Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1960, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
153
NYA LYÐVELDIÐ
6 A
U M aldamótin mun víst engan
mann hafa grunað, að í Afríku
mundi rísa upp sjálfstætt lýðveldi,
er héti Gana. Hér er heldur ekki
um að ræða eina sérstaka þjóð,
er fengið hefir frelsi. í landinu,
eins og það er nú afmarkað, og
er á stærð við Sviss, eiga heima
tíu stórir þjóðflokkar og mesti
fjöldi smærri þjóðflokka. Hefir
hver þjóðflokkur sína eigin siði,
trúarbrögð, og — það sem mestu
máli skiptir — sitt eigið tungumál.
Þar eru að minnsta kosti tuttugu
tungumál, sem töluð eru af eigi
færri en 10.000 íbúum. Vegna þessa
N A
sendir ríkisútvarpið fréttir og til-
kynningar daglega á sex mismun-
andi tungumálum, og auk þess á
ensku.
Á sunnanverðri ströndinni eru
helztu borgirnar. Þar eru nýtízku
byggingar og yfirstéttin þar hefir
samið sig að siðum vestrænna
þjóða. En í skógunum í norðan-
verðu landinu búa ýmsir þjóð-
flokkar, sem varla hafa komizt í
snertingu við menninguna, þótt
þeir kaupi talsvert af litauðgu og
rósóttu lérefti og reiðhjólum. Að
öðru leyti halda þeir fornum hátt-
um og venjum.
Manntal var tekið árið 1948 og
kom þá í ljós, að í borgunum og
umhverfum þeirra höfðu eigi
nema 249 af hverri þúsund notið
einhverrar fræðslu í skóla. En í
norðanverðu landinu var það ekki
nema einn af hverri þúsund. En
þess ber að geta, að síðan þetta
var, hefir verið gert mikið átak
í skólamálum landsins, svo að
þessar tölur eru ekki réttar, nema
hvað hlutföllin eru sennilega
svipuð milli borganna og norður-
héraðanna. Þess ber einnig að
geta, að fræðslan miðast við það,
að útrýma mismunandi siðum og
háttum, til þess að þarna myndist
ein þjóðarheild.
Um miðbik landsins búa bænd-
ur, sem yrkja jörðina. Þeir eiga
heima í þorpum. Hús þeirra eru
ferhyrnd og með bárujárnsþökum.
í hverju húsi á ein fjölskylda
heima, en hver fjölskylda getur
verið nokkuð stór. Það er bóndinn
og húsfreya og börn þeirra, for-
eldrar hjónanna, afar og ömmur
og jafnvel frænkur og frændur
með börn sín.
Farið er á fætur í dögun og
fyrsta verk hvers manns er að
fara í bað, enda þótt vatnið þurfi
að sækja í þorpsbrunninn. Um kl.
6,30 fara allir verkfærir karlmenn
til vinnu sinnar út í skóg, en þar
eru akrar þeirra og aldingarðar í
rjóðrum frumskógarins. Stundu
seinna fara svo konur á eftir þeim,