Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Blaðsíða 5
v LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 233 Austri hinn mikli ar vildu ekki sjá það .... Nokkrir leynilögreglumenn höfðu verið ráðnir til þess að hafa eftirlit með vasaþjófum. Einn þeirra kom þar sem fjöldi manns var að spila. Hann komst að því að menn höfðu rangt við og kærði. Þá komst allt í uppnám. Menn fleygðu spilunum og handalögmál hófust og þessu lauk með því að leynilögregluþjónninn var lokaður inn í gripastíu uppi á þilfari. Hinir reyndari og gætnari gengu til náða, en þá hófust nú vandræðin fyrir alvöru. Það voru ekki til rúm Skipsbáknið, elti frá Frh. Skemmtiferð. Seint í júlí var tilkynnt að Austri hinn mikli ætlaði að fara í tveggja daga skemmtiferð til Cape May og kostaði 10 dollara að fá að vera með, en farþegar yrðu auk þess að kaupa fæði um borð. Tvö þúsund farmiðar seldust. Daniel Gooch skrifar í dagbók sína um þessa skemmtiferð: „Allt gekk að óskum í byrjun. Fólk réði sér ekki fyrir kátínu um kvöldið, Lundi eru síðustu eintökin af þessu verki nú komin hingað til lands og eru þau seld í bókaverslun Snæ- bjarnar Jónssonar í Hafnarstræti 9. Er nú tækifæri fyrir bókasöfn og bókamenn að eignast bækur, sem óvíst er að verði á boðstólum á næstu áratugum. • Ó. B. sem ógæfan upphafi enda var veður yndislegt, tungls- ljós og blæalogn“. Svo var lúður þeyttur til merkis um að allir far- þegar ætti að koma inn í stóra sal- inn. Þar átti að vera mikil kvöld- veizla og þjónar úr landi höfðu verið leigðir til þess að ganga um beina. Farþegar streymdu inn í salinn og skipuðu sér við veizluborðið. En þjónarnir stóðu eins og mynda- styttur og hreyfðu sig ekki. Þá réðust farþegar að brytanum og spurðu hverju þetta sætti. Hann varð þá að segja þeim frá því að óhapp hefði komið fyrir. Það hafði sprungið vatnsleiðsla í forðabúri skipsins og eyðilagt allan matinn. Þetta var að vísu ekki eina forða- búrið. Og nú var farið í annað og þangað sóttir vindþurkaðir fuglar, morkið nautakjöt, ólseigt saltkjöt og kex, sem var hart eins og grjót. Þetta var borið á borð, en farþeg- handa öllum þessum sæg, því að skipið var aðeins ætlað 300 far- þegum. Sumir höfðu pantað rúm fyrir fram, en allt hafði farið í handaskolum um úthlutun þeirra, svo að þegar memi ætluðu að ganga til hvílu voru annara manna konur fyrir í rúmum þeirra. Marg- ir höfðu fengið ávísan á sama klef- ann. Þjónarnir voru dauðadrukkn- ir og gátu ekkert greitt úr þessu. Menn fóru þá að berjast um svefn- klefana og þess voru dæmi að kon- ur voru rifnar upp úr rúmum með harðri hendi og fleygt á dyr. Nú var gripið til þess ráðs að breiða þunnar ábreiður á þilfarið svo að menn gæti sofið á þeim. En ekki var það ókeypis, menn urðu að borga 50 cent fyrir að fá ábreiðu. Og ef einhver þurfti að víkja sér frá var það víst mark að einhver þjónn stal ábreiðunm og leigði hana öðrum. Enginn reyndist farþegunum vinur í raun nema skozk stúlka, sem átti að sjá um kvennasalinn. Hún kom nokkr- um konum þar fyrir og varði þær fyrir ollum ásoknum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.