Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1960, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1960, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 157 Varðskipið Albert komið í návígi við brezka togarann „James Barries" í iandheigi Alþingi, eða hyggst flytja á næst- unni. Samkvæmt hinni nýu gengis- skráningu er kaupgengi hvers Bandaríkjadollars kr. 38,00, hvers sterlingspunds 106,56, danskrar krónu 5,50, sænskrar krónu 7,34, vestur-þýzks marks kr. 9,11 og fransks franka kr. 7,74 (23.) veðrAttan Það skipti alveg í tvö horn með veð- urfarið hér á landi í febrúar. Fyrri hluta mánaðarins, eða fram yfir hi-nn 10., var suðlæg átt hér á landi og hlýtt veður, rigningar voru oft miklar, mik- ill vöxtur hljóp í ár, sem flæddu yfir bakka sína, bæði sunnan lands og norðan. Mestur hiti mældist 16 stig á Dalatanga. En er líða tók að miðjum mánuðinum tók norðlægari átt við og síðan voru stanzlaus frost um allt land út mánuðinn. Snjókoma var nokkur, en þó lítil sunnan lands, þar sem allir vegir voru færir. í heild verður ekki annað sagt en mánuðurinn hafi verið góðviðrasamur. ÚTGERÐIN Þrjár fyrstu vikur mánaðarins voru togararnir að mestu úti fyrir Vest- fjörðum að veiðum. Veður var yfirleitt gott, en afli rýr, og þó nokkuð mis- jafn. Voru nokkur skip með reytings- afla og önnur dágóðan. Síðustu vikuna var stormur fyrir vestan og sama og ekkert hægt að toga þar. Færðu tog- árarnir sig þá á Eldeyarbanka og Sel- vogsbanka og einhverjir voru undir Jökli. Afli var þar tregur, en misjafn sem fyrr. Sjóveður var yfirleitt gott hjá bát- unum hér sunnan lands í febrúar, af- bragðsgott fyrri hluta mánaðarins, en leiðinlegra þegar á leið. Voru þá nokkr- ir landlegudagar. Afli var frekar treg- ur, en þó nokkuð misjafn hjá einstaka bátum og verstöðvum, oft þetta 4—6 lestir. Samanborið við fyrra ár hefur mun meira borizt á land af fiski tvo fyrstu mánuðina heldur en þá. LANDHELGIN Brezkir togarar hafa stundað ólög- legar veiJyn- hér við land sem áður undir herskipavernd. Sunnudaginn 21. febrúar kom varðskipið Albert að brezkum togara að veiðum 8,7 sjómíl- ur innan fiskveiðitakmarkanna við Ingólfshöfða. Brezka herskipið Palliser kom í veg fyrir töku togarans (24. og 25.) Ákveðið hefir verið að af íslands hálfu taki tveir ráðherrar þátt í land- helgisráðstefnunni í Genf, þeir Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra, og Guðmundur í. Guðmundssofn, utanrík- isráðherra. Auk þeirra verða tveir f ulltrúar stj órnarandstöðuf lokkanna og að sjálfsögðu sérfræðingar (28.) FRAMKVÆMDIR Veitt hefir verið í hitaveitukerfi bæ- arins vatni úr borholum við Háatún og Laugarnesveg. Er afl þeirra svipað eða heldur meira en beggja rafalanna í nýu virkjuninni við Efra-Fall. Það er 70—80 1 á sek. og 137 stiga heitt, eða umreiknað í rafmagnseiningar 25—28 þús. kw. 4300 hús í bænum eru nú tengd hitaveitunni og eru 42—43 þús. manns af 70 þús. íbúum borgar- innar hennar aðnjótandi (2.) Nýr bátur, Hávarður ÍS-160, kom til Súgandafjarðar. 76 smálestir, smíðaður úr eik í Danmörku. Eigandi Hraðfrysti- húsið Ásver hf. (2.) Nýr bátur, Sigurður AK-107, kom til Akraness. 90 lestir, smíðaður úr eik í Danmörku. Eigandi Ólafur Sigurðsson (2.) Hafin hefir verið framleiðsla hér á landi á vegaspjöldum með endurskins- efni. Annast það málaravinnustofa Daníels Þorkelssonar og Osvaldar Knudsens (2.) Fyrirhugað er að bráðlega hefjist boranir vegna jarðgufuorkuvers, hins fyrsta, sem reist verður hér á landi. Verða þær gerðar við Hveragerði. Ráð- gert er að stöðin verði 15 þús. kílóvatta og geti framleitt á ári 110 millj. kíló- vattstunda. Aætlað er að orkuverið verði komið upp 1964 (5.) Blönduós og Sjö hreppar í Austur- Húnavatnssýslu festu kaup á slökkvi- liðsbíl, sem byggt var yfir í verkstæði brunavarnaeftirlits ríkisins í Hafnar- firði. Er það 26. bíllinn, sem þar hefir verið útbúinn sem slökkviliðsbíll (6.) Nýr bátur, Manni, 75 lestir, kom til Keflavíkur. Hann er gerður úr eik, smíðaður í Vestur-Þýzkalandi. Eigandi er Hlutafélagið Keflavík.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.