Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Side 19
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
247
©Cl=<(P!Q==<(P*Q==<(P<Q==<CPCQ==<(P<Q=^(P<Q=K(P:Q=<<P“CQ==<(P!Q=^(P<Q==<(P;Q=^(p<Q==<(p<Q=s<(P^Q=*Cíl^P^Q=<(P^Q=<(P'Q==í(P,!Cb»íCP5Q==<CP<Q==<(/0
IMfcH..
Gretar Fells:
J
l
í
ií kuœÉi
SKALD
Eitt sinn stefndi að einu marki
óska minna hjörð:
Að vera skáld var æðra öllu,
öllu hér á jörð. —
Margir áttu hrós og- heiður,
en hver var „skáldi“ jafn?
Mér fannst töfra ljúfur ljómi
leika um þetta nafn.
Skyggði fljótt, því skáldin eru —
skilizt gat mér senn —
ekki neinar æðri verur, —
aðeins breyzkir menn!
•
Gott er víst að geta málsins
gulli og silfri stráð,
og í fagrar orðavoðir
ofið hugans þráð.
Heill sé þeim, er húmi nætur
heioan syngur dag.
Gaman er að geta lýði
glatt með snjöllum brag.
En á mörgum öðrum sviðum
óðsins guð ég fann.
Skáld er hver, sem dýrum draumi
í dáðir breyta kann.
Skáld er sá, er úr skuggans ríki
skapar ljóssins rún.
Skáld er bóndi, er breytir grýttu
barði og mel í tún.
Skáld er sá, er í skuggum lasta
skína lætur dyggð.
Skáld er sá, er gleði getur
gert úr sárri hryggð.
Vér skulum með oss viljann rækta,
vit og kærleiksþel.
Skáldskap getur æðri engan
en að lifa vel!
LIST
List — hvað er list?
menn löngum spyrja
og syngja lofsöngva
og sálma kyrja. —
í lærdóms myrkvið
þeir leita svara.
En gátan er söm. —
Hún glottir bara!
Því listin að þagnar
leiðir hliði.
Hún er heimsókn dulræn
frá hærra sviði.
Því frjóvgast hugur,
því fágast kenndir. —
Á æðri sannindi
oss eitthvað bendir,
hvar sem þau undur
í heimi gerast,
Gretar Fells.
og hvort sem þau alþjóð
opinberast
í viðhafnarskrúða
eða verstu tötrum,
því list er sál hlutanna
leyst úr fjötrum.
MÁL GUÐANNA
Leiðast mér löngu kvæðin
og listinni bregðast þau flest.
Það er dýptin og himinhæðin
sem heillar og gefur oss mest.
Leita skal ljóðaframa
í Ieikni og hugsanastærð,
en ekki er andríki sama
og orðaglaumur og mærð.
Vér bergjum á bókstafsveigum,
en biðjum um — meiri sál.
Með fáum orðum — en fleygum —
skal flytja guðanna mál.
f
j
£
f
f
J
f
3
I
i
i
A
J
>3*1
lVfARGUR, sem þetta les, mun
undrast það ofurkapp, sem
lagt var á að fá þessa litlu ey aftur
til þess að endurreisa þar heimili
2500 manna með ærnum kostnaði
og fyrirhöfn, miklu meiri en þurft
hefði annars staðar.
Að vísu eru Helgolendingar
tengdir átthögum sínum sterkari
böndum en flestir aðrir, svo að það
eitt hefði verið næg ástæða, en þó
mun hitt hafa ráðið meiru, hve lega
Helgolands gerir það mikilvægt
vegna öryggis á siglingaleiðum.
Einnig baðstaðurinn, sem hefur
fært svo mörgum nýtt starfsþrek,
ýtti undir. Hér er friður og ró, —
eitt af því sem sjaldgæfast er á
meginlandi Evrópu, en allir þrá.
En það, sem hér er að gerast, er
fyrst og fremst tákn um endur-
reisnarvilja og endurreisnarmátt
hinnar ógæfusömu þýzku þjóðar,
sem nú lifir á örlagatímum og er
að endurreisa allt frá grunni, eins
og byggðina á Helgolandi, hinu
heilaga landi.