Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1970, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1970, Síða 13
Rætt við John Bonham trommara Led Zeppelin JOHN Banhaim, tramimiulei'kari hljómsveitarmnar Led Zeppelin, heimsótti Glaumbæ s.l. sunnu- dagskvöld ásamt félögum sínum, en þá stóð einmitt yfir kveðju- dawsileilkiur hljómsveitarimmar Trúbrots. Shady Owens ogKarl Sighvatsson léku þá með hljóm aveitinni í síðasta skipti. John sat við borð Led Zeppeiim úti í horni í nær þrjá tíma, ogfékk því að heyra nógu mikið af tón listarflutningi Trúbrots til að geta myndað sér einhverja skoð un á hoinium. Að diamisileiiknium loknum, brá John sér upp á loft í Glaumbæ, fékk sér þar sæti við eitrt borðið og ræddi þarna um stund við nokkra íslenzka kunningja. Hann var reyndar orðinn þreyttur, hafði átt erfið an dag, fyrst flugferð til ís- lands, síðan upphitunaræfing inni í LaugardalshöU og að lok- um Glaumbæjarferðin, sem var mjög þreytandi, þar sem hinir fjölmörgu aðdáendur hljómsveit arinnar gáfu liðsmönnum henn ar varla nokkurn frið fyrir kvabbi um eiginhandaráritanir og annað slíkt. Við spurðum því John fyrst að því, hvernig hami hefði skemmt sér í Glaumbæ þetta kvöld. Prýðilega, þetta er viðkunn- anlegur staður og hljómsveitin góð. Sérstalklega „souinidið" hjá hljómsveitinni, þalð var alveg fyrirtak. Ætti þessi hljómsveit, Trú- brot, einhvern möguleika á því að komast áfram í hljómsveita samkeppninni i Englandi? Já, örugglega. Það er bara einn galli, sem hljómsveitin verður að laga, áður en hún get ur farið að keppa við enskar hljómsveitir. Hún verður að spila meira af sínum eigin lög- um, semja sjálf, en ekki spila bara lög annarra hljómsveita. Hún spilar þau mjög vel, en það er bara ekki það, sem gildir í Englandi. Þar þarf hljómsveit- in fyrst og fremst að vera frum leg. Hins vegar skil ég vel, að þetta sé erfitt viðureignar hér á íslandi. Fólkið er jú það fátt og markaðurinn líti’ll. En ef hljómsveitin getur gert eina góða stóra plötu, þá er björn- inn unninn. Þá er auðvelt að fá samning við hljómplötufyrir tækii i Bntglandd e'ðá Amieríku. En nú hefur Trúbrot, að ég held, gert tilraunir til að fá slíka samninga, en ekkert hefur gengið. Jæja, Ja, ég skal þá reyna að g'era það sem ég get fyrir hljómsveitina. En svo vlð snúum okkur nú að þér sjálfum. Er ekki þreyt- andi að hlusta á nöldrið í blaða mönnum? Nei, þett'a kemst upp í vana. Maður getur svarað þessum spurningum þeirra alveg ósjálf- ■ LED ZEPPELIN ER LÍF OKKAR rátt, án þess að vera að gera sér of miklar grillur út af þvi. Það er nefnilega þannig með blaðamenn, að maður má alls ekki styggja þá. Þegar við er- um á hljómleikaferðum í Banda ríkjunum, koma kannski til okk ar tíu eða ellefu blaðamenn í einu og fara að bauna á mann óþægilegum og þreytandi spurn ingum. Þá verður maður að vara sig. Ef maður segir eitthvað vanhugsað, eru þeir strax hlaupnir með það í blöðin, eins og kom nú í ljós með John Lennon á sínum tíma. En maður má heldur ekki neita þeim um viðtöl, því að þá slá þeir þvi bara upp í staðinn, að maður sé svo merkilegur með sig og ósamvinnuþýður, að skömm sé að. Svo að maður verður að vera var um sig fyrst í stað. En síðan kemst þetta upp í vainia og rruaiður getur farið að svara kurteislega öllum mögu- legum spumingum, án þess að hafa nokkurn hlut fyrir því. Hvað er Led Zeppelin? Led Zeppelin er líf okkar. Við vinnum saman að öllu, sem við gerum, og það kemst ekk- ert annað að hjá okkur, en Led Zeppelin. Og sjáðu bara hvað hljómsveitin hefur afrekað á átján mánuðum. Við eigum all- ir stór og fín hús, og ég á tgi. bæði Rolls Royce og Jensen (handsmíðaður sportbíll í dýr- asta verðflokki). Hvað hefur þú fengizt lengi við hljóðfæraleik? Ég hef spilað á trommurnar í sex ár. Hefur þú meiri ánægju af því að spila nú, en þegar þú varst að byrja á þessu? Já, miklu meiri. En hins vegar hafa viðhorf mín til ýmissa hluta breytzt mjög á þessum tima. Hér áður fyrr átti ég mína drauma um það, sem mig langaði til að gera, langaði til að eignast, en nú þegar ég hef gert þeissa hluti, edgmazt allt mögulegt, þá fellur það skyndi- lega mjög í verðgildi í mínum augum, en hins vegar er margt, sem ég sakna frá þvi í gamla diaigia, ein g®t ekki öðlazt nú. Nú gerir þú þó nokkuð af því að taka trommusóló með berum höndunum. Ætlar þú að gera það í Höllinni á morgun? Já, auðvitað. En þetta er alveg voðalega sárt, ég er allur í örum á höndunum eftir þetta. Hvernig trommusett leikur þú á? Ludwig. Ég er á samningi við Luidwiig-fyrirtækið. Það sér mér algerlega fyrir trommum til að leika á, ef ég lofa að nota engar aðrar tegundir. Við erum allir með svona samninga við hljóðfæraframleiðendur. Söng kerfið, magnarana, gítarana, allt þetta fáum við ókeypis. Og að lokum John, hvernig lízt þér á ísland? Ég hef nú bara verið hér í einn dag, en mér lízt mjög vel á þetta allt saman, eftir því sem ég hef séð, og þá sérstaklega á stúlkurnar, þær eru gullfalleg- ar. S.H. 5. júlí 1970 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ]3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.