Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Blaðsíða 1
13. tbl. Sunnudagur 4. apríl 1954 XXIX. árg. * A y^RIÐ 1733 var í lögréttu á Al- þingi lýst manni þeim, er Ás- grímur hét Böðvarsson og var tví- tugur að aldri. Hafði hann orðið sekur um merkurþjófnað í Vest- manneyjum og fyrir það dæmdur útlægur úr Sunnlendingafjórð- ungi. Honum er svo lýst að hann sé dökkur á brún, móeygur og með jarpt hrokkið hár, með hærri mönnum og þykkur að því skapi, fótamjór og hátt til hnésins, ekki ókarlmannlega vaxinn og sýnilega efldur, hagtækur á smásmíði, lítt læs en þó kostgæfur um að taka sér fram þar um, glaðlyndur í sinn hóp og sýnilega orðfár. Ásgrímur mun þá hafa verið far- inn úr Sunnlendingafjórðungi og seztur ^ð á Snæfellsnesi. Er hans getið þar tveimur árum seinna fyr- ir það frábæra kfrek, að hann hafi klifið upp á stærri Lóndrangann. Var það á þriðja í Hvítasunnu (31. maí 1735). Hafði hann með sér fertugt færi og renndi því fram af drangnum og vantaði þá hér um bil 4 faðma upp á að það næði alla leið niður. Ásgrímur hefir sjálfsagt verið vanur bjargmaður í Vest- manneyum og þess vegna hefir * honum ekki blöskrað að klífa upp á drangann, þótt það þætti svo mikið afreksverk þar vestra, að þess er getið í annálum. Máske hefur þetta og þótt enn meira af- reksverk, er annar maður, sem ætl- aði að ganga á dranginn nokkurum árum seinna, hrapaði þar til bana. Nú var það veturinn eftir að far- ið var í hinar mannlausu kaup- mannabúðir í Ólafsvík og stolið þaðan 200 ríkisdölum í peningum og um 30 vættum af varningi. Ekki sá nein missmíði á verslunarhúsinu og komst þetta ekki upp fyr en um vorið, er kaupmaður kom og sakn- aði þessa. Þá var sýslumaður í Snæfellsnes- sýslu Guðmundur Sigurðsson lög- sagnara Sigurðssonar á Brjánslæk. Hann hafði verið Alþingisskrifari árið sem Ásgrími var lýst þar, en fekk Snæfellsnessýslu 1734 og bjó á Ingjaldshóli. Hann var röggsamt yfirvald, skörulegur maður og siða- vandur svo, að þá þótti varla við hóf. Þegar þjófnaðurinn komst upp mun sýslumaður þegar hafa fengið grun um að Ásgrímur væri þar við riðinn. Lét hann þá grípa Ásgrím um sumarið og hafði hann í varð- TLAGI haldi hjá sér á Ingjaldshóli. Ekki sannaðist neitt á hann og ekki ját- aði hann sig valdan að þjófnnðin- um, en honum tókst að strjúka úr varðhaldinu og lagði hann þá leið sína norður í Strandasýslu og kom fram í Trékyllisvík. Segir Gísli Konráðsson svo frá komu hans þangað: „Þá bjó í Krossnesi sá maður er Ásgrímur hét, vitur maður og drengur góður. Jörundur hét mað- ur, er var á vist með Ásgrími. Hann var Ásbjarnarson og átti fyrir konu systur Ásgríms bónda. Hann var kallaður margvís og þó drengur góður. Ásgrímur seki bað nú nafna sinn viðtöku. Tók bóndi því fálega í fyrstu en þá lagði Jörundur til að honum yrði veitt nokkur umsjá um tíma. Kom þá svo, að Ásgrímur tók við nafna sínum.“ Sumarið eftir, 1737, komst svo upp hverjir voru valdir að þjófnað- inum í Ólafsvík. Náðist þá maður, er Halldór hét Snorrason úr Mýra- sýslu og játaði hann á sig að hafa farið í búðina ásamt Ásgrími Böðvarssyni og stolið þar. Fyrir þetta var Halldór dæmdur til að kaghýðast tvisvar sinnum og brennimerkjast. Fór önnur hýðing-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.