Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1956, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
611
Viðsjált lyf
Lyf sem nefnt er „reserpine'1 og
búið er til úr rótum jurtar nokk-
urrar sem nefnist „rauwolfia serp-
entina", hefur um nokkurt skeið
verið notað — og að því er virðist
með góðum árangri — við geðtrufl-
unum og of háum blóðþrýstingi.
En nú hefur enska læknablaðið
„The Láncet" það eftir fjórum
læknum, að lyf þetta geti verið
mjög viðsjált. Hefur komið í ljós
að það getur blátt áfram valdið
geðtruflunum hjá sumum sjúk-
hngum. Segja tveir læknar í Nýa
Sjálandi að sér hafi reynzt það
yfirleitt vel við háum blóðþrýst-
ingi, en þó hafi það valdið geðtrufl-
unum hjá sumum. Aðrir tveir
brezkir læknar segjast hafa reynt
það á 20 móðursjúkum konum, og
hafi fjórar þeirra orðið fyrir geð-
truflunum svo að þær hafi þurft
á læknishjálp að halda þess vegna.
Annars er sagt að þessar geðtrufl-
anir hverfi brátt aftur, eða eftir
stuttan tíma.
Mörgum mannslífum
bjargað
ÞAÐ eru nú ekki nema 15 ár síðan
sulfa-lyfin og gerlaeyðingarlyfin
var farið að nota fyrir alvöru. En
á þessum árum hafa þau bjargað
1,5 milljónum manna, eftir því sem
dr. C. C. Dauer, einn af forstjór-
um heilsuverndar Bandaríkjanna
segir. Um þriðjungur þessara sjúk-
linga mundi hafa dáið úr lungna-
bólgu og inflúensu, segir hann, ef
lyfjanna hefði ekki notið við. Þá
telur hann að bjargað hafi verið
76.000 konum er veikzt höfðu af
barnsfarasótt, 136.000 sárasýkis-
sjúklingum og 90.000 mönnum með
botnlangabólgu.
Hjátrú um meðgöngutíma
f „JOURNAL of the Kentucky
State Medical Association" ritar dr.
John Parks fæðingalæknir um
ýmsa hjátrú ,sem sé í sambandi við
meðgöngutíma. Hann segir að það
sé almenn skoðun að það muni
koma niður á fóstrinu ef kona
verður ofsahrædd um meðgöngu-
tímann. Þetta er ekkert annað en
ímyndun, segir hann. Þá segir hann
og að ekkert sé hæft í málshætt-
inum að konur missi tönn fyrir
hvert barn, sem þær fæða, því að
fóstrið dragi alls ekki til sín kalk
frá tönnum móðurinnar. Enn sé
það in mesta fásinna, er margir
haldi fram að konur þurfi að borða
heilmingi meira um meðgöngu-
tímann heldur en þær sé vanar.
Þær þurfi að halda á miklum líf-
efnum, sem byggja upp vöðva og
bein, en fleiri hitaeiningar þurfa
þær ekki en vanalega.
Menn hafa þótzt finna upp mörg
ráð til þess að ákveða fyrirfram
hvort það er drengur eða stúlka
sem kona gengur með. Dr. Park
segir að ekkert óbrigðult ráð hafi
fundizt til þessa enn. Þá getur
hann þess að það sé skoðun margra
að konur sem haf^ börn á brjósti
þurfi mikið að borða, brjóst þeirra
stækki mjög og þær aflagist í vexti.
Þetta er hrein vitleysa, segir hann.
Konur fegrast á því að eiga börn
og hafa þau á brjósti, ef allt fer
með feldu.
Vcrksmiðjan, sem býr til Shaeffers
sjálfblekungana, hefir nýlega fundið
upp blek, sem ekki er hægt að ná af
pappírnum aftur, hvorki með því að
skafa hann né bleyta. Blekið fer inn
í pappírinn og þótt það sé alveg máð
af yfirborðinu, er auðvelt að lesa
skriftina við útblátt ljós.
INiÝIIINiG AR
VEKJARI
Menn sem heyra illa, eða eru
sveinpurkur, hafa lítið gagn ar
því þótt vekjaraklukka fari á
stað. Þegar fram í sækir, vakna
þeir ekki við hringinguna. Nú
hefir verið fundið upp armbands-
úr, sem talið er að vakið geti hvern
mann, hvort sem hann er heyrnar-
laus, eða orðinn svo vanur hring-
ingum að hann vaknar ekki við
þær. Þetta úr hringir ekki, en á
bakinu á því er ofurlítill takki og
á ákveðnum tíma losnaf um hann
og þá tekur hann til að höggva
í úlfliðinn á manni. Og enginn er
svo að hann vakni ekkí við slíkt.
NÝR HREYFILL
Það hefur alltaf verið óska-
draumur vélfræðinga að geta notað
gastúrbínur til þess að knýa farar-
tæki á sjó og landi. En fram að
þessu hefur það einkum strandað
á þvi hvað slíkar vélar hafa verið
eyðslufrekar og miklar fyrirferðar.
En nú er fundin upp létt gastúr-
bína, sem auðveldlega má koma
fyrir í bíl. Eldsneytið er steinolía
og útblásturinn er notaður, svo að
sama sem ekkert fer forgörðum af
hita. Búizt er við að þetta verði
„kjörhreyfill" í alla bíla í fram-
tíðinni.
Mannæta
í Hluhluwe ánni í Zúlúalandi í Af-
ríku var stór og gamall krókódíll, sem
hafði orðið sjö mönnum að bana. Inn-
fæddir menn óttuðust hann. mjög, en
gátu ekki ráðið niðurlögum hans. í
sumar kom þarna að enskur veiðimað-
ur og hann skaut mannætúna og varð
frægur fyrir það um allt héraðið. í
maga krókódílsins fannst tveggja
skildinga peningur, og ætla menn að
einhver, sem hann át, hafi haft þennan
pening á sér.