Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1969, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1969, Síða 9
sem kynmi aíS neynasit hættu- iagar líifi. á jíö'rðiinmii. Möngniim miun litelega sýnaist þessd var- úðarráðstöifun harla óþörf, eftir að haía lesið lýsingu á aðstæð- um á tunglinu — loftleysinu, helteulda á nóttunni, ofsahita á daginn, og siðast en ekfei sízt óihind,ruðu aðstrieymii a'f útf jóliu- bláu ljósi, röntgengeislum og ■geimgeistlum. En sú ákvörðun að setja tunglfarana í sóttkví, undirstrikar einmitt hve lítið við vitum með vissu um hugs- am'liag iífssttíilyrðii á eðia uinid- ir yíirborðd tumiglsims, hrva'ð þá um hugsaniega þróun lífs við ákilyrði andstæð þeim sem við eigum að venjast. Fæstir visindamenn myndu Ijá því eyra að naklkurt lif gæti orðið til á tungiinu eins og þar er ástatt nú. Hins vegar vitum við of lítið um fonsögu tunglsins til að geta fullyrt að sttdlyrði til lífisimyndunar hafi öteki verið önnur og betri í fyrndin.ni. Og lif sem hefði náð fóttfestu á annað borð, hvort semn það 'hetfðj myndazt á tunglinu eða borizt þangað á annan hátt, hefði hugsanlega getað náð að- lögun til að hjara við þær að- stæður sem þar ríkja nú. Etf framandi lífverur fyndust á fiumigttámu, jiatfmveil þótt þær væru svo smáar að þær sæjust al&eims í bezfiu smiáisjlám, yrði siá fundur einhver merteasta upp- götvun í sögu vísindanna. Önnur hugmynd, þótt fjar- stæðari sé, gæti verið íhugunar- efni. Veðrunin á tunglinu er svo atfsk-aipl'eiga hiaag, -alð tfyrsitiu spor ibu'nigttifiaTiaminia þ-ar gætu ■warðveizt í miillHjómiir ára. f>etta veflau-r ósóiáltfráifit uimlhiuigsiuin mim þann -möguleika, að á tunglinu finmist önnur spoT, merki um Iheiimsó/km ulfiam- úr geliimimuim ein- hvern tíma á liðnum áramilljón um. Slíkt er að visu eteki sér- lega liklegt, en etf noiklkurs stað- ar ætti að vera von um að finna spor fra-mandi geimifara eða könnunartæiki, er það einmitt á tunglinu. Á jörðinni mást öll umim-erfld og hvertfa á svo ör- ákömnwm tíma. TITNGIóm SEM STÖKK- PAELUR í GEIMNUM Ef grundvöllur reynist fyrir tframleiðslu eldflaugaeldsneytis á tunglinu (t.d. úr ís), myndi það gjörbreyta framtíðarihorf- um í geim-taekni og geimiferð- uim. Vegna hins litla aðdrátt- arafls er tunglið hinn ákjósan- legasti stölkikpallur á leiðinni til stja-manna. Til þess að slkjóta geimiflaug frá tunglinu Iþamf aöeins a-ð ruá % atf þeirn hraða sem til þartf á jörðinni, hvo a0 ettdaraeyitnsspamia'ðurinin er gí'fu-nl-egur. Til imarks um þetta hefur verið bent á, að það myndi borga sig að senda viðbótareldsneyti alla leið frá tumigíLiniu til að fylla geymia -eflid- flaugar sem biði á farbraut um jöirðiu, frelkiar ein -aið semidia eldsneytið beint frá jörðinni! Lamdlniám á fiumigttliniu til vús- Dimdiaipaininsólknia og igekraferðia gefiutr -etokn verið mjöig lanigt umdam. Oig þó aið spádómiair >uim fjölmennar borgir á tunglinu rætist kanmsiki seint, er vert að minnast þess, að í sögu tækn- iraniar ttuefiuir venuilieik,i)nin otftasf; miær tfarið lamigt tfram úr draiuimióruim hininia bj-artsýmuisfiu manna. Þrír merkSr brautryðiendur E idflaugar voru í fyrstu og lengi vel aðeins notaðar til hemaðar og skemmtunar. En þeim fylgdu ýmsir ókostir og auk þess komu fallbyssur snemma til sögunnar og þóttu þær íljótlega betur hæfa hern- aði. Það var fyrst í byrjun þess- arar aldar, að vísindamenn tóku að gera sér grein fyrir mikilvægi og þýðingu eldflauga til geímferða. Þar áttu þrír menn mestan hlut að máli. Þeir voru Rússinn Konstantín Edvar dóvitsj Tsjolkovsky, Ameríkan inn Robert H. Goddard og Þjóðverjinn Hermann Oberth. Tsjolkovsky fæddist árið 1857. Hann var af lágum stig- um. Ungur að árum sýndi hann mikla hæfileika á sviði stærð- og eðlisfræði auk uppfinninga. Hann var enn á tvítugsaldri, er hann fékk fyrst hugmynd- ina um geimferð. Hann kenndi sjálfunu sér flest það er til þurfti. Árið 1878 varð hann þorpskennari og fluttist til Borovsk. Hann byggði sér frumstæða tilraunastofu heima fyrir og hóf þar tilraunir sín- ar. Seinna var hann kjörinn félagi Eðlis- og efnafræðifé- lagsins í Sankti Pétursborg fyr ir merk rit sín. Árið 1903 birti Tsjolkovsky ritgerð í tímaritinu „Vísindarit- ið“. Sú ritgerð hét: „Könnun geimsins með aðstoð eldflauga- útbúnaðar“. Hann varð fyrst- ur til að koma auga á mikil- vægi eldflauganna og kom- andi hlutverk þeirra í geim- ferðum og samdi hina stærð- fræðilegu kenningn um afl- fræði eldflaugnanna. Geimfar það er Tsjolkovsky teiknaði átti að verða knúið heitum gas- tegundum, sem framleiddar voru með því að blanda saman fljótandi súrefni og fljótandi köfnunarefni. Þetta er grund- vallarefnaformúla sú, er notuð var til þess að knýja efri þrep Satúmus 5 eldflaugarinnar og gerði það að verkum, að hægt var að senda nærri því 50 tonn til tunglsins. Kenningar Tsjolkovskys um það, hvemig komast megi út úr gufuhvolfi og þyngdarsviði jarðarinnar trySTgja honum að margra áliti fremsta sæti meðal alira eld- flaugavísindamanna. En sjálf- ur hélt hann sig aðallega við samningu kcnninga og skiln- ing þeirra. Robert H. Goddarð varði mestum hluta starfsævi sinnar til hinnar hagnýtu hliðar mál- efnisins, þ.e„ hreyflanna og eldsneytisins. Hann fæddist 25 árnm síðar en Tsjolkovsky. Áhugi lians á eldflaugum hófst þegar í bamæsku hans. Hann hripaði niður hjá sér liugdett- ur sinar í sambandi við þetta Rússinn Tsiolkovsky Þjóðverjinn Oberth. áliugamál sitt allt frá sextán ára aldri. Enda þótt starf hans liefði sannarlega gifurleg áhrif á eldflaugarannsóknir, þá hlaut hann ekki þá umibun og viður- kenningu sem hann átti skilið fyrr, en eftir dauða sinn árið 1945. Allt til ársins 1920 snerist áhugi hans mest um púður og aðrar fastar eldsneytistegund- ir. Frægasta verk hans kom út það ár og hét: „Aðferð til þess að ná mjög mikilli hæð“. Þar ályktaði Goddard, að mögulegt væri að senda eldflaug til tunglsins, hlaðna svo miklu sprengiefni, að áreksturinn sæ- ist greinilega í sjónaukum frá jörðinni. Eftir mikil heilabrot og til- raunir skaut Goddard loks á loft fyrstu eldflauginni, sem knúin var fljótandi eldsneyti. Þetta gerðist hinn 15. marz ár- ið 1926. Hún komst 14 metra upp í loftið, náði 60 kílómetra hámarkshraða og hélzt á lofti u.þ.b. tvær og hálfa mínútu. Þremur árunn síðar sagði Goddard Charles Lindberg, að hægt væri að senda margþrepa eldflaug til tunglsins, en bætti því við, að það mnndi kosta meira en eina milljón dollara og því væri ekki um það að ræða. Fjárhagsáætlun Apollo- tilraunanna á þessu ári er tíu sinnum hærri, en Goddard gat sér til. Á meðan stóð á annarri heims styrjöldinni vann Goddard fyr- ir Loftsiglingadeild ameríska sjóhersins. Þær kenningar, sem hann samdi þar voru nýttar til eldflaugagerðar sjóhersins. Eft ir dauða Goddards var hlaðið á hann heiðursmerkjum og verð- Iaunum eins og stundum vill verða. Árið 1960 greiddi amer- íska stjórnin Guggenheimstofn uninni og frú Goddard eina mnlljón dollara fyrir einkaleyfi Goddards, sem vorn rúmlega tvö hundruð. Hermann Oberth fékk áhuga á geimferðum, er hann var ell- efu ára gamall. Þá fékk hann hinar frægu bækur Jules Verne að gjöf. Hann tók þegar að gera ýmsar tilraunir með þyngdarleysi og eldsneyti. Eitt sinn tók hann jafnvel inn deyfilyf til að róa sig, því að hann taldi, að þyngdarleysi hlyti að verða mjög óþægilegt fyrst í stað. Áhugi hans á ár- ásareldflaugum kom lionum til þess að bjóða varnarmálaráðu- neytinu, árið 1917, að byggja langdræga árásareld- flaug knúna fljótandi elds- neyti. Fyrsta bók Oberths hét „Eldflaugin út í himingeiminn", og kom út í Munchen árið 1923. Hún varð sígilt vísinda- rit. Þar ræddi hann gagngert nær því hverja einustu hlið eldflaugavísinda og þar á með- al áhrif þrýstings og þyngdar- leysis á mannslíkamann. Bókin er aðeins 92 blaðsíður að lengd og ágæta vel samin. Þar sýndi hann fram á það, að eldflaug gæti flutt byrði með sér á hringbraut sína. Sex árum síðar gaf Oberth út lengda útgáfu þessarar bók- ar sinnar og nefndi hana þá „Leiðin til geimferða“. Hún færði Oberth fyrstu verðlaun- in, sem veitt voru fyrir geim- vísindi í heiminum. Meðan stóð á annarri heims- styrjöld vann Oberth að eld- flaugasmíði, þar á meðal að smíði V—1 og V—2 flauganna þ.ýzku í Peenemunde og Reins- dorf. Eftir stríðið vann hann í nokkur ár með Werner von Braun í Bandaríkjunum áður en hann dró sig í hlé. Von Braun hafði verið nemandi Ob- erths forðumi daga og varð síð- ar sá maður, sem byggði brúna milli hinna fyrstu flauga og Satúmusrisanna. Tsjolkovsky, Goddard og Oberth gerðu þó miklu fleira, en hér er rakið. Starf þeirra varð f jölmörgum öðrum að Ieið arljósi og rit þeirra hvöttu fjöida verkfræðinga og vísinda manna til tilrauna og uppgötv- ana á sviði geimvísinda. Framfarir í geimvísindnm em að mörgn leyti striði og ótta að þakka. Hefði önnur heimsstyrjöldin aldrei átt sér stað, vígbúnaðarkapphlaupið eða kjarnorkuvopnaþróunin er óvíst, að geimferðir væra komn ar á svo hátt stig, sem raun er nú á. Megi nefna einn mann til, semi semiilegt er að hljóta muni sæti við hlið Goddards, Ob- erths og Tsjolkovskys í geim- ferðasögunni, þá kemur Wern- er von Brann helzt til greina. Hann vantar nú þrjá í sextugt og býr í Bandaríkjunum. Hann er forstjóri Marshall Geimferða- miðstöðvarinnar. Það var von Braun, sem framkvæmdi draum Oberths um langdrægu árásar- flugskeytin. Sem betur fór fyrir Evrópubúa var V—1 flugskeyti hans ekki tilbúið til notkunar fyrr en stríðinu var að ljúka. Þrátt fyrir vel heppn aða smíði flugskeytisins í Peene rnúnde reyndisi ekki auðið að fullvissa Hitler um mikilvægi þess fyrr en um seinan. Þrátt fyrir þetta var um 4000 V—2 skeytum skotið upp árin 1944 og 45. Bæði Rússar og Banda- ríkjamienn voru snöggir að átta sig á miltilvægi þessara skeyta og, er þeir réðust inn í Þýzka- land kepptust þeir um teikn- ingamar, vopnin og vísinda- mennina. Von Braun gekk Bandarikjamönnum á hönd. 16. júli 1-969 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.