Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Blaðsíða 2
230 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS in fram þegar eftir dómsuppsögn og markaður var hann þá um leið, en seinni hýðingin skyldi fara fram á vorþingi. Það þing var háð að Ingjaldshóli á þriðja í páskum vor- ið 1738. Þann dag brast á vestan- stórviðri upp úr logni og fylgdi stór hríð. Lentu bátar þá víða í miklum hrakningum og fórust margir menn. Þetta var hinn 9. apríl. En ekki frestuðust réttarstörf Guð- mundar sýslumanns fyrir stórviðr- ið, og var Halldór hýddur á þing- inu og annar þjófur líka. — ★ — Þegar Guðmundur sýslumaður komst að því hjá Halldóri, að Ás- grímur hefði verið með honum í þjófnaðinum í Ólafsvík, fór hann að halda spurnum fyrir um hvar Ásgrímur mundi niður kominn, og sannfrétti þá að hann væri á Krossanesi í Trékyllisvík. Gerði sýslumaður þá ferð sína þangað norður sumarið 1737 til þess að grípa Ásgrím. En Ásgrímur varð var við ferðir þeirra og tók á rás frá bænum og upp í fjall og höfðu þeir hans ekki. Sýslumaður stefndi honum þá til þings, en auðvitað hafði Ásgrímur það að engu og kom ekki. — ★ — í Strandamannasögu hefur Gísli Konráðsson frásögn um þessa að- för að Ásgrími. Er þar víst bland- að saman frásögnum um tvær að- farir til að ná í Ásgrím, en vegna þess að nokkur fótur er fyrir frá- sögninni, skal hún birt hér. — Það er sagt að amtmaður syðra fengi spurt um síðir að Ás- grímur var á Ströndum. Sendi hann þá mann þann, er Eyvindur hét, allröskan og góðan dreng, norður og menn eigi allfáa með honum á fund Einars Stranda- sýslumanns að leita Ásgríms. Stóð Einar þegar upp og höfðu þeir margt manna og komu á Krossnes. Þá voru þeir Ásgrímur bóndi og Jörundur á sjó, en Ásgrímur seki sat á palli hjá konum, er unnu tó. Brá hann sér eigi er mannaferðin var sén, en greip kefli, risti á rúnir og gól galdra yfir. Aðkomumenn skipuðust fyrir dyr og Eyvindur leitaði laundyra með sínum mönn- um. En er lið þeirra hafði skipazt um bæinn, varpaði Ásgrímur rúna- kefli sínu í ræfur upp, en jafnskjótt rifnaði þekjan fyrir og varð á gluggi mikill, að því er konum sýndist. Stökk Ásgrímur þar út, en þeir sáu til hans og eltu hann, en hann brá fyrir sig handahlaupum og höfðu þeir ekki við honum þótt ríðandi væri. Komst hann upp í Krossnesmúla og grýtti á þá með æsingi miklum stórgrýti, svo að þeir komust ekki að honum. Meidd- ust margir af grjótinu og Eyvind- ur mest. Kom þá að Ásgrímur bóndi og flutti þá er meiddir voru heim í Krossnes, en hinir fóru heim með Einari sýslumanni. Lá Eyvindur í Krossnesi til þess hann var gróinn og skildu þeir Ásgrímur bóndi með kærleikum. Reið Eyvindur suður og sagði sínar farir ekki sléttar. Og kölluðu menn Ásgrím eigi vera meðalskata og ei mundi dælt við hann að fást. Eftir það dvaldist Ásgrímur í ýmsum stöðum í klyftum, gjám og hellum, því að enginn þorði að taka við honum. Lagði og Einar sýslumaður bann fyrir allar bjarg- ir við hann.---- Það var 13 vetrum áður en hér var komið, að Ásgrímur gekk á drangann 1735.--------- — ★ — Samkvæmt því hefði þessi saga átt að gerast árið 1748 og er ekki fyrir að synja að þá hafi enn verið gerð för að Ásgrími. En annars er hér á þjóðsögukenndan hátt bland- að sanaan frásognum af tveimur aðförum við hann árið 1737. Hefur fyrri aðförinni þegar verið lýst, er Guðmundur sýslumaður fór sjálf- ur norður þangað. — En nokkru seinna var það, að Guðmundur sýslumaður sendi marga menn norður í Trékyllisvík til að hand- sama Ásgrím og fór þá svo að þeir náðu honum. Var Ásgrímur þá hinn spakasti og hafði ekkert á móti því að fara með þeim á fund Guðmundar sýslumanns. Lögðu sendimenn sýslumanns svo á stað með hann og segir nú ekki af för þeirra fyr en þeir komu að Kleifum í Gilsfirði. Þar höfðu þeir náttstað: Ásgrímur var látinn vera í baðstofu og var hann járn- aður á höndum og fótum, svo að hann skyldi ekki sleppa. En auk þess var vörður haldinn við út- göngudyr um nóttina og þótti það öruggt. Þetta dugði þó ekki, því að þegar menn komu á fætur um morgun- inn, var Ásgrímur horfinn. Hafði hann rofið baðstofuþekjuna um nóttina og skriðið þar út. Fannst hann ekki hvernig sem leitað var. Þótti þetta með hinum mestu ólík- indum, að maðurinn skyldi komast þarna út í tvennum járnum og geta forðað sér. Munu sumir hafa ætlað að hann væri ramgöldróttur, enda segir Gísli Konráðsson hiklaust að hann hafi verið galdramaður. Og að þessum atburði mun lúta frá- sögn hans um það, að Ásgrímur hafi kastað rúnakefli í ræfur upp og þekjan jafnskjótt rifnað, enda þótt það hafi átt að gerast á Kross- nesi. Ekki er nú vitað hvernig Ás- grímur hefur náð járnunum af sér, en farið mun hann hafa norður í Strandasýslu aftur. Segir sagan að hann hafi komið þar á einhvern bæ og beðið bónda að Ijá sér smiðju, því að hann ætlaði að smíða öngla. Dró hann síðan hand- járn upp úr vasa sínum og kvaðst

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.