Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1953, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1953, Page 1
3. Guðbrandur Jónsson próíessor: FRÖIMSK hetjuljóð OG fSLEIMZKAR RÍIVIUR ÉG BÝST við því að flestum lands- mönnum sé kunrragt, að fyrir skömmu kom hér út sýnisbók ís- lenzkra rímna í 3 bindum, sem hinn nafntogaði skozki fræðimaður herra Vilhjálmur Craigie hefur gengið frá. Rit þetta er með slíkum ágæt- um, að það lofar sig sjálft, og skal ég því ekki fara lengra út í það. Þó vil ég leyfa mér að segja, að ef þetta rit, samið og gert af slíkum höfuðfræðimanni sem herra Vil- hjálmi, ekki getur orðið til þess að vekja skilning íslenzks almennings á þýðingu rímnabókmenntanna fyrir okkur og ágæti þeirra á marga lund, þá held ég að íslend- ingahjörðinni verði upp héðan ekki gefandi annað á hinn andlega garða en atómkveðskapur og slíkt frugg, en af því mun hjörðin aldrei verða menningarlegt holdafé. — ★ — Lestur hinna merku innganga herra Vilhjálms í Sýnisbókinni vekur mann til margvíslegra um- hugsana, ekki síður þótt maður sé leikmaður á þessu sviði, eins og Guðbrandur Jónsson próf. ég er. Eitt með öðru, sem ég fór að velta fyrir mér við lesturinn, er uppruni íslenzkra rímna og hvernig þetta kvæðaform hefur borizt hingað til lands, því að um það er enginn ágreiningur, að það á upptök sín utan íslands. Hitt mætti, ef til vill, vera fleiri en ein skoðun um, eftir hvaða leiðum og hvenær kvæðaformið hefur borizt hingað. Einhverntíma endur fyrir löngu hef ég myndað mér mína skoðun um þetta, en ég hef nú ekki lengur hugmynd um, hvernig ég komst að niðurstöðum mínum, enda hef ég aldrei síðar, frekar en gerist um leikmenn, endurskoðað þær til þess að ganga úr skugga um, hvort þær fengju staðizt. í hinum ágætu inngöngum sínum að bindum Sýnisbókarinnar gerir herra Vilhjálmur skilmerkilega grein fyrir afar mörgu, og meðal annars skýrir hann frá því, eftir hvaða leiðum rímnaformið hafi borizt hingað í land. Ég ætla laus- lega að greina frá skoðun hans um þetta efni og sennilega flestra ann- arra, vegna þess að mér virðist önnur skýring en sú vera hugsan- leg á því, hvaða leiðir rímurnar hafi borizt hingað, skýring, sem er í.samræmi við hina gömlu skoðun mína um þetta efni. Vakti inngang- urinn að fyrsta bindinu mig til þess að fara að athuga, hvort hin gamla skoðun mín gæti verið rétt, eða

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.