Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Blaðsíða 22

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Blaðsíða 22
250 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS hernámsstjórnir Vesturveldanna þaðan. Berlín er eins og ey inni í hernámssvæði Rússa — Austur- Þýzkalandi — og þess vegna gátu þeir stöðvað allar samgöngur á landi og eftir skipaskurðum. Og með því að hindra alla aðflutninga á matvælum, fatnaði og eldsneyti hugðust þeir koma á hungursneyð meðal hinna 2.500.000 íbúa Vestur- Berlínar og neyða þá til að leita á sínar náðir. Jafnframt yrði þá her- námsstjórnir Vesturveldanna að hrökklast þaðan með vansæmd. — Þannig hugðust Rússar ná allri Ber’í ' .mdir sig. En Vesturveldin svöi neð því að koma á hinni svok u „loftbrú“ milli Vestur- Þýzkala; ds og Vestur-Berlínar, og tókst það svo vel að fyrirætlanir Rússa fóru út um þúfur. Sumarið 1949 var svo komið að hvert mannsbarn hefði getað séð þann mun, sem orðinn var á Austur -Berlín og Vestur-Berlín. Munur- inn var orðinn svo mikill að menn gátu séð hann út um glugga á járn- brautarlestum, sem gengu milli borgarhlutanna. — Allar búðir í Vestur-Berlín voru fullar af vörum og menn gátu gengið þar inn og keypt hvað sem þeir girntust. En í Austur-Berlín var það hæpið að menn gæti fengið þær vörur, er þeir höfðu fengið skömmtunarseðla fyrir. Þá um haustið var stofnað hið svokallaða „þýzka lýðræðisríki“ fýrir austan járntjaldið og þá var kallað að Austur-Berlín væri mið- depill lýðræðisins. En það varð brátt Ijóst að þar var ekkert lýð- ræði. Þar var allt stjórnarfyrir- komulag sniðið eftir rússneskri fyr- irmynd. Her var stofnaður, konur voru skyldaðar til að vinna karl- mannsverk og ganga í hinar svo- kölluðu vinnufylkingar, sameign- arbúskapar var fyrirskipaður að rússneskri íyrirmynd, njósnarlög- regla var stofnuð til að snuðra um menn, menn voru teknir á götum úti og leitað á þeim, eða sóttir heim til sín og látnir hverfa. í staðinn fyrir lýðræði var hér komið lög- regluríki. Nú þótti það ekki lengur henta að hernámssvæðin lægi saman, heldur var nú gert belti á milli þeirra allt frá Eystrasalti til landa- mæra Tékkóslóvakíu. Voru bændur reknir af þessu svæði, en lepp- stjórnin í Austur-Þýzkalandi lagði það undir sig. í staðinn fyrir af- mörkun hernámssvæða, var Þýzka- land þar með klofið og gerð landa- mæri milli Austur- og Vesturhluta þess. Jafnframt þessu voru reist varnarvirki á þessum landamær- um að rússneskri fyrirmynd. — Kennsla í vopnaburði var fyrir- skipuð í verksmiðjum, skólum o. s. frv. Þarna var verið að vopna al- þýðu, alveg eftir fyrirmynd Hitlers sáluga. Eftir því sem harðstjórnin í Aust- ur-Þýzkalandi færðist í aukana, eftir því jókst flóttamannastraum- urinn til Vestur-Berlínar. Árið 1959 komu þangað 300 flóttamenn dag- lega að meðaltali. En árið 1952 komu þangað 124.300 flóttamenn. Einn dag í júní nam tala flótta- mannanna 5000. Þessir menn höfðu flúið heimili sín og jarðir, þar sem forfeður þeirra höfðu búið mann fram af manni, vegna þess að þeir vildu ekki ganga í samyrkjubúin og voru hræddir um að þess vegna mundu þeir teknir höndum og sett- ir í þrælkunarvinnu. En það voru ekki aðeins bændur, sem flýðu. — Meðal flóttamannanna voru kaup- sýslumenn, læknar, menn af öllum stéttum, konur og börn, og höfðu ekki annað með sér en fötin, sem þeir stóðu í. Þetta fólk var að flýa „paradís“ kommúnismans og vann til að yfirgefa allar eignir sínar til þess að komast burtu. Meðal flótta- mannanna voru éinnig ungir menn. sem höfðu verið neyddir í hinn svokallaða „alþýðuher“, ungir menn í einkennisbúningum hers og lögreglu, og báðu um griðastað í Vestur-Berlín. í septembermánuði 1952 komu þangað 397 einkennis- klæddir lögregluþjónar, þar af 167 á einum degi. Hvað gat svo Vestur-Berlín boð- ið þessum flóttamönnum? Hið dýr- mætasta á jarðríki — frelsið. Hinn 16. júní 1953 risu verka- menn í Austur-Berlín upp gegn harðstjórn og kúgun. — Þeir fóru kröfugöngur til leppstjórnarinnar. Þeir kröfðust frjálsra leynilegra kosninga, afnáms þrælkunarvinnu og betra stjórnarfars. Almenningur dreif að úr öllum áttum til þess að skipa sér í fylkingar kröfumanna, og menn rifu niður rússneska fána, sem alls staðar voru á lofti. Þetta var það, sem allur almenningur í Austur-Þýzkalandi hafði beðið eft- ir og „uppreisnin" breiddist óðfluga út um landið. Tugþúsundir manna tóku þátt í henni á hverjum stað. Þetta var fyrsta tilraunin að brjót- ast úr viðjum kommúnismans. Mikill fögnuður var í Austur- Berlín. En hann varð skammvinn- ur. Stórir rússneskir skriðdrekar voru sendir á vettvang og þeir skutu á varnarlaust fólkið. Kröfu- göngurnar tvístruðust. Herlög voru sett í borginni. Bannað var að fleiri menn en þrír kæmi saman á götu og öllum var bannað að vera á ferli eftir að skyggja tók. Uppreisnin fór út um þúfur. — Kröfur verkamanna voru barðar niður með rússnesku vopnavaldi. Menn voru handteknir hundruðum saman, og þar með var sögu þeirra lokið. Hinir áttu sér engrar vægðar von. Hér var beitt þeirri aðferð að „berja börn til ástar“. Krafan um almenn mannréttindi var kæfð með grimmd. En enn lifir vonin hjá Austur-Þjóðverjum um að endur- heimta frelsi sitt og að Þýzkaland sameinist aftur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.