Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1960, Side 11
LESBÓK MORGU NBLAÐSINS
159
Flóð í Hvítá hjá
Ferjukoti
maður félagsins var kjörinn Andrés
Kristjánsson (14.)
Magnús Guðmundsson var kjörinn
formaður Matsveinafélags S.S.Í. (14.)
Sigmundur Böðvarsson var kjörinn
formaður Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta (17.)
Sendinefnd frá þjóðfrelsishreyfingu
Njasslendinga kom hingað til lands og
leitaði eftir því við íslendinga, að þeir
beiti sér fyrir því, að máli dr. Banda,
foringja Njassalandsmanna, verði skot-
ið fyrir mannréttindanefnd Evrópu-
ráðsins 1 Strassborg, en hann situr nú
í fangelsi Breta suður í Afríku. For-
ingi nefndarinnar var Chiume, fyrrum
þingmaður í Njassalandi (19.)
Áhugamenn um að Kolviðarhóll
verði ekki lagður í eyði og húsin brotin
niður hafa stofnað með sér félag (19.)
Einar Jónsson var endurkjörinn for-
maður Múrarafélags Reykjavíkur (23.)
Magnús Ástmarsson var kjörinn for-
maður Hins íslenzka prentarafélags
(24.)
Óskar Hallgrímsson var kjörinn for-
maður Félags ísl. rafvirkja (24.)
SLYSFARIR
Lítill drengur, Matthías Karlsson,
eins árs, lézt af völdum bílslyss á Hafn-
arfjarðarvegi. Móðir drengsins, frú
Líneik Guðlaugsdóttir, meiddist nokk-
uð (9.)
Vélbáturinn ,Hafdís“ brann í róðri
suður á Selvogsbanka. Áhöfnin (sex
menn) bjargaði sér í gúmmíbát yfir í
„Fróðaklett" frá Hafnarfirði. Hafdís
var 79 lestir, eigandi hf. Vesturhús á
Þingeyri (11.)
Tíu ára drengur, Jón Gunnar Gunn-
arsson, Langagerði 44, brenndist svo
við sprengingu í benzíndúnk að hann
beið af því bana (11.)
Stefán Aðalsteinsson, múrarameist-
ari á Akureyri (52 ára) féll niður stiga
og beið bana (16.)
Skipverji á togaranum Þorsteini
þorskabít, Bergsteinn Þórarinsson frá
Vestmannaeyum (26 ára) slasaðist svo
að taka varð af honum hægri hendi
fyrir ofan alnboga (17.)
Þriggja ára drengur, Baldvin Rúnar
Gunnarsson, fórst í bílslysi í Keflavík
(27.)
ELDSVOÐAR OG ANNAÐ TJÓN
Eldur kom upp í stofu að Víðinesi í
Axarfirði. Var þar koldimmt af reyk,
þegar þess varð vart. Ungbarn svaf í
stofunni, en móður þess, Kristrúnu
Ingibjörgu Antonsdóttur, tókst á síð-
ustu stundu að bjarga því. Eldinn tókst
að slökkva (2.)
15—20 bátar brotnuðu meira eða
minna í ofviðri, sem gekk yfir Vest-
mannaeyar. Lágu bátar þessir bundnir
við bryggju hver utan á öðrum, en svo
verður að vera vegna þrengsla í höfn-
inni. Skemmdust sumir það mikið að
þeir urðu ósjófærir um tíma (2.)
Guðjón Jónsson, bóndi á Stórólfs-
hvoli, missti 9 ær af völdum ormalyfs-
gjafar (3.)
Geymsluhús verslunarfél. Grundar
hf. í Grafarnesi brann til grunna. í
húsinu var geymd þurr skreið, ýmis
áhöld og verslunarvörur svo og veið-
arfæri tveggja báta. Tjónið var metið
á eina millj. kr. (4.)
Skemmdir urðu allmiklar af eldi að
Saurbæ á Rauðasandi (17.)
íbúðarhúsið að Hólslandi í Eya-
hreppi á Snæfellsnesi brann til kaldra
kola og varð engu bjargað af búslóð
eða innbúi (20.)
ÍÞRÓTTIR
Úrslit urðu þau í 49. Skjaldaglímu
Ármanns, að Ármann J. Lárusson,
UMFR, sigraði. Lagði hann alla keppi-
nauta sína.
Guðmundur Gíslason, ÍR, varð