Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1970, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1970, Qupperneq 8
Höfundur þessarar greinar er ungur Reykvíkingur. Hann er mikill áhugamaður um jarð- fræði og hefur af sjálfsdáðum lært mikið um þau efni, en hann er ekki jarðfræðingur. Kenning hans er sú, að grunn- vatnsuppistaða í nánd við Heklu ráði mestu um ösku- fallið og gerð gossins. í eftirfarandi hugleiðingum um Heklu set ég fram nýja kenningu um orsakir östougos- anna í upphafi Hetolugosa og það, hvers vegna Hekla er með þennan gassa, þegar hún fer af stað. Að sjálfs-ögðu á kenning- in einnig við um eldfjöll al- mennt og kerruur þar inn á og fellur að viðurkerandum sitooð- unum, sem fræðimenn hafa sett fram um nokkrar gerðir eld- fjalla. Kenningin sjálf er senni lega ekki spennandi lestrarefni, enda meginuppistaða hennar mjög svo jarðbundnar rann- söknir vísindamanna. Þeim er aðeins raðað upp á annan veg en þeir gera og þannig fengin ný útkoma úr dæminu. Hins vegar ættu þær álykt- anir sem ég dreg af útko>munni að vekja mun meiri áhuiga, og út frá þeim ályktunum vona ég að umræður spinnist um það hvort kenminigin er rétt eða röng. En þær ályktanir eru á þá leið að hægt sé að draga veru- lega úr eða koma í veg fyrir öskufrussið í upphafi Heklu- gosa og draga með því vígtenn- urnar úr þeirri gömlu. Þær víg tennur sem hún hefur verið helzt til óspör á á liðnuim öld- um og glefsað með í flestar byggðir landsinis og orðið gætu þéttbýli Suðurlandis þungar í skauti í framtíðinni. Jarðfræðingar hafa komið fram með skýringar á móbergs stöpunum og einnig því, hvern ig Surtur breyttiist úr blautu öskugosi í þurrt með tilheyr- andi öskufalli og síðan í hraun gos. í báðum tilvikum er það vatnið, salt eða ósalt, sem hefur aðaláhrif á hegðun eldgosanna og það tel ég að eigi einnig við um Hetolu, það séu aðeins aðrar aðstæður í jarðlögunum um- hverfis Heklu, sem valda því, að vatnið hleypir svona illu blóði í hana, og þar um fjallar kenningin. Aðalefni kenningar innar er það, að við Heklu- sprunguna og þá lóðréttu berg ganga, sem henni fylgja mynd- ist mjög stór grunnvatnsuppi- stað'a, um þúsund til tvö þús- und gigialítrar, sem vex með lengd goshléa og sé sem næst afrennslblaus og hitni því mik- ið og vatnið í henni verði þess vegna mjög kísiiisýrram'ettað. Kenninguna byggi ég á eftir- farandi atriðum. 1. Samkvæmt upplýsingum jarðskjálftamæli'nga er halli á berggrunni landsins frá suð- austri inn að Hefcluisprungunni og aðalsprungunum sem liggja norð-austur yfir landið. Þessi. berggruniraur er álitinin þialð þétt ur að grunnvatnsihrmgráis nqi ekki sem neinu nemi niður í hann. Berggrunnurinn er á um 2100 til 2500 metra dýpi á þesisu svæði, en þennan hallandi berg grunn álít ég botn og bato grunnvatnsuppistöðunnar. 2. Sprungukerfi' því sem ligg- ur yfir landið frá suð-vestri til raorð-aiuisiturs fylgja margfaldir garðar lóðréttra bergganga sem ná upp úr berggrunninuim og sumir upp á yfirborðið. Þessa bergganga álít ég vera niorð-vestargafl gruninivatnis- uppistöðunnar. 3. Mjög víða á landinu má sjá bergganga sem hafa mynd- azt horrarétt á aðalberggainigia- stefnu S’væðanna og mundu þannig gangar sem stefna frá norð-vestri ti/1 suð-austurs og liggja um og ofan við Rang’ár- velli, mynda siuð-vesturgafl uppistöðunnar. Því til stuðnings að slíkir berggangar séu þarna til stað- ar vil ég benda á, að í jarð- skjálftunum á Rangárvöllum 1912 myndaðist mikil sprunga frá norð-norðvestri til suð-suð austurs og má ætla, að sú sprunga sé í tengsluim við berg ganga með svipaðri stefnu, sem sóu þar undir og hafi verið það jafn lengi og Hekla hefur verið til. 4. Sveiflum þeim sem verða á kísilsýruinnibaldi gosefna frá He-klu eftir lengd goshléa. Þess ar sveiflur vil ég sfcýra þannig að eftir því sem lengra líður milli eldigoisa því meira verður steinefnainnihald vatnsins í grunnvatnsuppistöð'unni og einnig eykst vatnið í henni. Þannig mun kísilsýrumagn vatnsins ráða sýringu öskunn- ar en stærð uppktöðunn.ar ráða öskuimagninu sem myndast í hverju einstöku eldgosi. Rök fyrir því, að það er ekiki kísil- sýran sem veldur ö-ikúmyndun- inni, eru helzt þau, að líparít, sem er súrara en Hekluaskan, hefur víða komizt upp á yfir- borðið 'án umtalsverðrar ösku- myndunar. Ég álít því, að kom- ist heitt grunnvatn með háum þrýstingi inm í gossprurugunia á 2000 til 2500 metra dýpi þá Fraimlbald á bls. 12. Gosið í Skjólkvíum. Myndina tók Ól. K.Magnússon á öðrum klukkutíma gossins, Flokkun eldstöðva, miðað við að það sé grunnvatn og aðgangur vatns, sem mestu ráði um áferð þeirra. 1. Gos upu í gegnum yfirborðsvatn eða jökul. Móberg mcð hraunkolli. 2. Gos laust við ágang yfir'borðs- og grunnvatns. 3. Gosstöðvar eftir að grunnvatnskerfi hefur hrunið saman eftir gos. 4. Gosstöð með þróuðu grunnvatnskerfi, vegna endurtekinna tæminga. 5. Gos upp undir grunnt grunnvatnskerfi veldur gufusprengingum, sem mynda gíga eða gjár áður en gos hefst. 6. Gos með jöfnu grunnvatnsaðstreymi meðan gosið varir. 7. Gos á sjávarbotni. Meðan sjór kemst vel að, kæfir hann öskugosið með öllu, en síðan hegðar það sér svipað og gos upp í gegnum grunnvatnskerfi. 8 LESBÓK MOHGUNBLAÐSINS 5. júlí 1970

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.