfru, sem liggur í
útsuður til vatnsins norðan við Lamb-
hagann suðurundan bjenum, í hverri
veiðin var lögð jöfn við snemmbæra
kú. Þá hvarf og murtuveiði af Leir-
unni niður undan Miðmundatúninu,
sem var lögð við 2 snemmbærar kýr.
Þá gleikkaði einnig Flosahlaup á Flosa-
1. aiAI I KEYKJAVÍK. Sól og sumarveður var þennan dag og tugþúsundir
manna tóku þátt í hátíðahöldum dagsins, sem fóru fram á Lækjartorgi. Hér á
myndinni sést Stjórnarráðið með blaktandi fána og mannfjöldi, sem safnazt
hafði saman á Stjórnarráðsblettinum til þess að hlýða á það sem fram fór.
— Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
gjá, er hrundi úr austurbakka henn-
ar, eins og einnig hrundi úr fleiri
gjám. Sjálfsagt hefir vegurinn verið
gamall austan yfir allt hraunið að
Þingvallatúni. En strax eftir jarð-
skjálftann 1879 lagðist vegurinn um
túnið, og traðirnar ásamt túngarðin-
um hlóð í hjáverkum sínum á tveim-
ur árum, úr grjóti er hann tók upp
úr túninu, Jón sál. Þormóðsson, sem
var vinnumaður stakur að dygð og
atorku, á Þingvöllum hjá tveimur
prestum frá 1750—1821 og deyði á
Meðalfelli hjá séra Einari sál. Páls-
syni. Sléttaði Jón túnið að nokkru
leyti um leið og hann tók grjótið upp
úr því. (Séra Einar S. Einarsen).